Fara í innihald

Íþróttafélag Reykjavíkur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
merki íþróttafélags Reykjavíkur
Merki Íþróttafélags Reykjavíkur

Íþróttafélag Reykjavíkur eða ÍR er eitt fjölmennasta íþróttafélagið í Reykjavík með rúmlega 1800 virka iðkendur en þar af eru rúmlega 1300 16 ára og yngri. Formaður þess er Bjarki Þór Sveinsson. Íþróttir stundaðar hjá ÍR eru:

Yfir 50% nemenda úr grunnskólum í Seljahverfi og Bakkahverfi(Neðra-Breiðholt) eru iðkendur hjá ÍR og um 40% í öllu Breiðholtinu.[heimild vantar]

Snemma árs 1907 setti Andreas J. Berthelsen, ungur Norðmaður sem búsettur var í Reykjavík, auglýsingu í bæjarblöðin þar sem hann hvatti röska pilta til að mæta á stofnfund félags um fimleika- og íþróttaiðkun. Þann 11. mars sama ár var haldinn stofnfundur Íþróttafélags Reykjavíkur, sem hóf þegar stífar leikfimisæfingar.

Sumarið 1910 treystu félagsmenn sér til að sýna leikni sína opinberlega. Var þá haldin fimleikasýning í porti Miðbæjarskólans að viðstöddu fjölmenni. Varð sýning þessi til að opna augu almennings fyrir íþróttum og þá fimleikum sérstaklega. Var aðaláhersla félagsins á fimleikana fyrstu árin.

Samhliða fimleikaæfingum, hófu ÍR-ingar snemma æfingar í frjálsum íþróttum og komu sér upp nauðsynlegum tækjabúnaði til þess. Jón Halldórsson varð snemma mestur afreksmanna félagsins í frjálsum íþróttum, en hann keppti í hlaupum á Ólympíuleikunum 1912. Jón varð annar formaður ÍR á eftir Berthelsen.

Með tímanum urðu frjálsu íþróttirnar fyrirferðarmestar í starfi ÍR og hafa margir af frægustu frjálsíþróttamönnum landsins keppt undir merkjum þess. Má þar nefna: Jón Kaldal, tvíburana Örn og Hauk Clausen, Vilhjálm Einarsson, Valbjörn Þorláksson, Einar Vilhjálmsson, Mörthu Ernstsdóttur og Völu Flosadóttur.

ÍR-ingar voru alla tíð með augun opin fyrir nýjum íþróttagreinum. Þannig varð ÍR snemma stórveldi í skíðaíþróttum, átti öflugt sundlið, glímusveit og lyftingadeild. Í hópíþróttum hefut ÍR teflt fram liðum í handbolta, knattspyrnu og körfubolta.

ÍR hefur verið í samstarfi við skóla og frístundaheimili í Breiðholti síðan 2013 fyrir yngstu tvo árganga grunnskólanna sem leyfir iðkendum að prófa allar deildir íþróttafélagsins yfir önnina sem greitt er fyrir. Þeir hafa boðið upp á frístundarútu sem keyrir á milli skóla og íþróttamiðstöðvar ÍR í Skógarseli til að sækja yngstu iðkenduna og hefur starfsfólk á frístundaheimilum séð um að koma börnum tímalega í rútuna.[1][2]

Rígurinn við Leikni

[breyta | breyta frumkóða]

ÍR á í ríg við Leikni, sem er annað lið í Breiðholti. Rígurinn nær jafnt til leikmanna liðanna, stuðningsmanna og íbúa í Breiðholti. Rígurinn hefur orðið til vegna þess að Breiðholt skiptist í tvennt eftir Seljabrautinni. Stuðningsmenn og iðkendur ÍR búa aðallega í Seljahverfinu á meðan stuðningsmenn og iðkenndur Leiknis búa aðallega í Fella- og Hólahverfi. Íbúar í Bakkahverfi skiptast á milli liðanna. Rígurinn er ekki bara vegna þess að liðin skiptast milli hverfa, heldur líka vegna þess að að meðaltali eru íbúar Seljahverfis tekjuhærri en íbúar Fella- og Hólahverfis. Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru íbúar Fella- og Hólahverfis líklegri til að vera innflytjendur heldur en íbúar Seljahverfis og hefur það áhrif á sjálfsmynd liðanna og stuðningsmannanna.[3]

Tilvísanir og heimildir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „ÍR ungar“. Íþróttafélag Reykjavíkur. Sótt 5. ágúst 2026.
  2. ↑ Kolbeinn Tumi Daðason (23. október 2013). „ÍR-ungar hvattir til að prófa margar íþróttagreinar“. Vísir. Sótt 5. ágúst 2026.
  3. ↑ „Innflytjendur í Reykjavík eftir hverfum 1998-2019“. PxWeb. Sótt 29 nóvember 2023.[óvirkur tengill]
  • Ágúst Ásgeirsson (2007). Heil öld til heilla. Íþróttafélag Reykjavíkur.
Handball pictogram Lið í Bónus deild karla 2025-2026 Flag of Iceland

Álftanes  • Ármann  • Grindavík  • ÍR  • ÍA  • Keflavík  • KR  •
Njarðvík  • Stjarnan  • Tindastóll  • Valur  • Þór Þorlákshöfn

Knattspyrna
1. deild karla • Lið í 1. deild karla 2024 
Flag of Iceland

Afturelding  • Fjölnir  • Grótta  • Grindavík • Leiknir • Njarðvík  
Selfoss  • Þór • ÍA  • Þróttur   • Ægir   • Vestri

Leiktímabil í 1. deild karla (1955-2024) 

1951 • 1952 • 1953 • •1954•

1955 • 1956 • 1957 • 1958 • 1959 • 1960 • 1961 • 1962 • 1963 • 1964
1965 • 1966 • 1967 • 1968 • 1969 • 1970 • 1971 • 1972 • 1973 • 1974
1975 • 1976 • 1977 • 1978 • 1979 • 1980 • 1981 • 1982 • 1983 • 1984
1985 • 1986 • 1987 • 1988 • 1989 • 1990 • 1991 • 1992 • 1993 • 1994
1995 • 1996 • 1997 • 1998 • 1999 • 2000 • 2001 • 2002 • 2003 • 2004
2005 • 2006 • 2007 • 2008 • 2009 • 2010 • 2011 • 2012 • 2013 • 2014
2015 • 2016 • 2017 • 2018 • 2019 • 2020 • 2021 • 2022 • 2023 • 2024
2025 • 2026

Tengt efni: Mjólkurbikarinn • Lengjubikarinn • Meistarakeppni karla
Úrvalsdeild karla • 1. deild • 2. deild • 3. deild • 4. deild

------------------------------------------------­----------------------------------------------
Mjólkurbikarinn kvenna • Lengjubikarinn • Meistarakeppni kvenna
Úrvalsdeild kvenna • 1. deild • 2. deild • Deildakerfið • KSÍ
  Þessi íþróttagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.