Palaú
Palaú | |
Beluu er a Belau | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Belau rekid | |
Höfuðborg | Ngerulmud |
Opinbert tungumál | enska, palaúíska |
Stjórnarfar | Lýðveldi
|
Forseti | Surangel Whipps Jr. |
Sjálfstæði | |
• Stofnun lýðveldis | 1. janúar 1981 |
• Samningur um frjálst samband við Bandaríkin | 1. október, 1994 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
179. sæti 459 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
224. sæti 17.907 46,7/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2018 |
• Samtals | 0,3 millj. dala (192. sæti) |
• Á mann | 16.296 dalir (81. sæti) |
VÞL (2019) | 0.826 (50. sæti) |
Gjaldmiðill | bandaríkjadalur |
Tímabelti | UTC+9 |
Þjóðarlén | .pw |
Landsnúmer | +680 |
Palaú (palaúíska: Beluu er a Belau) er eyríki í Kyrrahafi, um 500 km austan við Filippseyjar. Palaú er hluti af Míkrónesíu og nær yfir um 250 eyjar sem mynda vesturhluta Karlseyja. Fjölmennasta eyjan er Koror en höfuðborgin, Ngerulmud, er á eyjunni Babeldaob. Landhelgi eyjanna liggur að landhelgi Indónesíu, Filippseyja og Míkrónesíu.
Fólk frá Filippseyjum tók að setjast að á eyjunum fyrir um 3000 árum. Evrópumenn komu þangað fyrst á 18. öld. Eyjarnar voru hluti af Spænsku Austur-Indíum til 1885. Eftir ósigur Spánar í stríði Spánar og Bandaríkjanna 1898 seldu Spánverjar þær til Þýskalands þar sem þær urðu hluti af Þýsku Nýju-Gíneu. Japanir lögðu eyjarnar undir sig í fyrri heimsstyrjöld. Í síðari heimsstyrjöld lögðu Bandaríkjamenn þær undir sig. Eyjarnar voru síðan í umsjá Bandaríkjanna til ársins 1994 þegar þær fengu sjálfstæði í frjálsu sambandi við Bandaríkin.
Efnahagur Palaú byggist aðallega á ferðaþjónustu, sjálfsþurftarbúskap og fiskveiðum. Ríkið er mjög háð fjárhagsaðstoð frá Bandaríkjunum. Bandaríkjadalur er opinber gjaldmiðill eyjanna. Flestir íbúa eru Míkrónesar, Melanesar eða Ástrónesar, en stórir hópar af filippeyskum og japönskum uppruna búa einnig á eyjunum. Enska og palaúíska (sunda-súlavesímál) eru opinber tungumál en japanska, sonsorolíska og tobíska eru opinberlega viðurkennd sem staðbundin tungumál.
Stjórnmál
[breyta | breyta frumkóða]Palaú er lýðveldi þar sem forseti Palaú er bæði þjóðhöfðingi og stjórnarleiðtogi. Ríkisstjórnin fer með framkvæmdavald, en löggjafarvaldið skiptist milli ríkisstjórnarinnar og þjóðþings Palaú. Dómsvaldið er aðskilið frá framkvæmda- og löggjafarvaldi. Stjórnarskrá Palaú er frá 1981.
Ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Palaú gerðu með sér samkomulag um frjálsa aðild árið 1986, svipað þeim sem Bandaríkin gerðu við Míkrónesíu og Marshall-eyjar. Samkomulagið gekk í gildi árið 1994 og við það hætti Palaú að vera verndarríki og varð að fullu sjálfstætt, síðast landa innan Verndarsvæðis í Kyrrahafi í kjölfar Ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 956.
Samkomulagið kveður á um frjáls samskipti ríkjanna með áherslu á stjórnarfar, efnahagslíf, öryggis- og varnarmál. Palaú er ekki með eigin her og Bandaríkjaher sér um varnir landsins. Samkvæmt samkomulaginu hefur Bandaríkjaher leyfi til dvalar á Palaú í 50 ár. Þar er lítil verkfræðingasveit á vegum Bandaríkjaflota og strandgæslan er á vegum Bandarísku strandgæslunnar.
Stjórnsýslueiningar
[breyta | breyta frumkóða]Palaú skiptist í sextán fylki (sveitarfélög til 1984):
Fylki | Stærð (km2) | Íbúar skv. áætlun 2012 | Manntal 13. apríl 2015 | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|
Kayangel
Höfuðborg Kayangel |
1,7 | 76 | 54 | Eyjarnar sem mynda Kayangel-hringrifið. |
Ngarchelong
Höfuðborg Mengellang |
11,2 | 281 | 316 | Norðan megin á Babeldaob. |
Ngaraard
Höfuðborg Ulimang |
34 | 453 | 413 | Norðan megin á Babeldaob, sunnan við Ngarchelong. |
Ngardmau
Höfuðborg Urdmang |
34 | 195 | 185 | Vestan megin á Babeldaob. |
Ngaremlengui
Höfuðborg Imeong |
68 | 310 | 350 | Vestan megin á Babeldaob. |
Ngatpang
Höfuðborg Ngatpang Village |
33 | 257 | 282 | Vestan megin á Babeldaob. |
Ngiwal
Höfuðborg Ngercheluuk |
17 | 226 | 282 | Austan megin á Babeldaob. |
Melekeok
Höfuðborg Melekeok |
26 | 300 | 277 | Austan megin á Babeldaob. |
Ngchesar
Höfuðborg Ngchesar Hamlet |
43 | 287 | 291 | Austan megin á Babeldaob. |
Aimeliik
Höfuðborg Mongami |
44 | 281 | 334 | Suðvestan megin á Babeldaob. |
Airai
Höfuðborg Airai |
59 | 2.537 | 2.455 | Suðaustan megin á Babeldaob. |
Koror
Höfuðborg Koror |
60,52 | 11.670 | 11.444 | Koror, Ngerekebesang og Malakal, auk Chelbacheb og Eil Malk í suðvestri. |
Peleliu
Höfuðborg Kloulklubed |
22,3 | 510 | 484 | Nær yfir Peleliu og nokkrar smáeyjar norðan við hana, þar á meðal Ngercheu. |
Angaur
Höfuðborg Ngaramasch |
8,06 | 130 | 119 | Angaur, 12 km sunnan við Peleliu. |
Sonsorol
Höfuðborg Dongosaru |
3,1 | 42 | 40 | Nær yfir Sonsorol, Fanna, Pulo Anna og Merir. |
Hatohobei
Höfuðborg Hatohobei |
0.9 | 10 | 25 | Nær yfir Tobi og Helenurif (óbyggt). |