Efnahags- og viðskiptaráðuneyti Íslands
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið | |
---|---|
Stofnár | 2009 |
Lagt niður | 2012 |
Arftaki | Fjármála- og efnahagsráðuneyti Íslands |
Ráðherra | Gylfi Magnússon (2009-2010) Árni Páll Árnason (2010-2011)[1] |
Ráðuneytisstjóri | Jónína S. Lárusdóttir[2] |
Fjárveiting | 3,3 milljarðar króna (2011) |
Staðsetning | Sölvhólsgata 7 150 Reykjavík |
Vefsíða |
Efnahags- og viðskiptaráðuneyti Íslands eða Efnahags- og viðskiptaráðuneytið var eitt af ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands frá árinu 2009 til 2012. Æðsti yfirmaður var Efnahags- og viðskiptaráðherra og æðsti embættismaður þess var ráðuneytisstjóri.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Efnahags- og viðskiptaráðuneytið var formlega stofnað 1. október 2009 en Gylfi Magnússon hafði starfað sem Efnahags- og viðskiptaráðherra frá 1. febrúar sama ár.[3] Sameiningu viðskipta- og efnahagsmála kom í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi 2008 þar sem erlendir sérfræðingar á borð við Kaarlo Jännäri ráðlögðu stjórnvöldum að stofna sér ráðuneyti um þessa tvo málaflokka til að vinna úrbætur á íslensku fjármálaeftirliti.
Áður hafði viðskiptaráðuneyti starfað frá 1939 en efnahagsmálum hafði verið dreift á ýmis ráðuneyti. Ein af afleiðingum sameiningar var sú að Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands heyrðu fyrst undir sama ráðuneytið sem átti að gera ráðamönnum kleift á að hafa betri yfirsýn yfir efnahagslífið í stað þess að það væri klofið milli mismunandi aðila. Á meðan að ráðuneytið starfaði sá það um endurskoðun regulverks og aðhalds með fjármálastarfsemi, losun gjaldeyrishafta og Icesave-deiluna. Einnig sá ráðuneytið um efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar til hún lauk 26. ágúst 2011.[4]
Störf
[breyta | breyta frumkóða]Samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands fór ráðuneytið með þau mál er varða:[5]
|
|
Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra“. Sótt 17. september 2010.
- ↑ „Starfsmenn“. Sótt 4. apríl 2010.
- ↑ Fréttatilkynning frá Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, skoðað 25. desember 2014
- ↑ Sögulegt yfirlit, skoðað 25. desember 2014
- ↑ „Reglugerð um Stjórnarráð Íslands“. Sótt 21. febrúar 2010.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Heimasíða Efnahags- og viðskiptaráðuneytis Íslands Geymt 1 febrúar 2010 í Wayback Machine