Gylfi Magnússon
Gylfi Magnússon (f. 1966) er prófessor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og sat sem efnahags- og viðskiptaráðherra utan þings á árunum 2009-2010.
Gylfi varð dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands á árinu 1998 og síðar prófessor. Gylfi útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með doktorsgráðu í hagfræði frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum.
Eftir að önnur ríkisstjórn Geirs H. Haarde féll í byrjun árs 2009 var Gylfi skipaður viðskiptaráðherra í minnihlutastjórn ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Gylfi var fyrsti efnahags- og viðskiptaráðherra eftir að ný lög um stjórnarráð Íslands tóku gildi 1. október 2009. Verksvið ráðuneytisins stækkaði með því verulega. Undir það heyrði þá Seðlabanki Íslands og flest annað sem viðkemur stjórn efnahagsmála í stjórnsýslu ríkisins.
Gylfi lét af ráðherraembætti 2. september 2010 og hélt aftur til starfa í Háskóla Íslands.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vefsíða Gylfa hjá Háskóla Íslands Geymt 15 febrúar 2009 í Wayback Machine
- Æviágrip Gylfa Magnússonar
Fyrirrennari: Björgvin G. Sigurðsson |
|
Eftirmaður: Enginn | |||
Fyrirrennari: Enginn |
|
Eftirmaður: Árni Páll Árnason |