Matvælaráðuneyti Íslands
Útlit
(Endurbeint frá Sjávarútvegsráðuneyti Íslands)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið | |
---|---|
Stofnár | 2008[1] |
Fjárveiting | 18,6 milljarðar króna (2011) |
Staðsetning | Skúlagata 4 150 Reykjavík |
Matvælaráðuneyti Íslands, áður þekkt sem Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti Íslands eða Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti er eitt af 12 ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands. Æðsti yfirmaður var eitt sinn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og æðsti embættismaður þess var ráðuneytisstjóri.
Árið 2012 var það sameinað inn í Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, en undir því eru starfandi tveir ráðherrar: sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.[2]
Árið 2021 var nafninu breytt í matvælaráðuneytið.
Samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands[3] fór ráðuneytið með þau mál er varða:
Sjávarútveg
- Rannsókn, verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.
- Eftirlit með verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.
- Rannsóknir og eftirlit með framleiðslu og innflutningi sjávarafurða.
- Eldi nytjastofna sjávar.
- Stuðning við rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi.
- Verðlagsstofu skiptaverðs og verðlagsráð sjávarútvegsins.
- Þróunarsjóð sjávarútvegsins.
Landbúnað
- Rannsóknir og eftirlit í landbúnaði.
- Nytjaskógrækt á bújörðum og landshlutaverkefni í skógrækt.
- Jarðir í eigu og umsjá ríkisins, þ.m.t. kirkjujarðir.
- Landnotkun í þágu landbúnaðar og önnur jarða- og ábúðarmál.
- Áveitur og framræslu.
- Framleiðslu- og markaðsmál í landbúnaði, inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
- Inn- og útflutning dýra og plantna og erfðaefnis þeirra, varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
- Aðbúnað búfjár og heilbrigði dýra, varnir gegn dýrasjúkdómum, gæði og heilnæmi aðfanga og landbúnaðarafurða.
- Veiði í ám og vötnum, eldi vatnadýra og önnur veiðimál.
- Lán og stuðning við nýsköpun og starfsemi á sviði landbúnaðar.
- Hagrannsóknir og áætlunargerð í landbúnaði.
Matvæli, matvælaeftirlit og matvælarannsóknir.
Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Sögulegt yfirlit sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis“. Sótt 8. apríl 2010.
- ↑ „Stjórnarráðið | Um ráðuneytið“. www.stjornarradid.is. Afrit af upprunalegu geymt þann 24. október 2020. Sótt 4. nóvember 2020.
- ↑ „Reglugerð um Stjórnarráð Íslands“. Sótt 21. febrúar 2010.