FC Barcelona

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Futbol Club Barcelona
Fullt nafn Futbol Club Barcelona
Gælunafn/nöfn Barça eða Blaugrana
Stytt nafn FC Barcelona
Stofnað 29. nóvember 1899 (1899-11-29) (123 ára)
Leikvöllur Camp Nou
Stærð 99.354
Knattspyrnustjóri Xavi
Deild La Liga
2021/22 2. sæti
Heimabúningur
Útibúningur

FC Barcelona er knattspyrnufélag í Barselóna, Katalóníu, Spáni. Leikvangur FC Barcelona er Camp Nou, eða Nývangur uppá íslensku. Hann tekur rúma 99 þúsund manns sæti. FC Barcelona hefur sögulegt gildi, gagnvart héraðinu Katalónu og krafa er gerð til þess að katalóníska sé töluð af öllum leikmönnum liðsins. [1]

Camp Nou stadion, sem tekur rúma 99.786 áhorfendur í sæti

Félagið hefur þá sérstöðu, að það er rekið á fjármagni stuðningsmanna liðsins. [2] Áður en félagið fékk merki UNICEF á búninga félagins, hafði það aldrei haft auglýsingar á búningum sínum. Samningurinn við UNICEF er líka nokkuð sérstakur, því UNICEF er borgað fyrir að hafa auglýsinguna á búningnum, en venjulega er hinn hátturinn hafður á. [3]

Leikmannahópur[breyta | breyta frumkóða]

Nóvember 2022 Ath: Fánar eru tákn fyrir það þjóðerni sem skráð eru hjá FIFA. Leikmenn gætu haft fleiri en eitt ríkisfang.

Nú. Staða Leikmaður
1 Fáni Þýskalands GK Marc-André ter Stegen
2 Fáni Spánar DF Héctor Bellerín
4 Fáni Úrúgvæ DF Ronald Araújo
5 Fáni Spánar MF Sergio Busquets
7 Fáni Frakklands FW Ousmane Dembélé
8 Fáni Spánar MF Pedri
9 Fáni Póllands FW Robert Lewandowski
10 Fáni Spánar FW Ansu Fati
11 Fáni Spánar MF Ferran Torres
15 Fáni Danmerkur DF Andreas Christensen
17 Fáni Spánar DF Marcos Alonso
Nú. Staða Leikmaður
18 Fáni Spánar DF Jordi Alba
19 Fáni Fílabeinsstrandarinnar MF Franck Kessié
20 Fáni Spánar DF Sergi Roberto
21 Fáni Hollands MF Frenkie de Jong
22 Fáni Brasilíu FW Raphinha
23 Fáni Frakklands DF Jules Koundé
24 Fáni Spánar DF Eric García
26 Fáni Spánar GK Iñaki Peña
28 Fáni Spánar DF Alejandro Balde
30 Fáni Spánar MF Gavi
36 Fáni Spánar GK Arnau Tenas

Saga[breyta | breyta frumkóða]

Stofnun (1899–1922)[breyta | breyta frumkóða]

FC Barcelona var stofnað þann 22. október 1899, þegar Joan Gamper setti auglýsingu í bæjarblaðið Los Deportes um að stofna knattspyrnulið. 1902 vann Barcelona fyrsta bikar sinn, Copa Macaya fyrir að vera besta knattspyrnulið Katalóníu.[4]

Íþrótta tilkynning: Vinur okkar og kunningi Hans Gamper...fyrrum Svissneskur meistari, með áhuga á að skipulegja fótboltaleiki í borginni biður alla sem eru nægilega áhugasamir um íþróttina að mæta á skrifstofu blaðsins á þriðjudag eða fimmtudagskvöld klukkan 9 og 11 eftir hádegi.

— Auglýsing Gampers í Los Deportes.[4]

14. mars 1909 færði liðið sig í leikvanginn Camp de la Industria sem gat tekið við 8.000 manns. Á sama tímabili breytti félagið opinberu tungumáli sínu frá spænsku yfir á katalónsku og varð síðar mikilvægt tákn Katalóníu.[5]

Stjórnartímabil Rivera (1923–1957)[breyta | breyta frumkóða]

Þann 14. júní 1925 fór hreyfing sem var á móti stjórn Primo de Rivera konungsfjölskyldunnar og söng þjóðsöng Spánverja á leikvangi Barcelona. Hreyfingunni var refsað með því að loka leikvanginum og eigandi félagsins var þvingaður til að segja af sér.[6] 3. Júlí 1927 keppti félagið gegn Spænska landsliðinu. Leikurinn hófst eftir að boltanum hafði verið sleppt úr flugvél.[7]

Spænska borgarastyrjöldin hófst árið 1936 og leikmenn frá Barcelona og Athletic Bilbao börðust gegn uppgangi hersins. [8] 6. ágúst myrtu hermenn forseta félagsins, Josep Sunyol sem var jafnframt talsmaður sjálfstæðisflokks borgarinnar. Hans er minnst sem píslarvotts og atvikið skiptir miklu í sögu FC Barcelona og sjálfstæðisbaráttu Katalóníu.[9]

16. mars 1938 varð Barselóna fyrir loftárásum frá ítalska hernum í uppgangi fasismans í álfunni. Félaginu var skipað að breyta nafni sínu í Club de Fútbol Barcelona og að fjarlægja fána Katalóníu úr merki sínu.[10] 1952 vann félagið fimm mismunandi bikara; spænsku úrvalsdeildina, deildarbikarinn, Latin Cup, Copa Eva Durante og Copa Martini Rossi.

Club de Fútbol Barcelona (1957-1978)[breyta | breyta frumkóða]

Velgengninni frá 1952 var fylgt eftir árið 1959 þegar liðið vann tvennu og árið 1961 varð það fyrsta félagið til að sigra Real Madrid í Evrópukeppninni.[11] Þegar að valdatímabili Franco lauk árið 1974 skipti félagið aftur yfir í sitt gamla nafn.[12]

Stöðugleikaárin (1978-2000)[breyta | breyta frumkóða]

Frá 1978 hefur forseti Barselóna verið valinn af meðlimum félagsins og þessi ákvörðun er tengd lýðræðisvæðingu Spánar árið 1974 eftir einræði Franco. Ári síðar, 20. október 1979, var uppeldistarf félagsins eflt á sveitasetrinu La Masia.[13] La Masia var fyrir þennan tíma höfuðstöðvar félagsins. Josep Lluís Núñez var forseti félagsins í 22 ár. Hann leyfði leikmönnum eins og Diego Maradona, Romário og Ronaldo að yfirgefa félagið í stað þess að fara að kröfum þeirra. Núñez var ásakaður um einræðistilburði og kom til mótmæla gegn honum.

Árið 1988 setti Johan Cruyff saman hið svokallaða draumalið félagsins. Í liðinu var Pep Guardiola, José Mari Bakero, Txiki Begiristain, Ronald Koeman, Michael Laudrup, Romario og Hristo Stoichkov.[14] Barselóna vann úrvalsdeildina fjórum sinnum í röð með þessu liði frá 1991 til 1994.[15] En frá 1960 til 1990 hafði liðið einungis unnið tvo La Liga titla.

2000-2012 Tíð þjálfaraskipti og árangur Guardiola[breyta | breyta frumkóða]

Í byrjun nýrrar aldar gekk liðinu ekki nægilega vel og oft var skipt um þjálfara. Brasilíski Ronaldinho hleypti lífi í liðið ásamt öðrum alþjóðlegum leikmönnum eins og Deco, Henrik Larsson, Samuel Eto'o, Rafael Márquez og Edgar Davids. Heimamenn eins og Carles Puyol, Andrés Iniesta, Xavi og Víctor Valdés voru einnig stór þáttur í upprisu liðsins. Liðið vann La Liga og Supercopa de España tímabilin 2004–05 og 2005–06 þegar Frank Rijkaard var stjórinn. Næstu tímabil gengu ekki svo vel og var Rijkaard látinn taka pokann sinn. Ný stjarna var farin að láta að sér kveða; Lionel Messi.

Pep Guardiola fyrrum leikmaður félagsins var þjálfari liðsins frá 2008–2012. Spil með tíðar sendingar, þ.e. tiki-taka-bolti var áberandi með Xavi, Andrés Iniesta og Lionel Messi í aðalhlutverki. Thierry Henry og Eiður Smári Guðjohnsen (2006-2009) voru meðal sóknarmanna. Varnarjaxlinn Gerard Piqué hóf ferill sinn með liðinu 2008 og var hryggjarstykkið í vörninni í 14 ár.

Barcelona vann 2008–09 tímabilið í La Liga og burstaði meðal annars Real Madrid 2-6 og 5-0 árið eftir. Guardiola vann einnig næstu tvö tímabil á Spáni og einnig ýmsa bikartitla. Messi, Iniesta og Xavi voru í efstu þremur sætunum fyrir gullknöttinn 2010. Árið 2011 vann Barcelona Manchester United í Champions League 3–1 á Wembley. Guardiola vann 14 bikara á tíma sínum með klúbbnum.

2012-2021 Messi lætur að sér kveða[breyta | breyta frumkóða]

Tímabilið 2012-13 skoraði Messi 46 mörk í La Liga og Barcelona voru krýndir meistarar í 22. sinn þegar 4 umferðir voru eftir. En það tapaði í tveimur undanúrslitum stórkeppna; Copa del Rey (fyrir Real) og Meistaradeildarinnar (fyrir Bayern).

Árið 2014 kom Luis Suárez frá Liverpool FC. Við það myndaðist skætt sóknartríó: Messi, Suárez og hinn brasilíski Neymar, kallað MSN. 2014-2015 bann Barcelona þrefalt: La Liga, Copa del Rey og Champions League, MSN-tríóið skoraði alls 122 mörk í öllum keppnum sem var met.

Í apríl 2016 sló Barcelona met þegar það fór í gegnum 39 leiki ótapaða. En að lokum tapaði liðið fyrir Real Madrid. Liðið sló það 2018 þegar það tapaði ekki í 43 leikjum. MSN slógu líka eigið met og skoruðu 131 mark í öllum keppnum 2015-2016. Í Meistaradeildinni 2016–17 átti Barcelona allsvakalega endurkomu þegar liðið, sem hafði tapað 4-0 gegn Paris Saint-Germain, vann það 6–1 (alls 6–5).

Barcelona vann sinn 26. titil á Spáni 2018-2019. En í meistaradeildinni tapaði liðið fyrir Liverpool sem átti 4-0 endurkomu á Anfield en Barcelona vann 3-0 í fyrri leiknum. Árið eftir var liðið niðurlægt 2–8 af Bayern München í sömu keppni.

Josep Maria Bartomeu, forseti félagsins sagði af sér haustið 2020 en hann hafði m.a. eldað grátt silfur við Messi sem íhugaði að rifta samning sínum við félagið. Frestun tímabils var vegna Covid-19 og var sá skilningur Bartomeu að samningur Messi lengdist en Messi taldi hann hafa runnið út eftir sumarið. Svo fór að Messi hélt kyrru en hann vildi ekki fara í málaferli við félagið.

Ronald Koeman fyrrum leikmaður félagsins, tók við félaginu 2020. Hann vann sinn fyrsta titil, Copa del Rey vorið 2021, þegar Barcelona vann Atletico Bilbao 4-0. Messi var með tvennu í leiknum.

Fjárhagslegt hrun og enduruppbygging frá 2021[breyta | breyta frumkóða]

Svo fór loks að Barcelona tókst ekki að halda í Messi vegna slaks fjárhags félagsins og reglna La Liga, síðsumars 2021. Félagið þurfti einnig að lána Antoine Griezmann til Atletico Madrid. Leikmenn eins og Gerard Piqué tóku á sig launalækkun. Skuldir félagsins voru orðnar 1,35 milljón evrur staðfesti forseti þess Joan Laporta. Hann gagnrýndi fyrrum forseta félagsins Josep Bartomeu fyrir ósannindi og skort á gagnsæi. [16]

Nýir leikmenn voru komnir eins og Memphis Depay og Sergio Agüero. Koeman var rekinn um haustið 2021 eftir slakt gengi liðsins. Við tók Xavi, fyrrum leikmaður liðsins (1998-2015). Í byrjun árs var ljóst að Agüero gat ekki haldið áfram vegna hjartavandamála og lagði hann skóna á hilluna. Liðið sótti þá sóknarmennina Ferran Torres, Adama Traoré og Pierre-Emerick Aubameyang. Barcelona náði 2. sæti tímabilið 2021-2022 í deildinni þrátt fyrir að vera með lægsta stigafjölda sinn í deildinni síðan 2008.[17]

Fyrir tímabilið 2022-2023 styrkti Barcelona svo enn sóknarlínuna með kaupum á Raphinha frá Leeds United og pólska markahróknum Robert Lewandowski.

Titlar[breyta | breyta frumkóða]

Innanlands[breyta | breyta frumkóða]

  • La Liga: (26)
    • 1929, 1945, 1948, 1949, 1952, 1953, 1959, 1960, 1974, 1985, 1991, 1992, 1993, 1994, 1998, 1999, 2005, 2006, 2009, 2010, 2011, 2013, 2015, 2016, 2018, 2019
  • Copa del Rey: (30)
    • 1910, 1912, 1913, 1920, 1922, 1925, 1926, 1928, 1942, 1951, 1952, 1953, 1957, 1959, 1963, 1968, 1971, 1978, 1981, 1983, 1988, 1990, 1997, 1998, 2009, 2012, 2015, 2016, 2017, 2018, 2021
  • Spænski ofurbikarinn: (14)
    • 1983, 1991, 1992, 1994, 1996, 2005, 2006, 2009, 2010, 2011, 2013, 2016, 2018, 2023
  • Spænski deildabikarinn: (2)
    • 1982, 1986

Alþjóðlegir titlar[breyta | breyta frumkóða]

  • Meistarar meistaranna: (4)
    • 1979, 1982, 1989, 1997
  • HM félagsliða: (3)
    • 2009, 2011, 2015

Forsetar[breyta | breyta frumkóða]

  • Walter Wild (1899–1901)
  • Bartomeu Terradas (1901–1902)
  • Paul Hass (1902–1903)
  • Arthur Witty (1903–1905)
  • Josep Soler (1905–1906)
  • Juli Marial (1906–1908)
  • Vicenç Reig (1908)
  • Hans Gamper (1908–1909)
  • Otto Gmelin (1909–1910)
  • Hans Gamper (1910–1913)
  • Francesc Moxo (1913–1914)
  • Alvar Presta (1914)
  • Joaquim Peris de Vargas (1914–1915)
  • Rafael Llopart (1915–1916)
  • Gaspar Rosés (1916–1917)
  • Hans Gamper (1917–1919)
  • Ricard Graells (1919–1920)
  • Gaspar Rosés (1920–1921)
  • Hans Gamper (1921–1923)
  • Eric Cardona (1923–1924)
  • Hans Gamper (1924–1925)
  • Arcadi Balaguer (1925–1929)
  • Tomás Rosés (1929–1930)
  • Gaspar Rosés (1930–1931)
  • Antoni Oliver (1931)
  • Joan Coma (1931–1934)
  • Esteve Sala (1934–1935)
  • Josep Sunyol (1935–1936)
  • Komité (1936–1939)
  • Joan Soler (1939–1940)
  • Enrique Piñeyro Queralt (1940–1942)
  • Josep Vidal-Ribas (1942)
  • Enrique Piñeyro Queralt (1942–1943)
  • Josep Antoni Albert (1943)
  • Josep Vendrell (1943–1946)
  • Agustí Montal Galobart (1946–1952)
  • Enric Martí Carreto (1952–1953)
  • Francesc Miró-Sans (1953–1961)
  • Enric Llaudet (1961–1968)
  • Narcís de Carreras (1968–1969)
  • Agustí Montal Costa (1969–1977)
  • Josep Lluís Núñez (1978–2000)
  • Joan Gaspart (2000–2003)
  • Enric Reyna (2003)
  • Joan Laporta (2003–2010)
  • Sandro Rosell (2010-2014)
  • Josep Maria Bartomeu (2014-2020)
  • Joan Laporta (2021-)

Tölfræði[breyta | breyta frumkóða]

Uppfært 6/11 2021

Markahæstu menn[breyta | breyta frumkóða]

Sæti Leikmadur Mörk Ár
1. Fáni ArgentínuLionel Messi 672 2004-2021
2. Fáni SpánarCésar Rodríguez 232 1942-1955
3. Fáni ÚrúgvæLuis Suárez 198 2014-2020
4. Fáni UngverjalandsLászló Kubala 194 1950-1961
5. Fáni SpánarJosep Samitier 184 1919-1032
6. Fáni SpánarJosep Escolà 167 1934-1949
7. Fáni FillipseyjaPaulino Alcántara 143 1912-1927
8. Fáni KamerúnSamuel Eto'o 130 2004-2009
9. Fáni BrasilíuRivaldo 130 1997-2002
10. Fáni SpánarMariano Martín 128 1940-1948

Flestir leikir[breyta | breyta frumkóða]

Sæti Leikmadur Staða Leikir Ár
1. Fáni ArgentínuLionel Messi FW 778 2004-2021
2. Fáni SpánarXavi MF 767 1998-2015
3. Fáni SpánarAndrés Iniesta MF 674 2002-2018
4. Fáni SpánarSergio Busquets MF 644 2008-
5. Fáni SpánarCarles Puyol DF 593 1999-2014
6. Fáni SpánarGerard Piqué DF 579 2008-
7. Fáni SpánarMigueli DF 549 1973-1989
8. Fáni SpánarVíctor Valdés GK 535 2002-2014
9. Fáni SpánarCarles Rexach MF 449 1965-1981
10. Fáni SpánarGuillermo Amor MF 421 1988-1998

Þekktir leikmenn[breyta | breyta frumkóða]

Leikmaður Ár
Fáni SpánarGerard Piqué 2008-2022
Fáni ArgentínuLionel Messi 2004-2021
Fáni ArgentínuDiego Maradona 1982-1984
Fáni SpánarXavi 1998-2015
Fáni SpánarAndrés Iniesta 2002-2018
Fáni SpánarCarles Puyol 1999-2014
Fáni SpánarVíctor Valdés 2002-2014
Fáni BrasilíuNeymar 2013-2017
Fáni BrasilíuRonaldinho 2003-2008
Fáni BrasilíuRonaldo 1996-1997
Fáni BrasilíuRivaldo 1997-2000
Fáni BrasilíuRomário 1993-1995
Fáni ÚrúgvæLuis Suárez 2014-2020
Fáni PortúgalsDeco 2004-2008
Fáni PortúgalsLuis Figo 1995-2000
Fáni KamerúnSamuel Eto'o 2004-2009
Fáni HollandsJohan Cruyff 1973-1978
Fáni HollandsRonald Koeman 1989-1995
Fáni KróatíuIvan Rakitic 2014-2020
Fáni DanmerkurMichael Laudrup 1989-1994
Fáni FílabeinsstrandarinnarYaya Toure 2007-2010
Fáni BúlgaríuHristo Stoichkov 1990-1998
Fáni UngverjalandsLászló Kubala 1951-1961
Fáni RúmeníuGheorghe Hagi 1994-1996
Fáni ÞýskalandsBernd Schuster 1980-1988
Fáni EnglandsGary Lineker 1986-1989

Uppeldisstarf La Masia[breyta | breyta frumkóða]

La Masia, er dæmigert katalónskt bóndabýli, og hefur sinnt hlutverki fyrir uppeldisstarf akademíunar..
Andrés Iniesta, er einn af mörgum leikmönnum sem koma úr uppeldisstarfi FC Barcelona, hann lék sinn fyrsta leik með félaginu árið 2003 og var einn af mikilvægustu leikmönnum FC Barcelona og spænska landsliðsins.
Cesc Fàbregas í leik með FC Barcelona 15 ágúst árið 2011.

FC Barcelona hefur lagt mikla áherslu á uppeldisstarf sitt í La Masia, þar hafa margir af bestu leikmönnum heims tekið sín fyrstu skref síðan það hófst árið 1979,[18] í spænska landsliðinu sem vann HM 2018 voru 9 leikmanna liðsins aldir upp í akademíu La Masia.

Landsliðsmenn sem ólust upp í La Masia:

Nafn Landsleikir (mörk) Landslið
Lionel Andrés Messi 142 (71) Fáni Argentína
Xavier Hernández i Creus 133 (13) Fáni Spánn
Andrés Iniesta Luján 131 (14) Fáni Spánn
Sergio Busquets i Burgos 121 (2) Fáni Spánn
Francesc Fàbregas i Soler 110 (15) Fáni Spánn
Giovani dos Santos Ramírez 106 (19) Fáni Mexíkó
Gerard Piqué i Bernabeu 102 (5) Fáni Spánn
Carles Puyol i Saforcada 100 (3) Fáni Spánn
Jordi Alba i Ramos 71 (8) Fáni Spánn
Pedro Rodríguez Ledesma 65 (17) Fáni Spánn
Sergi Barjuan i Esclusa 56 (1) Fáni Spánn
Josep Guardiola i Sala 47 Fáni Spánn
Jonathan dos Santos Ramírez 45 (3) Fáni Mexíkó
Thiago Alcántara do Nascimento 40 (2) Fáni Spánn
Guillermo Amor Martínez 37 (4) Fáni Spánn
José Manuel Reina Páez 36 Fáni Spánn
Albert Ferrer i Llopis 36 Fáni Spánn
Francisco José Carrasco Hidalgo 35 (5) Fáni Spánn
Thiago Motta 30 (1) Fáni Ítalíu Ítalía
Víctor Valdés i Arribas 20 Fáni Spánn
Ramon Maria Calderé i Rey 18 (7) Fáni Spánn
Luis Javier García Sanz 18 (4) Fáni Spánn
Albert Luque i Martos 18 (2) Fáni Spánn
Carles Rexach i Cerdà 15 (2) Fáni Spánn
Marc Bartra i Aregall 14 Fáni Spánn
Sergi Roberto Carnicer 10 (1) Fáni Spánn
Johan Jordi Cruijff 9 (1) Fáni Holland
Gerard López Segú 6 (2) Fáni Spánn
Cristóbal Parralo Aguilera 6 Fáni Spánn
Javier Moreno Varela 5 (1) Fáni Spánn
Iván de la Peña López 5 Fáni Spánn
Ansu Fati 4 (1) Fáni Spánn
Jeffrén Isaac Suárez Bermúdez 4 Fáni Venesúela
Albert Celades i López 4 Fáni Spánn
Gabriel Garcia de la Torre 3 Fáni Spánn
Francisco Joaquín Pérez Rufete 3 Fáni Spánn
Luis Milla Aspas 3 Fáni Spánn
Rafael Alcântara do Nascimento 2 Fáni Braselíu Brasilía
Sergio García de la Fuente 2 Fáni Spánn
Fernando Navarro Corbacho 2 Fáni Spánn
Bojan Krkić i Pérez 1 Fáni Spánn
Gai Yigaal Assulin 1 Fáni Ísrael
Haruna Babangida 1 Fáni Nígería

Heimildir[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. - “Catalunya is a nation and FC Barcelona its army.” Sir Bobby Robson
  2. Unthinkable? Supporter-owned football clubs
  3. Manchester United og FC Barcelona styrkja UNICEF[óvirkur tengill]
  4. 4,0 4,1 Ball, Phil p. 89.
  5. List of cup finals
  6. Burns, Jimmy. pp. 111–112.
  7. History part II Geymt 2012-05-30 í Archive.today FC Barcelona
  8. Ball, Phil. pp. 116–117.
  9. Raguer, Hilari. pp. 232–233.
  10. Karel Stokkermans. „European Champions' Cup“. Rec.Sport.Soccer Statistics Foundation (RSSSF).
  11. European Champions Cup
  12. The crest Geymt 2012-05-30 í Archive.today FC Barcelona
  13. "La Masia, como un laboratorio" (spænska)
  14. Ball, Phil. pp. 106–107.
  15. Hounours FC Barcelona
  16. 'The financial and economic situation is dramatic and very worrying' fcbarcelona.com, sótt 1. sept. 2021
  17. BBC News - Barcelona 0-2 Villarreal: Barca end on lowest La Liga points haul since 2008BBC, sótt 23. maí 2022
  18. "La Masia history". Geymt 2015-05-28 í Wayback Machine Snið:Wayback fcbarcelona.com. Läst 19 juli 2015. Snið:En