Fara í innihald

Þriðja ríkið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Þýskaland nasismans)
Þýska ríkið
Deutsches Reich
Fáni Þýskalands Skjaldarmerki Þýskalands
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:

Das Lied der Deutschen
(„Söngur Þjóðverjanna“)
Horst-Wessel-Lied[a]
(„Horst Wessel-söngurinn“)
Staðsetning Þýskalands
Höfuðborg Berlín
Opinbert tungumál Þýska
Stjórnarfar Einingarríki, flokksræði, alræði, fasískt einræði

Þjóðhöfðingi Paul von Hindenburg[b] (1933–1934)
Adolf Hitler[c] (1934-1945)
Karl Dönitz[b] (1945)
Kanslari Adolf Hitler (1933-1945)
Joseph Goebbels[d] (1945)
Lutz Schwerin von Krosigk[e] (1945)
Saga
 • Valdataka nasista 30. janúar 1933 
 • Neyðarlög virkjuð 23. mars 1933 
 • Nürnberg-lögin 15. september 1935 
 • Anschluss 12./13. mars 1938 
 • Innrásin í Pólland 1. september 1939 
 • Dauði Hitlers 30. apríl 1945 
 • Fall Berlínar 2. maí 1945 
 • Uppgjöf 8. maí 1945 
 • Flensborgarstjórnin handtekin 23. maí 1945 
 • Berlínaryfirlýsingin 5. júní 1945 
Flatarmál
 • Samtals

633.786 km²
Gjaldmiðill Mark
Ekið er Hægra megin

Þriðja ríkið (stundum kallað Þýskaland Hitlers) var Þýskaland undir flokksræði nasista og leiðtoga þeirra Adolfs Hitlers 1933 til 1945. „Þriðja“ vísar til þess að Þýska keisaradæmið var „annað ríkið“ og hið Heilaga rómverska ríki „fyrsta ríkið“.

Undir stjórn nasista rak Þýskaland útþenslustefnu í nafni kenningarinnar um landrými (Lebensraum) og ofsótti Gyðinga og önnur þjóðarbrot innan ríkisins á grundvelli hugmynda um arískan uppruna Þjóðverja og nauðsyn þess að viðhalda eða endurheimta „hreinleika“ kynþáttarins. Í nafni þessara hugsjóna stunduðu Þjóðverjar árásargjarna utanríkisstefnu og lögðu nágrannalönd sín undir sig með hervaldi á fyrstu árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Bæði í Þýskalandi og hinum hernumdu löndum var stunduð skipuleg einangrun og fjöldamorð á gyðingum, sígaunum, stríðsföngum, fötluðum, samkynhneigðum og fleiri hópum sem taldir voru ógnun við hinn aríska kynþátt. Morð á gyðingum voru svo víðtæk, kerfisbundin og skilvirk að þau eru nefnd helförin.

Þriðja ríkið náði hátindi sínum á fyrstu árum styrjaldarinnar og Þýskaland varð stórveldi í Evrópu um 1940. Eftir ósigur Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni var Þýskaland og stór hluti Evrópu í rúst og landinu var skipt í tvö ríki: Vestur-Þýskaland og Austur-Þýskaland, sem saman náðu yfir mun minna landsvæði en Þýskaland gerði fyrir styrjöldina. Prússland leið formlega undir lok sem sérstakt fylki. Þýsku ríkin tvö sameinuðust svo á ný árið 1990.

Opinbert heiti ríkisins var „þýska ríkið“ (þýska: Deutsches Reich) og seinna „stórþýska ríkið“ (Großdeutsches Reich) eftir 1943. Nasistar töluðu gjarnan um „þúsund ára ríkið“ (Tausendjähriges Reich)[1] eða „þriðja ríkið“ (Drittes Reich). Síðastnefnda heitið kemur upphaflega úr bók eftir Arthur Moeller van den Bruck frá 1923,[2] þar sem Heilaga rómverska ríkið (962–1806) er kallað „fyrsta ríkið“ og Þýska keisaradæmið (1871–1918) „annað ríkið“.[3]

Á íslensku hefur ríkið oft verið nefnt Þýskaland nasismans eða Þýskaland Hitlers.

Neðanmálsgreinar

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Þann 12. júlí 1933 skipaði innanríkisráðherrann Wilhelm Frick að lagið Horst-Wessel-Lied skyldi ávallt spilað á eftir þjóðsöngnum, „Das Lied der Deutschen“, betur þekktum sem Deutschland Über Alles. Tümmler 2010, bls. 63
  2. 2,0 2,1 sem ríkisforseti
  3. sem foringi og ríkiskanslari (Führer und Reichskanzler)
  4. De jure frá 30. apríl til 1. maí.
  5. De jure frá 2. maí til 23. maí.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Shirer, William L. (1960). The Rise and Fall of the Third Reich. New York: Simon & Schuster. ISBN 978-0-671-62420-0.
  2. Butzer, Hermann (2003). „Das "Dritte Reich" im Dritten Reich: Der Topos "Drittes Reich" in der nationalsozialistischen Ideologie und Staatslehre“. Der Staat (þýska). 42 (4/2003): 600–627. JSTOR 43643554. Sótt 5. júní 2023.
  3. Lauryssens, Stan (1999). The Man Who Invented the Third Reich: The Life and Times of Arthur Moeller van den Bruck. Stroud: Sutton. ISBN 978-0-7509-1866-4.
  Þessi sögugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.