Íslandshreyfingin
Íslandshreyfingin – lifandi land var íslenskur stjórnmálaflokkur, stofnaður vorið 2007, sem lagði höfuðáherslu á umhverfisvernd en kenndi sig einnig við frjálslyndisstefnu. Formaður (til bráðabirgða) var Ómar Ragnarsson og varaformaður Margrét Sverrisdóttir. Að flokknum kom einnig Jakob Frímann Magnússon og Ósk Vilhjálmsdóttir. Flokkurinn fékk 5.953 atkvæði, 3,3% fylgi, í Alþingiskosningum 2007 og engan mann kjörinn. Flokkurinn var á fyrri hluta árs 2009 sameinaður Samfylkingunni þar sem flokkurinn taldi að erfitt yrði að ná yfir 5% múrinn sem flokkar verða að ná í kosningum til að fá jöfnunarmann. Íslandshreyfingin gekk inn í Samfylkinguna í mars 2009, nokkrum dögum eftir að tilkynnt hafði verið um framboð hreyfingarinnar í öllum kjördæmum. Íslandshreyfingin varð þar með fimmti flokkurinn sem hefur gengið í Samfylkinguna. [1][2][3][4][5][6][7]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Íslandshreyfingin hluti Samfylkingar“. 27. mars 2009. Sótt 8. apríll 2009.
- ↑ „Nýtt þingframboð fær I enn ekki Í“. 20. mars 2007. Sótt 21. mars 2007.
- ↑ „Nafnið skýrist fljótlega“. 12. mars 2007. Sótt 21. mars 2007.
- ↑ „Býður fram á landsvísu“. 21. mars 2007. Sótt 21. mars 2007.
- ↑ „Ómar verður formaður Íslandshreyfingarinnar“. 22. mars 2007. Sótt 22. mars 2007.
- ↑ „Íslandshreyfingin ekki þjóðrembuflokkur“. 22. mars 2007. Sótt 22. mars 2007.
- ↑ „Umhverfismál, hagstjórn og nýsköpun hjá Íslandshreyfingunni“. 22. mars 2007. Sótt 22. mars 2007.