Nokia
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Nokia | |
Rekstrarform | Hlutafélag |
---|---|
Stofnað | Tampere, Finnlandi (1865) |
Staðsetning | Karamalmi, Espoo, Finnlandi |
Starfsemi | Farsímar og önnur fjarskiptatæki |
Vefsíða | www.nokia.com |
Nokia er finnskt fyrirtæki sem var leiðandi í heimi fjarskipta og farsíma á alþjóðamarkaði.[1]
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Saga Nokia spannar tæpa eina og hálfa öld. Hún hófst árið 1865 með pappírsmyllu, í eigu Fredrik Idestam, við flúðir Tammerkoski árinnar í suðurhluta Finnlands. Nokkrum árum síðar bætti hann annarri myllu við bakka Nokianvirta árinnar, en þaðan dregur Nokia nafn sitt.[2]
Árið 1898 stofnuðu nokkrir finnskir viðskiptamenn fyrirtækið Suomen Gummitehdas Oy (Finnish Rubber Works Ltd. á ensku) í Helsinki. Innan nokkurra ára var fyrirtækið farið að framleiða hágæða gúmmístígvél sem reyndust vera samkeppnishæf við innflutt stígvél frá Rússlandi. Er framleiðslan jókst var ákveðið að færa framleiðsluna til borgarinnar Nokia og fljótlega fóru menn að leggja áherslu á Nokia nafnið. Ekki leið á löngu áður en Nokia nafnið tók að festast við gúmmívörurnar sem enn eru framleiddar undir nafninu „Nokian Footwear“. [3]
Árið 1967 varð langþráður samruni að veruleika þegar Suomen Gummitehdas Oy, sem höfðu þá breytt nafninu sínu í Suomen Kumitehdas Oy, og finnska fjarskiptafyrirtækið Suomen Kaapelitehdas Oy sameinuðust pappírsiðnaðar- og orkufyrirtækinu Oy Nokia AB og til varð Nokia Corporation. Á 10. áratug síðustu aldar var fjöldi ódýrra innfluttra staðkvæmdarvara orðinn mikill og stóð finnski hágæðaiðnaðurinn því höllum fæti og var Nokia Corporation því skipt upp aftur líkt og fyrir samrunann og fyrirtækin ákváðu að einblína aðeins á sínar eigin vörur. Móðurfélagið, Nokia, hélt áfram í ferð sinni að verða leiðandi á fjarskiptamarkaði og er eitt stærsta fyrirtæki í heiminum í dag.[4]
Höfuðstöðvar Nokia eru í Keilaniemi í Espoo í Finnlandi. Árið 1910 varð Nokia nærri gjaldþrota eftir fyrri heimstyrjöldina. Verner Weckman, fyrsti Finninn sem vann til gullverðlauna á Ólympíuleikum, varð síðar framkvæmdarstjóri fyrirtækisins eftir að hafa verið tæknimaður hjá fyrirtækinu í sextán ár. Á níunda áratugnum lenti Nokia í miklum fjárhagslegum erfiðleikum aðallega vegna tölvudeildar þeirra. Þetta leiddi til þess að að framkvæmdarstjórinn Kari Kairamo framdi sjálfsvíg árið 1988. Eftir það tók Simo Vuorilehto við starfinu og þurfti hann að takast á við þau áhrif sem kreppan, sem skók Finnland árin 1990–1993, hafði á Nokia sem og önnur fyrirtæki.
Árið 1987 kynnti Nokia fyrsta símann sem komst fyrir í hendi og bar hann nafnið Mobira Cityman 900 og vóg ekki nema 800 grömm. Þessi sími fékk mikla umfjöllun árið 1987 þegar Mikhail Gorbachev var myndaður við að nota þennan síma til að hringja frá Helsinki til Moskvu og fékk síminn þá nafnið „Gorba“.[5]
Í lok áttunda áratugarins vann Nokia nýja stefnumótun og í framhaldi af því á árunum 1989 til 1996 seldu stjórnendur þann hluta rekstursins sem ekki var tengdur fjarskiptamarkaðnum. Fyrirtækið sá tækifæri í þróun á stafrænum búnaði þar sem aukin eftirspurn var eftir tækjum með fjölbreytta notkunareiginleika. Notendur vilja vera óháðir tíma og rúmi og Nokia einsetur sér að koma til móts við þarfir neytenda með lausnum sem hæfa hverju sinni.[6]
Fyrirtækinu er skipt í nokkrar deildir. Device & Services deildin var stofnuð 2008 til að auka skilvirkni í þróunarvinnu tækja og þjónustu þannig að tækifæri til vaxtar í samkeppnisumhverfu séu sem best nýtt.[7] NAVTEQ er dótturfyrirtæki staðsett í Chicago sem varð að fullu í eigu Nokia 2008 við yfirtöku, er rekið sem sjálfstæð eining og vinnur að þróun í stafrænum kortum fyrir gps og annan hátæknibúnað fyrir fyrirtæki og ríki. Meðal viðskiptavina eru m.a. Microsoft, Yahoo!, BMW, Chrysler, Jeep, Mini, Garmin, Mitsubishi Electric, Magellan og Motorola.[8]
Árið 2007 varð til Nokia Siemens Networks með samvinnu Nokia og Siemens. Fyrirtækið er það stærsta í heiminum í dag sem hannar lausnir fyrir fyrirtæki og einstaklinga á fjarskiptamarkaði.[9]
Árið 2002 setti Nokia fyrsta 3G símann á markað, Nokia 6650. Í lok ársins 2007 hafði Nokia selt 440 milljónir síma sem er 40% af öllum símum sem hafa verið seldir í heiminum. Frá árunum 1996 til 2001 fimmfaldaðist gróði Nokia úr 6.5 milljörðum evra í 31 milljarð evra. Í dag er Nokia fimmta verðmætasta vörumerkið í heiminum og á nú níu símaverksmiðjur, þrjár í Evrópu, þrjár í Asíu og þrjár í Bandaríkjunum.[10]
Fyrirtækjamenning
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirtækjamenning Nokia er ein af mikilvægum og samkeppnishæfum yfirburðum sem þeir hafa. Meira að segja slagorð fyrirtækisins, „Connecting People“ (eða „tengjum fólk“) er táknræn fyrir menninguna.[11] Gildi Nokia voru, allt þar til í maí 2007: ánægja viðskiptavinarins, virðing, framkvæmd og endurnýjun. Þá endurskoðaði fyrirtækið gildi sín með það að markmiði að finna hver raunveruleg gildi Nokia væru og starfsmennirnir komust að því að þau væru „Engaging You“ (sem hægt er að útleggja sem „tengjum þig“), „Achieving Together“ (eða „náum árangri saman“), „Passion for Innovation“ (eða „ástríða fyrir nýsköpun“) og „Very Human“ (eða „afar mannleg“).[12]
Nýju gildin endurspegla breytingar í viðskiptaumhverfinu og vinnulagi fyrirtækisins. Þær endurspegla einnig þá skuldbindingu Nokia að bjóða upp á fjölbreytta vinnuaðstöðu þar sem allir starfsmenn geta átt möguleika á að vaxa í starfi. Auk þess eru starfsmenn hvattir til að leita leiða til að þroska sjálfa sig, starfshæfni sína og vera í framlínu tækniþróunar.[13]
Nokia sem vinnuveitandi
[breyta | breyta frumkóða]Starfsmannafjöldi í mars 2009 var 124.842 samanborið við 116.378 á sama tíma ári fyrr. Meðalfjöldi starfsmanna í Nokia Siemens Networks var 60.543 í mars 2009 en 60.391 ári áður.[14]
Fyrirtækið ræður um 1000 manns á mánuði og meðalaldur hvers starfsmanns er lítið eitt yfir 30 ára og meðal starfsævi þeirra innan fyrirtækisins er rétt undir þremur árum. Meira en helmingur starfsmanna vinnur utan Finnlands og telur Erkki Ormalla, framkvæmdastjóri tæknistefnu Nokia, það vera bestu leiðina til að keppa í hröðu og alþjóðavæddu efnahagskerfi; að draga úr miðstýringu aðgerða og treysta á framtakssemi og hæfni innfæddra.[15]
Nokia skilur mikilvægi þess að hagræða vinnu og persónulegum áhugamálum og býður því upp á stuðning fyrir starfsmenn til að halda jafnvægi í starfi og einkalífi.[16]
Einn hluti af menningunni er að hvaða starfsmaður sem er á lægri stigum getur haft samband við yfirstjórnendur, alla leið upp í framkvæmdastjórann. Ef forstjórinn skyldi ekki svara þá hefur starfsmaðurinn leyfi til að fylgja sínu eigin frumkvæði og þar með taka ákvörðun.[17]
Nokia og samfélagið
[breyta | breyta frumkóða]Nokia skuldbindur sig grænu, heilbrigðu og öruggu umhverfi og telur að góðir viðskiptahættir og samfélagsleg ábyrgð fari saman hönd í hönd.
Nokkur dæmi um viðleitni þeirra í þá átt:
- Minnka áhrif á loftlagsbreytingar: Þeir nota nú 25% af grænni orku í allri aðstöðu hjá Nokia og áætla að nota græna orku fyrir 50% af orkuþörf þeirra um heiminn fyrir 2010.
- Framleiða svokallaðar grænar vörur og pakkningar: 65-80% af farsímum Nokia eru endurvinnanlegir og notkun plasts fyrir aukahluti hefur verið minnkuð um 60%.
- Spara orku: Síðustu níu ár hefur Nokia minnkað notkun á orku, sem notuð er þegar símar eru fullhlaðnir, um 90%; þar sem að það er sóun á orku að hafa símtæki enn í hleðslu þegar tækið hefur verið fullhlaðið.[18]
Nokia hefur einnig ýmsar áætlanir til að skapa jákvæð áhrif á samfélagið. Dæmi um það eru:
- Þátttaka ungmenna: Nokia styður starfsemi, sem framkallar sjálfstraust, hópvinnu- og leiðtogahæfni á meðal ungmenna, í 40 löndum sem eiga erfitt uppdráttar. Sem dæmi má nefna að Nokia gaf ungmennum í San Francisco tækifæri til sjálfstjáningar og -uppgötvunar í gegnum vídeóframleiðslu.
- Félagsleg þróun: Árið 2007 hleypti Nokia af stokkunum nýrri wiki-vefsíðu, ShareIdeas.org í samstarfi við Vodafone - til að hvetja fólk til að deila hugmyndum um leiðir til að nota samskiptaleiðir farsíma til að takast á við félagslegar og umhverfislegar áskoranir.
- Sjálfboðastarf: Starfsmenn mega taka 1 til 2 vinnudaga á ári til að sinna sjálfboðavinnu í samfélaginu og gefa til málstaðar sem stendur þeim nærri.
- Samvinna við háskóla Nokia eru duglegir að kanna og tengjast opinni nýsköpun í gegnum vandlega valdar rannsóknir í samstarfi við marga háskóla og stofnanir. Þeir gera það með því að deila auðlindum og hagnýtum hugmyndum.[19]
Helstu núverandi samstarfsaðilar eru til að mynda tækniháskólinn í Helsinki og tækniháskólinn í Tampere í Finnlandi. Cambridge-háskóli í Bretlandi, Massachusetts Institute of Technology, Háskólinn í Kaliforníu (Berkeley) og Stanford-háskóli í Bandaríkjunum.[20]
Symbian var stofnað 2008 og er í eigu nokkurra stærstu framleiðenda á fjarskiptamarkaði svo sem Nokia, Sony Ericsson, Motorola, NTT DOCOMO, AT&T, LG, Samsung, Vodafone, STMicroelectronics, og Texas Instruments. Symbian er enn í þróun en er ætlað að verða í framtíðinni opið kerfi. Kerfið er hugsað sem samvinnuverkefni og stofnað hefur verið til samfélags á internetinu þar sem þróunarvinnan mun fara fram m.a. í gegnum Symbian Beta Website Program þar sem meðlimir geti skipst á upplýsingum í gegnum spjallsíður eins og Wikipedia. En tilgangurinn er að flýta fyrir þróun á sviði fjarskiptabúnaðar og að vinnan sem skilað sé verði til góðs fyrir samfélagið í heild.[21]
Markaðssetning
[breyta | breyta frumkóða]Alger sprenging varð á farsímamarkaðnum árin 1990-2000 sem skaut Nokia upp á stjörnuhimininn en fyrirtækið er stærsta fyrirtæki Finnlands og framleiðsla þess nemur nærri fimmtungi af heildarútflutningi landsins. Farsímar fyrirtækisins eru seldir í 130 löndum víðs vegar um heiminn og starfsmenn eru um 125.000. Fyrirtækið varð fyrir tímabundnu bakslagi árið 2004 þegar samkeppnisaðilar þeirra komu með stílhreinni síma á markað sem varð til þess að markaðshlutdeild Nokia beið hnekki. Síðan þá hefur fyrirtækið náð sér á strik og árið 2008 voru fjórir af hverjum tíu seldum farsímum frá Nokia. Sölutölur hafa þó farið sífellt lækkandi síðan 2005 í Bandaríkjunum en þar hefur markaðssetning fyrirtækisins skilað minnstum árangri. Þrátt fyrir framfarir í margmiðlun hafa þeir verið seinir að taka við sér og keppa við BlackBerry og iPhone símana.[22]
Til að viðhalda yfirburðum í samkeppni þarf sífellt að vinna að nýsköpun og árið 2008 var opnuð tíunda „Nokia Flagship Store“ stórverslunin. Þær eru nú í Helsinki, London, London Heathrow-flugvöllur, São Paulo, Chicago, New York, Mexíkóborg, Moskvu, Shanghai og Hong Kong. Í þeim er hægt að sjá og prófa að eigin raun hvernig nýjustu tækin virka og hvað nýjasta tækni býður uppá hverju sinni með leiðsögn sérþjálfaðs starfsfólks. Nokia Music er vefverslun þar sem hægt er að kaupa og niðurhala tónlist í gegnum tölvu. Enn sem komið er þjónustan til staðar í 15 löndum, þar á meðal í Finnlandi, Ástralíu, Singapúr, Ítalíu, Frakklandi, Sviss, Írlandi, Hollandi, Austurríki, Mexíkó, Spáni, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Svíþjóð, Þýskalandi og Bretlandi.[23]
Samkeppni og nafnabreytingar
[breyta | breyta frumkóða]Farsímar og aukahlutir frá fyrirtækinu Nokia eru meðal þeirra bestu á markaðnum en þó markaðssetning þeirra sé frumleg og veki athygli, hefur hún ekki skilað sér í nægilegri söluaukningu. Markaðssetning samkeppnisaðila þeirra svo sem Motorola og Samsung hefur skilað betri árangri og markaðshlutdeild Nokia því farið minnkandi. Þar sem sölutölur á farsímum fyrirtækisins hafa minnkað allverulega á undanförnum árum ákvað fyrirtækið að setja allt sitt púður í að markaðssetja nýju næstu kynslóðar farsímana og vonast til að með þeim geti þeir lokkað aftur til sín gamla viðskiptavini.
Fyrirtækið hefur frá upphafi nefnt farsíma sína eftir tölum sem virtist ekki koma að sök í upphafi en nú þar sem samkeppnin er orðin mun meiri og neytendum stendur til boða ógrynni mismunandi farsíma virðist það skila betri árangri að nefna þá eftirminnilegum nöfnum líkt og Motorola hefur gert. Neytendur laðast fremur að nöfnum sem gefa til kynna hvaða eiginleikum síminn er gæddur og sést greinilega á vinsældum Motorola símans RAZR sem selst eins og heitar lummur, en útlit hans þykir svipa til rakvéla. Þrátt fyrir að Nokia auglýsi meira en Motorola, hafa sölutölur þeirra farið í öfuga átt en það má að stórum hluta skrifa á nafngiftir símanna. Nöfn tolla einfaldlega mun betur í minni en töluheiti og því þarf Motorola ekki að auglýsa eins mikið. IPhone er gott dæmi um árangursríka markaðssetningu síma, en Apple komust hjá því að eyða háum fjárhæðum í auglýsingar með því að gefa símanum eftirminnilegt nafn, leka myndum og tæknilegum upplýsingum á netið áður en hann kom á markað sem varð til þess að IPhone varð einn eftirsóttasti síminn á markaðnum.
Fyrirtækið gaf út í fjölmiðlum árið 2008 að þeir ætluðu að fylgja frumkvæði Motorola og byrja að gefa farsímum sínum nöfn í stað númera, en það hafa þeir þegar gert með nýju Nseries og Eseries farsímunum. Þessi nafnabreyting ein og sér virðist hafa verið nóg til að koma Nokia aftur á kortið og því hafa þeir ákveðið að gefa næstu kynslóðar símunum einnig nöfn í stað númera.[24]
Verðlaun fyrir markaðssetningu
[breyta | breyta frumkóða]Nokia vann til fimm verðlauna árið 2008 á Mobile Marketing Awards í London, tvö þeirra voru verðlaun fyrir „Best creativity in Mobile Marketing“ og „Most innovative use of technology in Mobile Marketing“ fyrir Shoot and Score verkefnið sem þeir unnu fyrir Vodafone vegna meistaradeildar Evrópu.
Vodafone Mobile Internet, annað verkefni Nokia vann verðlaunin „Best use of mobile as part of an integrated campaign“ og fékk einnig „Grand Prix“ verðlaunin sem áhorfendur kusu um.
Að lokum fékk Nokia lof í lófa og verðlaunin „Best use of mobile in customer relationship marketing“ fyrir að vinna með bresku blaðinu Financial Times að rafrænum afsláttarmiðum.[25]
Þróunin sem leiddi til GSM símans
[breyta | breyta frumkóða]- 1960-1970 – Nokia framleiddi talstöðvar fyrir herinn
- 1971 – Bílatalstöðin kom á markaðinn. Hún var svo stór að einungis var hægt að koma henni fyrir í skottinu á bílunum, en tólinu var komið fyrir nálægt bílstórasætinu
- 1982 – Fyrsti bílasíminn var tekinn í notkun en hann vó um 9,8kg
- 1984 – Símar sem hægt var að færa á milli staða skutust upp á sjónarsviðið. Þeir voru þó ennþá mjög stórir eða um 5kg svo þeir gátu ekki þjónað sama tilgangi og GSM síminn gerir í dag
- 1987 – Handhægir símar komu fyrst á markaðinn og vógu einungis um 800g
- 1992 – Fyrsti Nokia GSM síminn, Nokia 1011, leit dagsins ljós.[26]
Farsímarnir starfa í dag flestir á GSM/EDGE, 3G/WCDMA og á CDMA stöðlum en aukin áhersla er á Bluetooth, GPS og WLAN sem í framtíðinni er ætlað að sýna staðsetningu á korti af byggingum svo sem flugstöðvum og verslunarmiðstöðum.[27]
Fyrstu vísbendingar um að Nokia ætlaði að fara þá leið að einbeita sér að farsímum og símatækni var árið 1960 þegar stofnuð var lítil raftækjadeild innan fyrirtækisins. Síðan var fyrsta raftækið framleitt árið 1962. Árið 1967 var þessi raftækjadeild gerð að sér sviði og var þar byrjað að framleiða samskiptabúnað. Nokia notaði samskiptatæknina til að búa til talstöðvar og framleiða þær fyrir herinn en líka til sölu. Þetta var gert frá því á sjöunda áratugnum.[28]
Árið 1979 varð samruni milli Nokia og Salora Oy, sem var sjónvarpsframleiðandi, og var þá stofnað Mobira Oy. Mobira byrjaði að þróa síma sem auðveldlega er hægt að færa á milli staða, svokallaða fyrstu kynslóðar síma, og voru símarnir gerðir fyrir Norræna farsímakerfið (Nordisk MobilTelefoni eða NMT), sem er fyrsta alþjóðlega símakerfið og var byggt árið 1981. Árið 1982 kynnti Mobira fyrsta bílasímann, Mobira Senator, og var hann fyrir NMT-450 símakerfi. En það var ekki fyrr en árið 1984 að fyrsti vísir að GSM-símum nútímans kom á markað og var hann fyrir Norræna farsímakerfið. Var sá sími kallaður Mobira Talkman og en þar sem hann vóg rétt undir 5 kg var hann ekki mjög handhægur. Þremur árum síðar kom svo á markaðinn fyrsti handhægi síminn, var hann kallaður Mobira Cityman. Var sá sími orðinn heldur léttari en Mobira Talkman þar sem hann vóg um 800 g. Sama ár fékk Nokia mikla auglýsingu þegar Gorbachev sást nota Mobira Cityman.
Á árunum 1988–1989 varð breyting á fyrirtækinu. Forstjórinn yfir deildinni sem sá um hreyfanlegu símana sagði af sér. Í framhaldinu af því breytti fyrirtækið nafninu á Nokia-Mobira Oy í Nokia Mobile Phones. Nokia varð eitt af aðalfyrirtækjunum sem rannsakaði og þróaði GSM-síma, svokallaðir annarrar kynslóðar símar. Nokia kom sínu fyrsta GSM-kerfi til finnsks skiptiborðs, Radiolinja, árið 1989. Fyrsta GSM-símtalið fór í gegnum kerfið sem var búið að setja upp hjá Radiolinja. Var það framkvæmt 1. júlí 1991 í Helsinki af þáverandi forsætisráðherra Finna, Harri Holkeri.[29] Árið 1992 var fyrsti GSM síminn settur á markað, Nokia 1011. Númerið á módeli þessa síma er vísun í hvaða dag síminn kom út en hann kom sem sagt út 10. nóvember 1992.
Árið 1994 kom út nýtt módel af símum, var það síminn Nokia 2100 og var það fyrsti síminn til að innihalda hina frægu Nokia Tune símhringingu. Sama ár var heimsins fyrsta gervihnattasímtal gert og við það var notaður Nokia GSM sími.
Næstu árin fóru í þróun og breytingar á símunum eftir því sem tæknin jókst og varð flóknari. Til að mynda var Nokia 6110 fyrsti síminn sem innihélt leikinn Snake, sem flestir þekkja. Árið 1999 kom út fyrsti síminn sem gat tengst internetinu og var það tegundin Nokia 7110. Fyrirtækið naut mikilla vinsælda með Nokia 3310 sem leysti Nokia 3210 af hólmi árið 2000. Fyrsti 3G-síminn kom út árið 2002 og var það Nokia 6650. Þremur árum síðar kynnti Nokia næstu kynslóð af símum og var það Nokia Nseries.
Árið 1998 var stofnað nýtt vörumerki fyrir sérstaka tegund farsíma. Það vörumerki kallast Vertu. Síðastliðin 10-11 ár hafa þessar vörur verið að ná auknum vinsældum og er verið að miða aðallega við einn markaðshóp. Sá hópur er aðallega efnað fólk sem gæti litið á síma sem ákveðið stöðutákn. Um er að ræða síma sem geta verið úr gulli, með demanta á hlífinni, með hærra þjónustustig og fleira.[30]
Síðustu ár hafa verið miklar tækniþróanir á símum sem fyrir eru og einnig er verið að þróa fleiri, nýrri og tæknilegri síma. En dæmi um það sem hefur bæst við símana er xenon-flass, útbúnaður til að líkjast öðrum BlackBerry tækjum og margt fleira.
Nokia hefur líka komið inn á tölvumarkaðinn. Á níunda áratugnum var tölvudeild innan Nokia og var framleitt þar sería af PC-tölvum sem kallaðar voru MikroMikko. Fyrsta módelið í MikroMikko línunni kom út 29. september 1981, á svipuðum tíma og fyrsta IBM PC-tölvan. Þessi deild var þó seld til ICL, sem síðar varð hluti af Fujitsu. MikroMikko hélst þó sem vörumerki hjá ICL og síðar hjá Fujitsu. En alþjóðlega varð MikroMikko auglýst hjá Fujitsu sem ErgoPro.[31]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Geymd eintak“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 19. desember 2011. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 23. febrúar 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ http://www.nokianfootwear.fi/eng/our_story/
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 23. febrúar 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ http://en.wikipedia.org/wiki/Nokia
- ↑ „Geymd eintak“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 19. apríl 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 19. apríl 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 11. október 2008. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 19. apríl 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 9. ágúst 2011. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. janúar 2008. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. febrúar 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. september 2007. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. október 2008. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. október 2008. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. maí 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. apríl 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. janúar 2012. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. janúar 2012. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 9. febrúar 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ http://www.nokia.com/A4136001?newsid=1230416
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. apríl 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 19. apríl 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ http://www.merinews.com/catFull.jsp?articleID=124478[óvirkur tengill]
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. maí 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ http://en.wikipedia.org/wiki/Nokia
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 30. ágúst 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 23. febrúar 2009. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 6. júní 2011. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. október 2011. Sótt 3. júní 2009.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. október 2011. Sótt 3. júní 2009.