Klakki
Klakki (áður Exista) | |
Rekstrarform | Hlutafélag |
---|---|
Stofnað | 2001 |
Staðsetning | Reykjavík, Ísland |
Lykilpersónur | Lýður Guðmundsson stjórnarformaður, Erlendur Hjaltason forstjóri, Sigurður Valtýsson, forstjóri |
Starfsemi | Rekstur fyrirtækja, fjárfestingar, eignaleiga, tryggingar, o.fl. |
Vefsíða | www.klakki.is |
Klakki (áður Exista) er íslenskt fjármálaþjónustufyrirtæki stofnað í júní 2001. Það var eitt stærsta íslenska fyrirtækið mælt í eigin fé. Fyrirtækið var skráð á íslenskan hlutabréfamarkað í september 2006.[1] Klakki var þekkt sem Exista þangað til að ákveðið var á hluthafafundi að breyta um nafn í september 2011.[2]
Meðal eigna Klakka eru 23% hlutur í Vátryggingafélag Íslands (móðurfélagi Líftryggingafélags Íslands hf.) og Lýsing.
Meðal eigna Exista voru Vátryggingafélag Íslands, Lífís og Lýsing, sem Exista átti að öllu leyti; fjórðungshlutur í Kaupþingi Banka, 39,6% í Bakkavör Group og var stærsti hluthafinn í Símanum með 43.6% hlut.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Exista var skráð á markað í Bretlandi í júní 2006.[3] Í febrúar 2007 tilkynnti fyrirtækið methagnað upp á ríflega 37 miljarða króna.[4] Jafnframt voru tilkynnt kaup á hlutum í finnska tryggingafélaginu Sampo Oyj að andvirði um 170 milljarða króna, samanlagður hlutur Exista er því 15,48% í fyrirtækinu.[5]
Í ágúst 2007 lauk Exista lántöku upp á 43 milljarða króna (~€500 milljónir). Mikil eftirspurn var hjá bankastofnunum eftir þáttöku og var því ákveðið að hækka lánsfjárhæðina um 300 milljónr króna. Alls tóku 27 bankar frá 12 löndum þátt í sambankaláninu. Umsjónarbankar eru Bayerische Landesbank, Fortis Bank, HSH Nordbank og Raiffeisen Zentralbank Österreich.[6]
Í byrjun árs 2008 féll úrvalsvísitalan, sem er vísitala byggð á gengi hlutabréfa 15 verðmætustu íslensku fyrirtækjanna, nokkuð hratt. Verðmæti Exista féll sömuleiðis. Sérfræðingur sænska blaðsins Dagens Industri skrifaði grein um fyrirtækið og sagði það vera mjög skuldsett og eiga í erfiðleikum. [7]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Skráning Exista einn af hápunktum ársins“. Sótt 9. febrúar 2007.
- ↑ „Exista heitir nú Klakki“. Sótt 19. september 2011.
- ↑ „Brothers steer Exista to market“. 19. júní 2006.
- ↑ „Hagnaður Exista fram úr vonum“. Sótt 9. febrúar 2007.
- ↑ „Exista eignast 15,48% hlut í Sampo“. Sótt 9. febrúar 2007.
- ↑ „Exista tekur 43 milljarða lán“. Sótt 31. ágúst 2007.
- ↑ „Sænskur sérfræðingur segir Exista í kröppum dansi“. Sótt 8. janúar 2008.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Heimasíða Geymt 24 september 2008 í Wayback Machine
- „Greiddi Deutsche bank 35 milljarða“; grein af Vísi.is 2012