John Stuart, jarl af Bute
Jarlinn af Bute | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 26. maí 1762 – 8. apríl 1763 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 3. |
Forveri | Hertoginn af Newcastle |
Eftirmaður | George Grenville |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. maí 1713 Edinborg, Skotlandi |
Látinn | 10. mars 1792 (78 ára) Westminster, Middlesex, Englandi |
Þjóðerni | Breskur |
Stjórnmálaflokkur | Torýar |
Maki | Mary Wortley Montagu (g. 1736) |
Börn | 9 |
Háskóli | Leiden-háskóli |
John Stuart, þriðji jarlinn af Bute (25. maí 1713 – 10. mars 1792) var skoskur aðalsmaður af Stuart-ætt sem var forsætisráðherra Bretlands frá 1762 til 1763. Hann var fyrsti skoski forsætisráðherrann eftir að sambandslögin 1707 gengu í gildi og er oft talinn einn síðasti „hirðgæðingurinn“ sem varð forsætisráðherra í ljósi vináttu sinnar við konunginn.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]John Stuart gekk á þing þegar hann var 24 ára. Prinsinum og prinsessunni af Wales leist vel á hann vegna háttvísi hans og því varð hann náinn syni þeirra (sem varð síðar Georg 3. Bretlandskonungur). Stuttu eftir að Georg varð konungur (árið 1760) varð Bute forsætisráðherra og formaður Tory-flokksins. Hann varð óvinsæll vegna stefnumála sinna en honum tókst þó að semja um hagstæðan frið gegn Frökkum í lok sjö ára stríðsins árið 1763.[1]
Bute sagði af sér og dró sig úr stjórnmálum eftir harða gagnrýni af hálfu stjórnarandstöðunnar og settist í helgan stein á landeign sinni í Lutton, þar sem hann einbeitti sér að garðyrkju. Hann gaf út garðyrkjubókina Botanical Tables Containing the Families of British Plants árið 1785.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Schweizer, Karl (1988). Lord Bute – Essays in Reinterpretation. Great Britain: Leicester University Press. bls. 27–29.
Fyrirrennari: Hertoginn af Newcastle |
|
Eftirmaður: George Grenville |