Íslensku bókmenntaverðlaunin
Íslensku bókmenntaverðlaunin eru verðlaun sem veitt eru þremur bókum ár hvert. Árið 2013 bættist þriðji flokkurinn við, flokkur íslenskra barnabóka. Áður höfðu verðlaunin verið veitt í tveim flokkum, flokki fagurbókmennta og í flokki fræðirita og rita almenns efnis. Verðlaunin voru sett á stofn af Félagi íslenskra bókaútgefenda í tilefni af hundrað ára afmæli félagsins árið 1989. Fimm bækur eru tilnefndar í hverjum flokki og eru tilnefningarnar kynntar í byrjun desember en verðlaunin sjálf eru ekki veitt fyrr en í janúar. Vegna þess að tilnefningarnar koma í miðju jólabókaflóðinu eru þær mikið notaðar við markaðssetningu þeirra bóka sem þær hljóta.
Val bóka sem tilnefndar eru fer þannig fram að Félag íslenskra bókaútgefenda skipar dómnefndir í hvorum flokki sem velja úr þeim bókum sem lagðar eru fram til tilnefningar af bókaútgefendum. Lokadómnefnd er skipuð af formönnum dómnefnda og einum sem forseti Íslands tilnefnir og er sá jafnframt formaður dómnefndar.
Handhafar bókmenntaverðlaunanna
[breyta | breyta frumkóða]2022
[breyta | breyta frumkóða]- Pedro Gunnlaugur Garcia, Lungu
- Arndís Þórarinsdóttir, Kollhnís
- Ragnar Stefánsson, Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta
2021
[breyta | breyta frumkóða]- Sigrún Helgadóttir, Mynd af manni I-II
- Þórunn Rakel Gylfadóttir, Akam, ég og Annika
- Hallgrímur Helgason, Sextíu kíló af kjaftshöggum
2020
[breyta | breyta frumkóða]- Elísabet Jökulsdóttir, Aprílsólarkuldi
- Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir, Blokkin á heimsenda
- Sumarliði R. Ísleifsson, Í fjarska norðursins: Ísland og Grænland - viðhorfasaga í þúsund ár.
2019
[breyta | breyta frumkóða]- Sölvi Björn Sigurðsson, Selta – Apókrýfa úr ævi landlæknis
- Bergrún Íris Sævarsdóttir, Langelstur að eilífu
- Jón Viðar Jónsson, Stjörnur og stórveldi á leiksviðum Reykjavíkur 1925-1965
2018
[breyta | breyta frumkóða]- Hörður Kristinsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Jón Baldur Hlíðberg, Flóra Íslands -Blómplöntur og byrkingar
- Sigrún Eldjárn, Silfurlykillinn
- Hallgrímur Helgason, Sextíu kíló af sólskini
2017
[breyta | breyta frumkóða]- Kristín Eiríksdóttir, Elín, ýmislegt
- Unnur Jökulsdóttir, Undur Mývatns: um fugla, flugur, fiska og fólk
- Áslaug Jónsdóttir, Rakel Hemsdal og Kalle Güettler, Skrímsli í vanda
2016
[breyta | breyta frumkóða]- Auður Ava Ólafsdóttir, Ör
- Ragnar Axelsson, Andlit norðursins
- Hildur Knútsdóttir, Vetrarhörkur
2015
[breyta | breyta frumkóða]- Einar Már Guðmundsson, Hundadagar
- Gunnar Þór Bjarnason, Þegar siðmenningin fór fjandans til - Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918
- Gunnar Helgason, Mamma klikk!
2014
[breyta | breyta frumkóða]- Ófeigur Sigurðsson, Öræfi
- Snorri Baldursson, Lífríki Íslands: vistkerfi lands og sjávar
- Bryndís Björgvinsdóttir, Hafnfirðingabrandarinn
2013
[breyta | breyta frumkóða]- Sigurjón Birgir Sigurðsson, Mánasteinn - drengurinn sem aldrei var til
- Guðbjörg Kristjánsdóttir, Íslenska teiknibókin
- Andri Snær Magnason, Tímakistan
2012
[breyta | breyta frumkóða]- Eiríkur Örn Norðdahl, Illska
- Gunnar F. Guðmundsson, Pater Jón Sveinsson - Nonni
2011
[breyta | breyta frumkóða]- Guðrún Eva Mínervudóttir, Allt með kossi vekur
- Páll Björnsson, Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar
2010
[breyta | breyta frumkóða]- Gerður Kristný, Blóðhófnir.
- Helgi Hallgrímsson, Íslenskir sveppir og sveppafræði.
2009
[breyta | breyta frumkóða]- Guðmundur Óskarsson, Bankster
- Helgi Björnsson, Jöklar á Íslandi
2008
[breyta | breyta frumkóða]- Einar Kárason, Ofsi
- Þorvaldur Kristinsson, Lárus Pálsson leikari
2007
[breyta | breyta frumkóða]- Sigurður Pálsson, Minnisbók
- Þorsteinn Þorsteinsson, Ljóðhús. Þættir um skáldskap Sigfúsar Daðasonar
2006
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafur Jóhann Ólafsson, Aldingarðurinn
- Andri Snær Magnason, Draumalandið - sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð
2005
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Kalman Stefánsson, Sumarljós og svo kemur nóttin
- Kristín B. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur Danto, Matthías Johannessen og Silja Aðalsteinsdóttir, Kjarval
2004
[breyta | breyta frumkóða]- Auður Jónsdóttir, Fólkið í kjallaranum
- Halldór Guðmundsson, Halldór Laxness
2003
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafur Gunnarsson, Öxin og jörðin
- Guðjón Friðriksson, Jón Sigurðsson, ævisaga II
2002
[breyta | breyta frumkóða]- Ingibjörg Haraldsdóttir, Hvar sem ég verð
- Páll Hersteinsson og Pétur M. Jónasson, Þingvallavatn
2001
[breyta | breyta frumkóða]- Hallgrímur Helgason, Höfundur Íslands
- Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Björg
2000
[breyta | breyta frumkóða]- Gyrðir Elíasson, Gula húsið
- Guðmundur Páll Ólafsson, Hálendið í náttúru Íslands
1999
[breyta | breyta frumkóða]- Andri Snær Magnason, Sagan af bláa hnettinum
- Páll Valsson, Jónas Hallgrímsson
1998
[breyta | breyta frumkóða]- Thor Vilhjálmsson, Morgunþula í stráum
- Hörður Ágústsson, Íslensk byggingararfleifð I: ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940
1997
[breyta | breyta frumkóða]- Guðbergur Bergsson, Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar: skáldævisaga
- Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson
1996
[breyta | breyta frumkóða]- Böðvar Guðmundsson, Lífsins tré
- Þorsteinn Gylfason, Að hugsa á íslensku
1995
[breyta | breyta frumkóða]- Steinunn Sigurðardóttir, Hjartastaður
- Þór Whitehead, Milli vonar og ótta
1994
[breyta | breyta frumkóða]- Vigdís Grímsdóttir, Grandavegur 7
- Silja Aðalsteinsdóttir, Skáldið sem sólin kyssti : ævisaga Guðmundar Böðvarssonar
1993
[breyta | breyta frumkóða]- Hannes Pétursson, Eldhylur
- Jón G. Friðjónsson, Mergur málsins : íslensk orðatiltæki: uppruni, saga og notkun
1992
[breyta | breyta frumkóða]- Þorsteinn frá Hamri, Sæfarinn sofandi
- Vésteinn Ólason, Sverrir Tómasson og Guðrún Nordal, Bókmenntasaga I
1991
[breyta | breyta frumkóða]- Guðbergur Bergsson, Svanurinn
- Guðjón Friðriksson, Bærinn vaknar 1870-1940
1990
[breyta | breyta frumkóða]- Fríða Á. Sigurðardóttir, Meðan nóttin líður
- Hörður Ágústsson, Skálholt: kirkjur
1989
[breyta | breyta frumkóða]- Stefán Hörður Grímsson, Yfir heiðan morgun: ljóð '87-'89
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Um verðlaunin á vef Félags íslenskra bókaútgefenda Geymt 27 september 2015 í Wayback Machine