Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1958
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1958 eða HM 1958 var haldið í Svíþjóð dagana 8. júní til 29. júní. Þetta var sjötta heimsmeistarakeppnin og urðu Brasilíumenn meistarar í fyrsta sinn eftir sigur á heimamönnum í úrslitum. Táningurinn Pelé varð stjarna keppninnar og Frakkinn Just Fontaine setti markamet sem enn stendur.
Val á gestgjöfum
[breyta | breyta frumkóða]Auk Svía sýndu Argentínumenn, Mexíkóar og Sílebúar áhuga á að halda heimsmeistaramótið. Á þingi Alþjóðaknattspyrnusambandsins árið 1950 urðu Svíar hins vegar fyrir valinu með öllum atkvæðum.
Undankeppni
[breyta | breyta frumkóða]Svíar og Vestur-Þjóðverjar fengu sæti sem gestgjafar og heimsmeistarar. Níu sætum var úthlutað til Evrópu, þremur til Suður-Ameríku, einu til Norður-Ameríku og eitt sæti skyldi koma sameiginlega í hlut Asíu og Afríku.
Í Suður-Ameríku mættu Argentínumenn til leiks í fyrsta sinn eftir langt hlé og komust áfram. Úrúgvæ sat hins vegar eftir. Mexíkó varð fulltrúi Norður- og Mið-Ameríku. Afríku- og Asíuhluti keppninnar snerist upp í hálfgerðan farsa. Ísrael var í hópi þátttökuliða, en ríki múslima neituðu almennt að viðurkenna tilvist Ísraelsríkis. Fyrir vikið gáfu allir fyrirhugaðir mótherjar liðsins leiki sína. Þar sem Alþjóðaknattspyrnusambandið hafði bundið það í lög að ekkert lið gæti tryggt sér sæti í úrslitum án keppni var ákveðið að skipuleggja einvígi milli Ísraela og eins Evrópuliðs sem hafnað hafði í öðru sæti í sínum forriðli. Wales varð fyrir valinu og komust Walesverjar áfram en þátttökuliðum frá þriðja heiminum fækkaði enn frekar.
Íslendingar tóku þátt í forkeppninni í fyrsta sinn en töpuðu öllum leikjum sínum gegn Frökkum og Belgum með miklum mun. Sovétmenn tóku þátt í keppninni, líkt og velflest kommúnistaríki Austur-Evrópu og komust í úrslitakeppnina í fyrstu tilraun. Óvæntustu úrslitin urðu í 8.riðli, þar sem Norður-Írar komust áfram á kostnað Ítala. Skotar slógu sömuleiðis Spánverja úr keppni og komust Bretland ríkin fjögur þar með öll í úrslitakeppnina í Svíþjóð.
Þátttökulið
[breyta | breyta frumkóða]Sextán þjóðir mættu til leiks frá þremur heimsálfum.
|
Leikvangar
[breyta | breyta frumkóða]Leikið var á 12 leikvöngum í jafnmörgum borgum. Ráðast þurfti í stækkun á ýmsum vallanna til að uppfylla kröfur FIFA um að lágmarki sex leikvanga sem sæti fyrir 20 þúsund að lágmarki. Til greina kom að láta hluta leikjanna fara fram í Osló eða Kaupmannahöfn. Þannig lá fyrir að ef Danir kæmust í úrslitakeppnina hefði þeirra riðill verið leikinn í Danmörku. Til þess kom þó ekki.
Flestar viðureignirnar fóru fram á Råsunda-vellinum í Stokkhólmi, 8 talsins, en 7 leikir voru á Ullevi-vellinum í Gautaborg.
Gautaborg |
---|
Ullevi Stadium |
Sætafjöldi: 53.500 |
Eskilstuna |
Tunavallen |
Sætafjöldi: 22.000 |
Sandviken |
Jernvallen |
Sætafjöldi: 20.000 |
Borås |
Ryavallen |
Sætafjöldi: 15.000 |
Helsingborg |
---|
Olympia |
Sætafjöldi: 27.000 |
Norrköping |
Idrottsparken |
Sætafjöldi: 20.000 |
Uddevalla |
Rimnersvallen |
Sætafjöldi: 17.778 |
Västerås |
Arosvallen |
Sætafjöldi: 10.000 |
Solna (Stokkhólms svæðið) |
Malmö |
---|---|
Råsunda Stadium | Malmö Stadion |
Sætafjöldi: 52.400 | Sætafjöldi: 30.000 |
Halmstad | Örebro |
Örjans Vall | Eyravallen |
Sætafjöldi: 15.000 | Sætafjöldi: 13.000 |
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Riðlakeppnin
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var í fjórum riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Sú litla breyting var gerð við stigaútreikninga að ekki var horft til markamunar heldur hlutfalls skoraðra marka af mörkum fengnum á sig. Sú breyting hafði þó engin áhrif á töfluröð, auk þess sem gripið var til aukaleiks ef tvö lið voru jöfn að stigum.
Riðill 1
[breyta | breyta frumkóða]Heimsmeistarar Vestur-Þjóðverja sigruðu í riðlinum, en gerðu þó jafntefli í tveimur leikja sinna. Norður-Írar tóku þátt í sinni fyrstu úrslitakeppni og komust í fjórðungsúrslitin með tveimur sigrum á sterku liði Tékkóslóvakíu. Argentínumenn mættu aftur til leiks eftir langt hlé og ollu stuðningsmönnum sínum gríðarlegum vonbrigðum. Um 10 þúsund manns söfnuðust saman á flugvellinum í Buenos Aires til að baula á landsliðið við heimkomuna.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Vestur-Þýskaland | 3 | 1 | 2 | 0 | 7 | 5 | 1,40 | 4 | |
2 | Norður-Írland | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 5 | 0,80 | 3 | |
3 | Tékkóslóvakía | 3 | 1 | 1 | 1 | 8 | 4 | 2,00 | 3 | |
4 | Argentína | 3 | 1 | 0 | 2 | 5 | 10 | 0,50 | 2 |
8. júní 1958 | |||
Argentína | 1-3 | Vestur-Þýskaland | Malmö leikvangurinn, Malmö Áhorfendur: 31.156 Dómari: Reginald Leafe, Englandi |
Corbatta 2 | Rahn 32, 79, Seeler 42 |
8. júní 1958 | |||
Norður-Írland | 1-0 | Tékkóslóvakía | Örjans Vall, Halmstad Áhorfendur: 10.647 Dómari: Fritz Seipelt, Austurríki |
Cush 21 |
11. júní 1958 | |||
Tékkóslóvakía | 2-2 | Vestur-Þýskaland | Ólympíuleikvangurinn, Helsingborg Áhorfendur: 25.000 Dómari: Arthur Edward Ellis, Englandi |
Dvořák 24 (vítasp.), Zikán 42 | Schäfer 60, Rahn 71 |
11. júní 1958 | |||
Norður-Írland | 1-3 | Argentína | Örjans Vall, Halmstad Áhorfendur: 14.174 Dómari: Sten Ahlner, Svíþjóð |
McParland 4 | Corbatta 37 (vítasp.), Menéndez 56, Avio 60 |
15. júní 1958 | |||
Vestur-Þýskaland | 2-2 | Norður-Írland | Malmö leikvangurinn, Malmö Áhorfendur: 31.990 Dómari: Joaquim Campos, Portúgal |
Rahn 20, Seeler 78 | McParland 18, 60 |
15. júní 1958 | |||
Tékkóslóvakía | 6-1 | Argentína | Ólympíuleikvangurinn, Helsingborg Áhorfendur: 16.418 Dómari: Arthur Edward Ellis, Englandi |
Dvořák 8, Zikán 17,40, Feureisl 69, Hovorka 82, 89 | Corbatta 65 (vítasp) |
Umspilsleikur
[breyta | breyta frumkóða]17. júní 1958 | |||
Norður-Írland | 2-1 (e.framl.) | Tékkóslóvakía | Malmö leikvangurinn, Malmö Áhorfendur: 6.196 Dómari: Maurice Guigue, Frakklandi |
McParland 44, 97 | Zikán 69 |
Riðill 2
[breyta | breyta frumkóða]Mörkunum rigndi í 2. riðli, en að jafnaði voru 5,16 mörk skoruð í hverjum leik. Just Fontaine skoraði sex þessara marka, en hann setti glæsilegt markamet í keppninni. Riðillinn var ekki talinn sérlega sterkur, enda höfðu liðin í honum ekki unnið nein stórafrek í fyrri keppnum.
Matt Busby, knattspyrnustjóri Manchester United var ráðinn þjálfari skoska liðsins fyrir HM. Hann gat hins vegar ekki stýrt liðinu í Svíþjóð vegna meiðsla sem hann varð fyrir í flugslysi í München sama ár. Skoska liðið hafði slegið bæði Spánverja og Svisslendinga út úr forkeppninni, en olli miklum vonbrigðum í úrslitum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Frakkland | 3 | 2 | 0 | 1 | 11 | 7 | 1,57 | 4 | |
2 | Júgóslavía | 3 | 1 | 2 | 0 | 7 | 6 | 1,17 | 4 | |
3 | Paragvæ | 3 | 1 | 1 | 1 | 9 | 12 | 0,75 | 3 | |
4 | Skotland | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 | 6 | 0,67 | 1 |
8. júní 1958 | |||
Frakkland | 7-3 | Paragvæ | Idrottsparken, Norrköping Áhorfendur: 16.518 Dómari: Juan Gardeazábal Garay, Spáni |
Fontaine 24, 30, 67, Piantoni 52, Wisniewski 61, Kopa 570, Vincent 83 | Amarilla 20, 44 (vítasp.), Romero 50 |
8. júní 1958 | |||
Skotland | 1-1 | Júgóslavía | Arosvallen, Västerås Áhorfendur: 9.591 Dómari: Raymond Wyssling, Sviss |
Murray 49 | Petaković 6 |
11. júní 1958 | |||
Frakkland | 2-3 | Júgóslavía | Arosvallen, Västerås Áhorfendur: 12.217 Dómari: Benjamin Griffiths, Wales |
Fontaine 4, 85 | Petaković 16, Veselinović 63, 88 |
11. júní 1958 | |||
Paragvæ | 3-2 | Skotland | Idrottsparken, Norrköping Áhorfendur: 11.665 Dómari: Vincenzo Orlandini, Ítalíu |
Agüero 4, Ré 45, Parodi 73 | Mudie 24, Collins 74 |
15. júní 1958 | |||
Frakkland | 2-1 | Skotland | Eyravallen, Örebro Áhorfendur: 13.554 Dómari: Juan Regis Brozzi, Argentínu |
Kopa 22, Fontaine 44 | Baird 58 |
15. júní 1958 | |||
Paragvæ | 3-3 | Júgóslavía | Tunavallen, Eskilstuna Áhorfendur: 13.103 Dómari: Martin Macko, Tékkóslóvakíu |
Parodi 20, Agüero 52, Romero 80 | Ognjanović 18, Veselinović 21, Rajkov 73 |
Riðill 3
[breyta | breyta frumkóða]Silfurlið Ungverja frá HM 1954 mætti vængbrotið til leiks, þar sem ýmsir lykilmenn flúðu land í kjölfar uppreisnarinnar í Ungverjalandi. Þrátt fyrir það var almennt búist við því að ungverska liðið kæmist í fjórðungsúrslitin ásamt heimamönnum. Lið Wales, sem komst bakdyramegin inn á mótið, hafði hins vegar betur gegn Ungverjum í tveimur leikjum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Svíþjóð | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 1 | 5,00 | 5 | |
2 | Wales | 3 | 0 | 3 | 0 | 2 | 2 | 1,00 | 3 | |
3 | Ungverjaland | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 | 3 | 2,00 | 3 | |
4 | Mexíkó | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 8 | 0,13 | 1 |
8. júní 1958 | |||
Svíþjóð | 3-0 | Mexíkó | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 34.107 Dómari: Nikolay Latyshev, Sovétríkjunum |
Simonsson 17, 64, Liedholm 57 (vítasp.) |
8. júní 1958 | |||
Ungverjaland | 1-1 | Wales | Jernvallen, Sandviken Áhorfendur: 15.343 Dómari: José María Codesal, Úrúgvæ |
Bozsik 5 | J. Charles 27 |
11. júní 1958 | |||
Wales | 1-1 | Mexíkó | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 15.150 Dómari: Leo Lemesic, Júgóslavíu |
I. Allchurch 32 | Belmonte 89 |
12. júní 1958 | |||
Svíþjóð | 2-1 | Ungverjaland | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 38.850 Dómari: Jack Mowat, Skotlandi |
Hamrin 34, 55 | Tichy 77 |
15. júní 1958 | |||
Svíþjóð | 0-0 | Wales | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 3.þ287 Dómari: Lucien van Nuffel, Belgíu |
15. júní 1958 | |||
Ungverjaland | 4-0 | Mexíkó | Jernvallen, Sandviken Áhorfendur: 13.300 Dómari: Arne Eriksson, Finnlandi |
Tichy 19, 46, Sándor 54, Bencsics 69 |
Umspilsleikur
[breyta | breyta frumkóða]17. júní 1958 | |||
Wales | 2-1 | Ungverjaland | Råsunda leikvangurinn, Solna Áhorfendur: 2.823 Dómari: Nikolay Latyshev, Sovétríkjunum |
Allchurch 55, Medwin 76 | Tichy 33 |
Riðill 4
[breyta | breyta frumkóða]Fjórði riðillinn var almennt talinn sá sterkasti. Brasilíumenn mættu með sterkt lið til keppni, Sovétmenn voru ríkjandi Ólympíumeistarar frá Melbourne 1956. Austurríkismenn voru bronsliðið frá HM 1954 og enska liðið var talið sigurstranglegt, þótt það hafi orðið fyrir áfalli stærstur hluti leikmanna Manchester United fórst í flugslysi sama ár. Fleiri áhorfendur mættu á leiki þessa riðils en nokkurs annars. Leikirnir ollu þó vonbrigðum, enda einkenndust þeir af varnarleik og hörku. Leikur Brasilíu og Englands varð fyrsta markalausa jafnteflið í gjörvallri sögu HM, en í öllum 104 viðureignunum sem fram höfðu farið fram að því hafði leikmönnum tekist að finna marknetið. Brasilía endaði á toppnum en Sovétmenn þurftu aukaleik gegn Englendingum til að tryggja sér annað sætið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.hlutf | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 0 | - | 5 | |
2 | Sovétríkin | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 4 | 1,00 | 3 | |
3 | England | 3 | ö | 3 | 0 | 4 | 4 | 1,00 | 3 | |
4 | Austurríki | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 7 | 0,29 | 1 |
8. júní 1958 | |||
Brasilía | 3-0 | Austurríki | Rimnersvallen, Uddevalla Áhorfendur: 17.778 Dómari: Maurice Guigue, Frakklandi |
Altafini 37, 85 Nílton Santos 50 |
8. júní 1958 | |||
Sovétríkin | 2-2 | England | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 49.348 Dómari: István Zsolt, Ungverjalandi |
Simonyan 13, A. Ivanov 56 | Kevan 66, Finney 85 (vítasp.) |
11. júní 1958 | |||
Brasilía | 0-0 | England | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 40.895 Dómari: Albert Dusch, Vestur-Þýskalandi |
11. júní 1958 | |||
Sovétríkin | 2-0 | Austurríki | Ryavallen, Borås Áhorfendur: 21.239 Dómari: Carl Jørgensen, Danmörku |
Ilyin 15, V. Ivanov 62 |
15. júní 1958 | |||
England | 2-2 | Austurríki | Ryavallen, Borås Áhorfendur: 15.872 Dómari: Jan Bronkhorst, Frakklandi |
Haynes 56, Kevan 74 | Koller 15, Körner 71 |
15. júní 1958 | |||
Brasilía | 2-0 | Sovétríkin | Ullevi, Gautaborg Áhorfendur: 50.928 Dómari: Maurice Guigue, Frakklandi |
Vavá 3, 77 |
Umspilsleikur
[breyta | breyta frumkóða]17. júní 1958 | |||
Sovétríkin | 1-0 | England | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 23.182 Dómari: Albert Dusch, Vestur-Þýskalandi |
Ilyin 69 |
Fjórðungsúrslit
[breyta | breyta frumkóða]Táningurinn Péle hafði aðeins komið við sögu í lokaleik Brasilíu í riðlakeppninni og hann skoraði markið skildi á milli Brasilíumanna og Norður-Íra. Frakkar og Svíar fóru með sigur af hólmi í sínum leikjum og aðra keppnina í röð slógu Vestur-Þjóðverjar út lið Júgóslava í fjórðungsúrslitum.
19. júní 1958 | |||
Brasilía | 1-0 | Wales | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 25.923 Dómari: Fritz Seipelt, Austurríki |
Pelé 66 |
19. júní 1958 | |||
Frakkland | 4-0 | Norður-Írland | Idrottsparken,Norrköping Áhorfendur: 11.800 Dómari: Juan Gardeazábal Garay, Spáni |
Wisniewski 44, Fontaine 55, 63, Piantoni 68 |
19. júní 1958 | |||
Svíþjóð | 2-0 | Sovétríkin | Råsunda leikvangurinn, Solna Áhorfendur: 31.900 Dómari: Reginald Leafe, Englandi |
Hamrin 49, Simonsson 8 |
19. júní 1958 | |||
Vestur-Þýskaland | 1-0 | Júgóslavía | Malmö leikvangurinn, Malmö Áhorfendur: 20.055 Dómari: Raymond Wyssling, Sviss |
Rahn 12 |
Undanúrslit
[breyta | breyta frumkóða]Heimsmeistarar Vestur-Þjóðverja luku keppni níu á móti Svíum, þar sem einn leikmaður var rekinn útaf og annar meiddist, en varamenn voru enn ekki leyfðir í leikjum HM. Brasilíumenn sýndu allar sínar bestu hliðar í sigri á Frökkum.
24. júní 1958 | |||
Brasilía | 5-2 | Frakkland | Råsunda leikvangurinn, Solna Áhorfendur: 27.100 Dómari: Benjamin Griffiths, Wales |
Vavá 2, Didi 39, Pelé 52, 64, 75 | Fontaine 9, Piantoni 83 |
24. júní 1958 | |||
Svíþjóð | 3-1 | Vestur-Þýskaland | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 49.471 Dómari: István Zsolt, Ungverjalandi |
Skoglund 32, Gren 81, Hamrin 88 | Schäfer 24 |
Bronsleikur
[breyta | breyta frumkóða]Just Fontaine var í aðalhlutverki í leiknum um þriðja sætið. Hann skoraði fernu og lauk heimsmeistaramótinu með 13 mörk skoruð, met sem stendur enn í dag.
28. júní 1958 | |||
Frakkland | 6-3 | Vestur-Þýskaland | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 32.483 Dómari: Juan Regis Brozzi, Argentínu |
Fontaine 16, 36, 78, 89, Kopa 27 (vítasp.), Douis 50 | Cieslarczyk 18, Rahn 52, Schäfer 84 |
Úrslitaleikur
[breyta | breyta frumkóða]Aldrei hafa fleiri mörk verið skoruð í úrslitaleik HM eða sjö talsins. Mikill aldursmunur var sömuleiðis á milli yngsta og elsta markaskorarans í leiknum. Péle var 17 ára gamall en Svíinn Liedholm á 36. aldursári. Í fyrsta sinn mættust lið frá tveimur heimsálfum í úrslitaleik og er þetta jafnframt eina skiptið í sögunni sem lið utan Evrópu hefur unnið titilinn í þeirri heimsálfu.
Heimamenn skoruðu snemma í leiknum en héldu forystunni ekki nema í fimm mínútur. Yfirburðir brasilíska liðsins voru talsverðir og úrslitin í raun ráðin um miðjan seinni hálfleikinn þegar Mario Zagallo breytti stöðunni í 4:1. Mörk frá báðum liðum í blálokin gerðu það að verðum að úrslitaleikurinn varð sá markahæsti fyrr og síðar.
Þar sem keppnistreyjur beggja liða voru gular þurfti að útkljá hvorir þyrftu að leika í varabúningi. Til stóð að varpa hlutkesti en Brasilíumenn neituðu að mæta á staðinn og fengu Svíar því að velja. Fyrir vikið stefndi í að Brasilíumenn þyrftu að keppa í hvítum varabúningum sínum. Þær fregnir ollu uppnámi í brasilíska liðinu enda vakti hvíti búningurinn upp slæmar minningar um tapið gegn [Úrúgvæska karlalandsliðið í knattspyrnu|Úrúgvæ]] í úrslitaleik HM 1950. Því var gripið til þess ráðs í skyndingu að láta sauma bláar keppnistreyjur sem liðið skartaði í úrslitaleiknum.
29. júní 1958 | |||
Brasilía | 5-2 | Svíþjóð | Råsunda leikvangurinn, Solna Áhorfendur: 49.737 Dómari: Maurice Guigue, Frakklandi |
Vavá 9, 32, Pelé 55, 90, Zagallo 68 | Liedholm 4, Simonsson 80 |
Markahæstu leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]Just Fontaine setti met í sögu HM þegar hann varð markakóngur með 13 mörk skoruð. Alls deildu 60 leikmönn á milli sín 126 mörkum í keppninni.
13 mörk
6 mörk
5 mörk
4 mörk
3 mörk