Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1950
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1950 eða HM 1950 var haldið í Brasilíu dagana 24. júní til 16. júlí. Þetta var fjórða heimsmeistarakeppnin og urðu Úrúgvæmenn meistarar öðru sinni eftir harða baráttu við heimamenn. Tekið var upp nýtt keppnisfyrirkomulag í fyrsta og eina skiptið, þar sem ekki var eiginlegur úrslitaleikur heldur keppt í fjögurra liða úrslitariðli. 34 lið skráðu til sig leiks og börðust um 16 sæti í úrslitakeppninni. Þegar til kastanna kom urðu þátttökuliðin í Brasilíu þó ekki nema þrettán.
Val á gestgjöfum
[breyta | breyta frumkóða]Brasilía hafði falast eftir að halda heimsmeistaramótin árin 1942 eða 1946, en hvorugt þeirra var þó haldið vegna heimsstyrjaldarinnar. Á þingi Alþjóðaknattspyrnusambandsins árið 1946 var ákveðið að halda heimsmeistaramót árin 1949 og 1951. Brasilíumönnum var úthlutað fyrra mótinu en Svisslendingum því síðara. Fljótlega var þó ákveðið að breyta tímasetningunum í 1950 og 1954.
Forkeppni
[breyta | breyta frumkóða]Þjóðverjum og Japönum var bannað að taka þátt í forkeppni HM, sem hluti af refsiaðgerðum vegna stríðsins. Kommúnistaríki Austur-Evrópu skráðu sig ekki til leiks að Júgóslavíu einni frátalinni. Forkeppnin einkenndist af því að lið drægju sig úr keppni. Þannig þurfti ekki að leika einn einasta leik í Suður-Ameríkuhluta forkeppninnar, þar sem fjórar þjóðir hættu við þátttöku, þar á meðal Argentínumenn sem stóðu í deilum við brasilíska knattspyrnusambandið. Indverjar hlutu sæti í úrslitunum án keppni, en hættu við þátttöku á síðustu stundu og var ákveðið að bæta ekki nýju liði við í þeirra stað.
Englendingar, Skotar, Walesverjar og Norður-Írar kepptu í eina fjögurra liða forriðlinum um tvö laus sæti. Skotar höfnuðu í öðru sæti, en höfðu áður lýst því yfir að lið þeirra myndi ekki halda til Brasilíu nema sem sigurvegarar. Tyrkir fengu sæti í úrslitunum á silfurfati þegar Austurríkismenn drógu sig í hlé, en afþökkuðu það að lokum vegna ferðakostnaðar. Frakkar töpuðu fyrir Júgóslövum í forkeppninni, en var engu að síður boðið sæti í úrslitum. Franska knattspyrnusambandið þáði boðið en skipti svo um skoðun á síðustu stundu.
Eftir forkeppnina kom í ljós að nokkrir leikmenn höfðu spilað fyrir bæði Norður-Írland og Írland, sem varð til þess að Alþjóðaknattspyrnusambandið þurfti að endurskoða reglur sínar.
Heildarfjöldi leikja í forkeppninni var ekki nema 26 vegna þess hversu mörg lið drógu sig úr keppni á síðustu stundu. Þar af voru sex leikjanna hluti af Stóra-Bretlands meistarakeppninni.
Þátttökulið
[breyta | breyta frumkóða]Þrettán mættu til leiks, en nokkrar þjóðir höfðu dregið sig úr keppni áður en mótið hófst.
|
Leikvangar
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var á sex leikvöngum í mótinu. Þar var Maracanã-leikvangurinn tilkomumestur, en það var stærsti völlur í heimi og sérstaklega byggður fyrir mótið. Skipuleggjendur lögðu því mikla áherslu á að keppt yrði í riðlum en ekki með útsláttarfyrirkomulagi, til að fá sem flesta leiki og mestar áhorfendatekjur.
Rio de Janeiro | São Paulo | Belo Horizonte |
---|---|---|
Estádio do Maracanã | Estádio do Pacaembu | Estádio Sete de Setembro |
Áhorfendur: 200,000 | Áhorfendur: 60,000 | Áhorfendur: 30,000 |
Curitiba | Porto Alegre | Recife |
Estádio Durival de Britto | Estádio dos Eucaliptos | Estádio Ilha do Retiro |
Áhorfendur: 10,000 | Áhorfendur: 20,000 | Áhorfendur: 20,000 |
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Riðlakeppnin
[breyta | breyta frumkóða]Riðill 1
[breyta | breyta frumkóða]Heimamenn unnu Mexíkó í opnunarleik mótsins og þrátt fyrir óvænt jafntefli gegn Svisslendingum, sem jöfnuðu á lokamínútunum, var sigur Brasilíumanna í riðlinum aldrei í hættu. Vegna misskilnings mættu lið Mexíkó og Sviss bæði til leiks í rauðum treyjum í viðureign sinni og þurfti lið Mexíkó því að fá lánaða búninga frá félagsliði í borginni.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 2 | 1 | 0 | 8 | 2 | +6 | 5 | |
2 | Júgóslavía | 3 | 2 | 0 | 1 | 7 | 3 | +4 | 4 | |
3 | Sviss | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 6 | -2 | 3 | |
4 | Mexíkó | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 10 | -8 | 0 |
24. júní 1950 | |||
Brasilía | 4-0 | Mexíkó | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 81.649 Dómari: George Reader, Englandi |
Ademir 30, 79, Jair 65, Baltazar 71 |
25. júní 1950 | |||
Júgóslavía | 3-0 | Sviss | Estádio Independência, Belo Horizonte Áhorfendur: 7.336 Dómari: Giovanni Galeati, Ítalíu |
Mitić 59, Tomašević 70, Ognjanov 84 |
28. júní 1950 | |||
Brasilía | 2-2 | Sviss | Estádio do Pacaembu, São Paulo Áhorfendur: 42.032 Dómari: Ramón Azón Romá, Spáni |
Alfredo 3, Baltazar 32 | Fatton 17, 88 |
28. júní 1950 | |||
Júgóslavía | 4-1 | Mexíkó | Estádio dos Eucaliptos, Porto Alegre Áhorfendur: 11.078 Dómari: Reginald Leafe, Englandi |
Bobek 20, Čajkovski 23, 51, Tomašević 81 | Ortiz 89 |
1. júlí 1950 | |||
Brasilía | 2-0 | Júgóslavía | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 142.429 Dómari: Benjamin Griffiths, Wales |
Ademir 4, Zizinho 69 |
2. júlí 1950 | |||
Sviss | 2-1 | Mexíkó | Estádio dos Eucaliptos, Porto Alegre Áhorfendur: 3.580 Dómari: Ivan Eklind, Svíþjóð |
Bader 10, Antenen 44 | Casarín 89 |
Riðill 2
[breyta | breyta frumkóða]Englendingar tóku þátt í sínu fyrsta heimsmeistaramóti, en fyrir stríð höfðu breksu knattspyrnusamböndin ekki séð ástæðu til að taka þátt í HM. Reiknað var með geysisterku ensku liði á mótinu. Gríðarlega óvænt tap gegn Bandaríkjunum sló Englendinga hins vegar út af laginu og Spánn hafnaði í efsta sæti riðilsins.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Spánn | 3 | 3 | 0 | 0 | 6 | 1 | +5 | 6 | |
2 | England | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 0 | +2 | 2 | |
3 | Síle | 3 | 1 | 0 | 2 | 5 | 6 | -1 | 2 | |
4 | Bandaríkin | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 8 | -4 | 2 |
25. júní 1950 | |||
England | 2-0 | Síle | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 29.703 Dómari: Karel van der Meer, Hollandi |
Mortensen 39, Mannion 51 |
25. júní 1950 | |||
Spánn | 3-1 | Bandaríkin | Estádio Durival de Britto, Curitiba Áhorfendur: 9.511 Dómari: Mário Vianna, Brasilíu |
Igoa 81, Basora 83, Zarra 89 | Pariani 17 |
29. júní 1950 | |||
Spánn | 2-0 | Síle | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 19.790 Dómari: Alberto Malcher, Brasilíu |
Basora 17, Zarra 30 |
29. júní 1950 | |||
Bandaríkin | 1-0 | England | Estádio Independência, Belo Horizonte Áhorfendur: 10.151 Dómari: Generoso Dattilo, Ítalíu |
Gaetjens 38 |
2. júlí 1950 | |||
Spánn | 1-0 | England | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 74.462 Dómari: Giovanni Galeati, Ítalíu |
Zarra 48 |
2. júlí 1950 | |||
Síle | 5-2 | Bandaríkin | Estádio Ilha do Retiro, Recife Áhorfendur: 8.501 Dómari: Mário Gardelli, Brasilíu |
Robledo 16, Cremaschi 32, 60, Prieto 54, Riera 82 | Wallace 47, Maca 48 |
Riðill 3
[breyta | breyta frumkóða]Indverjar áttu að vera fjórða liðið í riðlinum en hættu við keppni. Ítalska landsliðið varð fyrir áfalli þegar meistaralið Tórínó fórst í flugslysi árið 1949, en þar létust margir burðarmanna landsliðsins. Alþjóðaknattspyrnusambandinu tókst þó að sannfæra Ítali um að mæta til keppni. Minnugir flugslyssins ákváðu Ítalir að fara sjóleiðina til Brasilíu. Ferðalúið og reynslulítið lið þeirra tapaði fyrsta leik gegn Svíum og þar með var draumurinn um að verja titilinn úti.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Svíþjóð | 2 | 1 | 1 | 0 | 5 | 4 | +1 | 3 | |
2 | Ítalía | 2 | 1 | 0 | 1 | 4 | 3 | +1 | 2 | |
3 | Paragvæ | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 | 4 | -2 | 1 |
25. júní 1950 | |||
Svíþjóð | 3-2 | Ítalía | Estádio do Pacaembu, São Paulo Áhorfendur: 36.502 Dómari: Jean Lutz, Sviss |
Jeppson 25, 68, Andersson 33 | Carapellese 7, Muccinelli 75 |
29. júní 1950 | |||
Svíþjóð | 2-2 | Paragvæ | Estádio Durival Britto, Curitiba Áhorfendur: 7.903 Dómari: George Mitchell, Skotlandi |
Sundqvist 17, Palmér 26 | López 35, López Fretes 74 |
2. júlí 1950 | |||
Ítalía | 2-0 | Paragvæ | Estádio do Pacaembu, São Paulo Áhorfendur: 25.811 Dómari: Arthur Ellis, Englandi |
Carapellese 12, Pandolfini 62 |
Riðill 4
[breyta | breyta frumkóða]Frakkar áttu að vera þriðja þjóðin í riðlinum en drógu sig til baka skömmu áður en mótið hófst vegna deilna við skipuleggjendur keppninnar, sem vildu láta liðið ferðast 3.000 kílómetra leið milli tveggja leikja. Suður-Ameríkuliðin Bólivía og Úrúgvæ voru því ein í riðlinum. Heimsmeistararnir frá 1930 fóru létt með reynslulítið lið Bólivíu og unnu 8:0, sem var stærsti sigur í úrslitakeppni HM fram að þessu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Úrúgvæ | 1 | 1 | 0 | 0 | 8 | 0 | +8 | 2 | |
2 | Bólivía | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 | 8 | -8 | 0 |
2. júlí 1950 | |||
Úrúgvæ | 8-0 | Bólivía | Estádio Independência, Belo Horizonte Áhorfendur: 5.284 Dómari: George Reader, Englandi |
Míguez 14, 40, 51, Vidal 18, Schiaffino 23, 54, Pérez 83, Ghiggia 87 |
Úrslitariðill
[breyta | breyta frumkóða]Í fyrsta og eina sinn í sögu HM var notast við úrslitariðil. Litlu mátti muna að úrslitin væru ráðin fyrir lokaumferðina, því Brasilíumenn unnu stórsigra á Spánverjum og Svíum í sínum leikjum. Úrúgvæ gerði hins vegar aðeins jafntefli gegn Spáni og vann Svía 3:2 eftir að hafa lent 0:2 undir. Þar með var ljóst að Brasilíu nægði jafntefli gegn Úrúgvæ í síðasta leiknum.
Heimamenn komust yfir í upphafi síðari hálfleiks og rétt um 200 þúsund áhorfendur bjuggu sig undir að fagna heimsmeistaratitlinum. Tvö mörk Úrúgvæ breyttu þeim draumi í martröð. Úrúgvæ varð heimsmeistari í annað sinn en brasilíska þjóðin var harmi sleginn.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Úrúgvæ | 3 | 2 | 1 | 0 | 7 | 5 | +2 | 5 | |
2 | Brasilía | 3 | 2 | 0 | 1 | 14 | 4 | +10 | 4 | |
3 | Svíþjóð | 3 | 1 | 0 | 2 | 6 | 11 | -5 | 2 | |
4 | Spánn | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 | 11 | -7 | 1 |
9. júlí 1950 | |||
Úrúgvæ | 2-2 | Spánn | Estádio do Pacaembu, São Paulo Áhorfendur: 44.802 Dómari: Benjamin Griffiths, Wales |
Ghiggia 29, Varela 73 | Basora 37,39 |
9. júlí 1950 | |||
Brasilía | 7-1 | Svíþjóð | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 138.886 Dómari: Arthur Ellis, Englandi |
Ademir 17, 36, 52, 58, Chico 39, 88, Maneca 85 | Andersson 67 |
13. júlí 1950 | |||
Brasilía | 6-1 | Spánn | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 152.772 Dómari: Reginald Leafe, Englandi |
Ademir 15, 57, Jair 21, Chico 33, 55, Zizinho 67 | Igoa 71 |
13. júlí 1950 | |||
Úrúgvæ | 3-2 | Svíþjóð | Stádio do Pacaembu, São Paulo Áhorfendur: 7.987 Dómari: Giovanni Galeati, Ítalíu |
Ghiggia 39, Míguez 77, 85 | Palmér 5, Sundqvist 40 |
16. júlí 1950 | |||
Svíþjóð | 3-1 | Spánn | Estádio do Pacaembu, São Paulo Áhorfendur: 11,227 Dómari: Karel van der Meer, Hollandi |
Sundqvist 15, Mellberg 33, Palmér 80 | Zarra 82 |
16. júlí 1950 | |||
Úrúgvæ | 2-1 | Brasilía | Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro Áhorfendur: 173.850 Dómari: George Reader, Englandi |
Schiaffino 66, Ghiggia 79 | Friaça 47 |
Markahæstu leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]Ademir frá Brasilíu varð markakóngur keppninnar. Alls voru 88 mörk skoruð af 48 leikmönnum, ekkert þeirra var sjálfsmark.
- 9 mörk
- 5 mörk
- 4 mörk