1761
Útlit
(Endurbeint frá MDCCLXI)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1761 (MDCCLXI í rómverskum tölum) var 61. ár 18. aldar sem hófst á fimmtudegi samkvæmt gregoríska dagatalinu en mánudegi samkvæmt júlíska dagatalinu.
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- September - Brotist var inn í kirkjuna á Stað í Hrútafirði og stolið peningum, tóbaki og fatnaði.
- 16. september - Ólafur Stephensen og Sigríður Magnúsdóttir voru gefin saman í hjónaband í Leirárkirkju.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Bók Wilhelms Hastfers um fyrirkomulag fjárræktar á Íslandi kom út á íslensku.
- Eggert Ólafsson lauk við handrit sitt að Potologia Islandorum.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]27. október - Geir Vídalín, biskup. 11. janúar - Bjarni Bjarnason (á Sjöundá), morðingi
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 14. janúar - Þriðja orrustan við Panipat: Ahmad Shah Durrani og bandamenn hans sigruðu Marattaveldið og endurheimtu völd stórmógúlsins Shah Alam 2.. 100.000 létust í hjá Marattamönnum, hermenn og borgarar.
- 16. janúar - Bretar náðu Pondicherry á Indlandi af Frökkum.
- 6. júní - Venus gekk fyrir sólu. Míkhaíl Lomonosov uppgötvaði andrúmsloft á Venus.
- 17. júlí - Fyrsti áfangi Bridgewater-skurðarins var opnaður í Bretlandi.
- 8. september - Georg 3. Bretakonungur gekk að eiga Karlottu af Mecklenburg-Strelitz.
- 16. september - Sjö ára stríðið: Rússar náðu prússnesku borginni Kolberg á sitt vald.
- 19. september - Þrælahald í Portúgal var aflagt.
- 19. nóvember - Friðarsamningar voru gerðir milli Breta og Séróka í Ameríku.
- 24. nóvember - Spánverjar bældu niður uppreisn Maja á Júkatan í Mexíkó, um 500 létust af Mayum og 40 Spánverjar.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 17. janúar - James Hall, skoskur jarðfræðingur (d. 1832).
- 1. febrúar - Christian Hendrik Persoon, suðurafrískur sveppafræðingur (d. 1836).
- 3. febrúar - Dorothea von Medem, lettneskur erindreki og hertogaynja af Kúrlandi (d. 1821).
- 16. febrúar - Charles Pichegru, franskur herforingi (d. 1806).
- 22. febrúar - Erik Tulindberg, finnskt tónskáld (d. 1814).
- 6. mars - Antoine-Francois Andreossy, franskur herforingi (d. 1828).
- 3. maí - August von Kotzebue, þýskt leikskáld (d. 1819).
- 14. maí - Samuel Dexter, bandarískur stjórnmálamaður (d. 1816).
- 3. júní - Henry Shrapnel, breskur uppfinningamaður (d. 1842).
- 7. júní - John Rennie eldri, skoskur verkfræðingur (d. 1821).
- 21. október - Louis Albert Guislain Bacler d'Albe, franskur kortagerðarmaður (d. 1824).
- 27. október - Matthew Baillie, skoskur læknir (d. 1823).
- 4. nóvember - Bertrand Andrieu, franskur málmskurðarmeistari (d. 1822).
- 13. nóvember - John Moore, breskur herforingi (d. 1809).
- 20. nóvember - Francesco Saverio Castiglioni (Píus 8.) páfi (d. 1830).
- 1. desember - Marie Tussaud, franskur vaxmyndasmiður (d. 1850).
- 24. desember - Jean-Louis Pons, franskur stjörnufræðingur (d. 1831).
- 27. desember - Michael Andreas Barclay de Tolly, rússneskur herforingi (d. 1818).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 4. janúar - Stephen Hales, enskur vísindamaður (f. 1677).
- 7. janúar - Darkey Kelly, írskur raðmorðingi.
- 10. janúar - Edward Boscawen, enskur aðmíráll (f. 1711).
- 1. febrúar - Pierre François Xavier de Charlevoix, franskur sagnfræðingur (f. 1682).
- 4. apríl - Theodore Gardelle, svissneskur myndlistarmaður (f. 1722).
- 9. apríl - William Law, enskur prestur (f. 1686).
- 15. apríl - Archibald Campbell, 3. hertogi af Argyll, skoskur stjórnmálamaður (f. 1682).
- 17. apríl - Thomas Bayes, breskur stærðfræðingur (f. um 1702).
- 14. maí - Thomas Simpson, breskur stærðfræðingur (f. 1710).
- 2. júní - Jonas Alströmer, sænskur iðnjöfur (f. 1685).
- 4. júlí - Samuel Richardson, breskur rithöfundur (f. 1689).
- 9. júlí - Carl Gotthelf Gerlach, þýskur organisti (f. 1704).
- 13. júlí - Tokugawa Ieshige, japanskur herstjóri (f. 1712).
- 16. júlí - Jacob Fortling, dansk-þýskur myndhöggvari og arkitekt.
- 3. ágúst - Johann Matthias Gesner, þýskur fornfræðingur (f. 1691).
- 8. september - Bernard Forest de Bélidor, franskur verkfræðingur (f. 1698).
- 30. nóvember - John Dollond, enskur sjóntækjafræðingur (f. 1706).
- 23. desember - Alestair Ruadh MacDonnell, skoskur njósnari (f. 1725).