Fara í innihald

Wikipedia:Sálfræði 103

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Athugið! Vinsamlegast lagið greinarnar ykkar eins og óskað er eftir og hafið tilbúnar svo kennari geti einnig metið framlag ykkar. --Aldisg 2. nóv. 2005 kl. 14:28 (UTC)



Nemendur athugið: Nokkuð hefur borið á að við skrif sálfræðigreina hér á Wikipediu hafi málfarið ekki verið vandað né farið eftir reglum um hvernig skrifa skuli greinar á Wikipediu. Því vil ég biðja ykkur um að laga þetta og bendi í þeim tilgangi á kynningu á Wikipediu fyrir byrjendur. Þar kemur meðal annars fram að heiti greinar skuli breiðletrað og að tengja skuli á milli greina með hornklofum. Svona myndi ég vísa í grein sem heitir [[sálfræði]]. Ef orðið er í öðru falli en nefnifalli er það gert svona [[hestur|hests]]. Sé ekki farið eftir þessu eigið þið á hættu að greinunum ykkar verði verulega breytt eða jafnvel hent. --Heiða María 1. nóv. 2005 kl. 23:08 (UTC)


Til annarra Wikipedianotenda: Þetta er verkefnasíða fyrir sálfræði 103 í MH. Vinsamlegast ekki breyta eða eyða þessari grein á meðan á verkefninu stendur. --Heiða María 8. sep. 2005 kl. 23:06 (UTC)

Nemendur Aldísar nota einnig þessa síðu og vinna verkefni sem báðir hóparnir geta síðan skoðað. Nemendum Heiðu er frjálst að breyta því sem Aldísar nemendur setja inn og öfugt. Verkefni fyrir Aldísar nemendur eru hér að neðan. --Aldisg 14. sep. 2005 kl. 18:35 (UTC)

Athugið að komið er nýtt verkefni fyrir nemendur Aldísar sem byggist á 3. kafla um minni. Það er að finna hér að neðan. --Aldisg 23. okt. 2005 kl. 17:58 (UTC)


Sálfræði 103: Vefverkefni úr 2. kafla.

Veljið ykkur a.m.k. einn "karl" (því miður engar konur hér) og tvö hugtök úr 2. kafla til að skrifa um hér á íslensku Wikipediu. Finnið heiti fyrir hópinn ykkar og skráið heitið við hlið karlsins eða hugtaksins sem þið ætlið að taka fyrir. Þetta gerið þið með því að ýta á breyta-takkann hér fyrir ofan. Þar getið þið líka bætt við listann ef ykkur langar að taka eitthvað fyrir sem ekki er þegar á listanum. Einnig megið þið alveg breyta greinum sem aðrir hópar hafa gert, en gefið þeim smátíma til að vinna í greinunum sjálfir fyrst.

Athugið að sumir tenglarnir eru bláir, en það þýðir að nú þegar er til grein á Wikipedia með þessu nafni. Ykkur er frjálst að breyta, bæta eða jafnvel eyða því sem þar stendur. Ekki taka allt sem er hér inni trúanlega, sumt er algjört bull, meira að segja það sem ég hef sjálf skrifað!

Heimildir finnið þið aðallega í bókinni. Einnig ætlast ég til að þið flettið upp á netinu. Ensk orð yfir hugtökin getiði fundið í orðalista aftast í bókinni. Þeim getiði svo flett upp með því að nota leitarvél, en yfirleitt er betra að nota alfræðiorðabækur á netinu, t.d.

Þegar þið skrifið, notið takkana hér fyrir ofan (þeir birtast þegar þið ýtið á breyta-takkann) til að feitletra titil greinarinnar, skáletra, búa til innri og ytri tengla o.s.frv. Oft er gott að ýta á forskoða-takkann til að athuga hvernig breytingarnar koma út. Þegar þið eruð ánægð skuluð þið ýta á vista-takkann. Gott er að vista reglulega, sérstaklega ef þið eruð að gera viðamiklar breytingar, annars eigið þið á hættu að missa textann út ef tölvan klikkar eitthvað.

Karlar í sögu sálfræðinnar

[breyta frumkóða]

Hugtök í sögu sálfræðinnar

[breyta frumkóða]

Hugur og heili

[breyta frumkóða]


Verkefni úr 2. kafla fyrir Aldísar nemendur:



Verkefni úr 3. kafla fyrir Aldísar nemendur: