Tallinn

Hnit: 59°25′00″N 24°46′00″A / 59.41667°N 24.76667°A / 59.41667; 24.76667
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tallinn
Tallinn.jpg
Tallinn is located in Eistland
Tallinn
Land Eistland
Íbúafjöldi 429.899 (2014)
Flatarmál 159,2 km²
Póstnúmer 15080
Höfnin og gamli bærinn í Tallinn.

Tallinn (sögulegt nafn (til 1918): Reval, á forníslensku Rafali eða Refalir) er höfuðborg og aðalhöfn Eistlands. Hún er staðsett í Harju-sýslu á norðurströnd Eistlands við Finnlandsflóa, 80 km suður af Helsinki. Íbúar Tallinn eru um það bil 400.000 manns og er flatarmál borgarinnar 159,2 km² (2014). Borgarstjórinn heitir Edgar Savisaar, fyrirverandi borgarstjórinn er Jüri Ratas sem var borgarstjóri í rúm 2 ár. Stærsta vatnið í Tallinn heitir Ülemiste (9,6 km²) og er aðal drykkjarvatnsforði borgarbúa. Sögulega nafnið Reval (latína: Revalia) er sænskt og þýskt (gömul sænska: Räffle).

Nafnið Tallinn (Tana-linn) merkir Danavirki. Danski fáninn, Dannebrog, er sagður hafa fallið af himni ofan í orrustu sem Danir háðu í Lyndanisse einsog Danir nefndu þá Tallinn, en orustan var háð 15. júní 1219.

Íbúafjöldi[breyta | breyta frumkóða]

Íbúafjöldi Tallinn frá 1372 til 2014:

Ár Íbúar
1372 3.250
1772 6.954
1816 12.000
1834 15.300
1851 24.000
1881 45.900
1897 58.800
1925 119.800
1959 283.071
1989 478.974
1996 427.500
2000 400.378
2005 401.694
2006 399.108
2010 411.902
2014 429.899
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.