Frank-Walter Steinmeier
Frank-Walter Steinmeier | |
---|---|
Forseti Þýskalands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 19. mars 2017 | |
Kanslari | Angela Merkel Olaf Scholz |
Forveri | Joachim Gauck |
Utanríkisráðherra Þýskalands | |
Í embætti 17. desember 2013 – 27. janúar 2017 | |
Kanslari | Angela Merkel |
Forveri | Guido Westerwelle |
Eftirmaður | Sigmar Gabriel |
Í embætti 22. nóvember 2005 – 27. október 2009 | |
Kanslari | Angela Merkel |
Forveri | Joschka Fischer |
Eftirmaður | Guido Westerwelle |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 5. janúar 1956 Detmold, Vestur-Þýskalandi |
Stjórnmálaflokkur | Jafnaðarmannaflokkurinn |
Maki | Elke Büdenbender (g. 1995) |
Börn | 1 |
Háskóli | Háskólinn í Giessen |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Frank-Walter Steinmeier (fæddur 5. janúar 1956 í Detmold, Nordrhein-Westfalen) er þýskur stjórnmálamaður í sósíaldemókrataflokknum (SPD). Hann hefur verið forseti Þýskalands frá 19. mars 2017.
Áður en Steinmeier varð forseti hafði hann verið utanríkisráðherra Þýskalands í tvígang, á árunum 2005 til 2009 og frá 2013 til 2017. Frá 1999 til 2005 var hann ráðuneytisstjóri hjá kanslaraembættinu.
Menntun og störf
[breyta | breyta frumkóða]Steinmeier fæddist 1956 í Detmold í sambandslandinu Nordrhein-Westfalen, en faðir hans var smiður. Eftir stúdentspróf árið 1974 í Blomberg gengdi hann herþjónustu í tvö ár eða þangað til hann hóf nám í lögfræði og síðar stjórnmálafræði við Justus-Liebig háskólann í Gießen, sem hann lauk 1986. Hann var frá því í menntaskóla meðlimur ungliðahreyfingar sósíaldemókrataflokksins.
Árið 1991 varði hann doktorsritgerð sína í lögfræði, sem bar heitið „Borgarar án þaks – milli skyldu til framfærslu og réttar á lífsrými; venja og viðhorf opinberrar íhlutunar við hindrun og útrýmingu húsnæðisleysis“.
Sama ár gerðist hann ráðgjafi í fjölmiðlunarrétti við forsætisráðuneyti Neðra-Saxlands í Hannover. Tveimur árum seinna tók hann við embætti skrifstofustjóra hjá Gerhard Schröder, sem á þessum tíma var forsætisráðherra Neðra-Saxlands.
Eftir að ljóst varð árið 1998 að Schröder yrði kanslari ákvað Steinmeier að fylgja honum í ríkisstjórn þýska sambandslýðveldisins og 1999 var hann orðinn ráðuneytisstjóri hjá kanslaraembættinu.
Steinmeier var einn af nánustu samstarfsmönnum Schröders og hefur verið lýst sem manninum á bakvið tjöldin. Þannig gerði hann mikilvægar framkvæmdaáætlanir, t.d. í ellilífeyris- og heilbrigðismálum, og tók þátt í Agenda 2010 og umfangsmiklum skattalagabreytingum.
13. október 2005 varð ljóst að hann yrði utanríkisráðherra og tók hann formlega við embættinu 22. nóvember 2005 í ríkisstjórn Angelu Merkels.
Steinmeier var kjörinn forseti Þýskalands af þýska þinginu þann 27. febrúar 2017 með 75 prósentum atkvæða.[1] Hann var endurkjörinn til annars fimm ára kjörtímabils þann 13. febrúar árið 2022.[2]
Fjölskyldulíf
[breyta | breyta frumkóða]Steinmeier er giftur og á eina dóttur.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Kári Gylfason (12. febrúar 2017). „Frank-Walter Steinmeier nýr forseti Þýskalands“. RÚV. Sótt 28. október 2021.
- ↑ Alexander Kristjánsson (13. febrúar 2022). „Steinmeier endurkjörinn forseti Þýskalands“. RÚV. Sótt 13. febrúar 2022.
Fyrirrennari: Joachim Gauck |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |