Barentsráðið
Barentsráðið (enska: The Barents Euro-Arctic Council eða BEAC) var stofnað 1993 með Kirkenes-yfirlýsingunni sem undirrituð var af fulltrúum Norðurlandanna, Rússlands og framkvæmdastjórnar ESB. Auk aðildarríkjanna eru níu áheyrnarríki[óvirkur tengill] innan ráðsins. Ráðið er dæmi um nánari samvinnu Norrænu ráðherranefndarinnar og annarra norrænna stofnana við Eystrasaltsríkin og svæði í Norðvestur-Rússlandi í kjölfar loka Kalda stríðsins.
Barentsráðið er vettvangur aukinnar samvinnu og samstarfs þeirra svæða sem liggja að Barentshafinu, þ.e. norðurhluta Skandinavíu og Norðvestur-Rússlands.
Skrifstofa ráðsins opnaði 2008 í Kirkenes í Norður-Noregi.
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
- Vefsíða Barentsráðsins[óvirkur tengill] (á ensku)
- Um samstarf á Norðurslóðum á Norden.org[óvirkur tengill] (á sænsku)