Tuttugasta og önnur konungsættin
Útlit
Tímabil og konungsættir í Egyptalandi hinu forna | ||
Forsaga Egyptalands | ||
---|---|---|
Fornkonungar Egyptalands | ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
|
Tuttugasta og önnur konungsættin í sögu Egyptalands hins forna var önnur konungsætt þriðja millitímabilsins. Þessi konungsætt ríkti frá Tanis í neðra Egyptalandi. Konungar þessarar ættar voru messúessar (berbar) frá Líbýu sem höfðu sest að í Egyptalandi frá tímum tuttugustu konungsættarinnar. Þeir ríktu frá 943 f.Kr. til 720 f.Kr. Tuttugasta og þriðja konungsættin sem ríkti yfir efra Egyptalandi var líklega afsprengi þessarar konungsættar.
Konungar 22. konungsættarinnar
[breyta | breyta frumkóða]Nafn | Athugasemdir | Ártöl |
---|---|---|
Sosenk 1. | Líklega Sísak úr Biblíunni | 943 – 922 f.Kr. |
Osorkon 1. | 922 – 887 f.Kr. | |
Takelot 1. | 887 – 874 f.Kr. | |
Sosenk 2. | ríkti sem sjálfstæður konungur í Tanis í tvö ár samkvæmt Von Beckenrath | 874 – 872 f.Kr. |
Horsaset | sjálfstæður konungur í Þebu sem ríkti samhliða Osorkon 1. og Takelot 1. | 880 – 860 f.Kr. |
Osorkon 2. | bandamaður Ísraels sem barðist gegn Salmaneser 3. frá Assyríu í orrustunni við Karkar 853 f.Kr.. | 872 – 837 f.Kr. |
Sosenk 3. | 837 – 798 f.Kr. | |
Sosenk 4. | ekki rugla saman við Sosenk 6. sem var kallaður Sosenk 4. í útgefnum ritum frá því fyrir 1993. | 798 – 785 f.Kr. |
Pami | gróf tvö Apisnaut á valdatíma sínum | 785 – 778 f.Kr. |
Sosenk 5. | 778 – 740 f.Kr. | |
Osorkon 4. | ríkti frá eystri Nílarósum samtímis Tefnakte frá Saís og Iuput 2. í Leontopolis | 740 – 720 f.Kr. |