Fara í innihald

Sænska karlalandsliðið í knattspyrnu

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sænska karlalandsliðið í knattspyrnu
Merki landsliðsins
GælunafnBlågult (Þeir bláugulu)
ÁlfusambandUEFA
ÞjálfariFáni Danmerkur Jon Dahl Tomasson
FyrirliðiVictor Lindelöf
LeikvangurFriends Arena
FIFA sæti
  Hæst
  Lægst
22 (6. apríl 2023)
2 ((nóvember 1994))
45 ((mars 2017))
Heimabúningur
Útibúningur
Fyrsti landsleikur
11-3 gegn Noregi, Gautaborg, Svíþjóð 12. júlí 1908)
Stærsti sigur
12-0 gegn Lettlandi Stokkhólmi Svíþjóð 29. maí, 1927, 12-0 gegn Suður Kóreu, London Englandi, 5. ágúst 1948 .
Mesta tap
12–1 gegn Bretlandi 20. október 1908
Heimsmeistaramót
Keppnir12 (fyrst árið 1934)
Besti árangurSilfur 1958

Sænska karlalandsliðið í knattspyrnu (Sænska: Svenska fotbollslandslaget) keppir fyrir hönd Svíþjóðar á alþjóðlegum vettvangi og er stjórnað af Sænska knattspyrnusambandinu, heimaleikvangur Svía er Friends Arena í Stokkhólmi. Þjálfari liðsins heitir Janne Andersson. Frá 1945 til 1955 var liðið talið með sterkustu liðum heims.

Svíþjóð hefur tólf sinnum tekið þátt á Heimsmeistarakeppni í Knattspyrnu, fyrst árið 1934. sjö sinnum tekið þátt á Evrópumótinu í knattspyrnu. Það hlaut silfur á Heimsmeistaramótinu 1958 á heimavelli, og brons 1950 og 1994. Af fleiri afrekum þess má nefna gull á Ólympíuleikunum 1948 og brons árið 1924 og 1952. Liðið komst einnig í undanúrslit á EM 1992 sem gestgjafar á því móti.

Árangur á stórmótum

[breyta | breyta frumkóða]
Sænska landsliðið sem náði silfurverðlaunum á heimavelli á HM 1958

EM í knattspyrnu

[breyta | breyta frumkóða]
ÁR Gestgjafar Árangur
EM 1992  Svíþjóð Brons
EM1996 Fáni EnglandsEngland Tóku ekki þátt
EM 2000  Belgía &  Holland Riðlakeppni
EM 2004  Portúgal 8. liða úrslit
EM 2008  Austurríki &  Sviss Riðlakeppni
EM 2012  Pólland &  Úkraína Riðlakeppni
EM 2016  Frakkland Riðlakeppni
EM 2021 Fáni ESBEvrópa 16. liða úrslit
EM 2024 Fáni ÞýskalandsÞýskaland Tóku ekki þátt

HM Árangur

[breyta | breyta frumkóða]
Ár Gestgjafar Árangur
HM 1934  Ítalía 8. liða úrslit
HM 1938  Frakkland 4. sæti
HM 1950  Brasilía Brons
HM 1954  Sviss Tóku ekki þátt
HM 1958  Svíþjóð Silfur
HM 1962  Síle Tóku ekki þátt
HM 1966 Fáni Englands England Tóku ekki þátt
HM 1970 Fáni MexíkósMexíkó Riðlakeppni
HM 1974  Þýskaland Milliriðill
HM 1978 Fáni ArgentínuArgentína Riðlakeppni
HM 1982  Spánn Tóku ekki þátt
HM 1986 Fáni MexíkósMexíkó Tóku ekki þátt
HM 1990  Ítalía Riðlakeppni
HM 1994  Bandaríkin Brons
HM 1998  Frakkland Tóku ekki þátt
HM 2002 Fáni Suður-Kóreu Suður-Kórea &  Japan 16 liða úrslit
HM 2006  Þýskaland 16 liða úrslit
HM 2010 Fáni Suður-AfríkuSuður-Afríka Tóku ekki þátt
HM 2014  Brasilía Tóku ekki þátt
HM 2018  Rússland 8 liða úrslit
HM 2022  Katar Tóku ekki þátt


Zlatan Ibrahimović er markahæsti leikmaður í sögu Svía með 62 mörk fyrir landsliðið.

Flestir leikir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Andreas Svensson: 148
  2. Thomas Ravelli: 143
  3. Andreas Isaksson: 133
  4. Kim Källström: 131
  5. Sebastian Larsson: 118

Flest mörk

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Zlatan Ibrahimović: 62
  2. Sven Rydell: 49
  3. Gunnar Nordahl: 43
  4. Henrik Larsson: 37
  5. Gunnar Gren: 32