Listi yfir þekkta Vestmannaeyinga
Útlit
Margir Vestmannaeyingar eru þekktir á landsvísu. Hér eru nefndir nokkrir þeirra:
- Árni Johnsen fyrrverandi alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og lengst af umsjónarmaður brekkusöngsins á Þjóðhátíð í Eyjum.
- Árni Sigfússon fyrrverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ og borgarstjóri í Reykjavík.
- Árni úr Eyjum samdi fyrsta þjóðhátíðarlagið 1933 með Oddgeiri Kristjánssyni og fleiri kunn sönglög.
- Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnumaður og fyrrum landsliðsþjálfari Íslands.
- Ási í Bæ var einn frægasti textasmiður og tónlistarmaður Vestmannaeyja. Hann samdi mörg lög og ljóð, þar á meðal Ástin Bjarta og Ég veit þú kemur, sem hann samdi við lag Oddgeirs Kristjánssonar.
- Berglind Sigmarsdóttir eigandi veitingastaðarins Gott í Vestmannaeyjum og höfundur matreiðslubókarinnar Heilsuréttir Fjölskyldunnar.
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir knattspyrnukona.
- Binni í Gröf var landsfrægur aflamaður og sótti sextíu þúsund tonn í sjávardjúp að sögn Ása í Bæ.
- Elliði Vignisson fyrrverandi bæjarstjóri Vestmannaeyja.
- Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona. Vann Edduverðlaunin 2002 fyrir leik sinn í Hafinu.
- Eygló Harðardóttir fyrrum velferðarráðherra og þingmaður Suðurkjördæmis fyrir Framsóknarflokkinn.
- Gísli Óskarsson, er fréttamaður hjá RÚV, þekktur líffræðingur og heimildamyndagerðarmaður. Bróðir hans er Snorri Óskarsson hér að neðan.
- Guðbjörg Matthíasdóttir aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja og Árvakurs útgáfufélags Morgunblaðsins.
- Guðjón Hjörleifsson var bæjarstjóri Vestmannaeyja í 12 ár, fyrrum alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn ásamt því að hafa verið í bæjarstjórn Vestmannaeyja.
- Guðlaugur Friðþórsson öðlaðist heimsfrægð þegar vélbáturinn Hellisey, sem hann var háseti á, sökk suðaustur af Heimaey árið 1984, en þá synti hann um 5 kílómetra í land í vonskuveðri, gekk berfættur yfir nýja hraunið, sem var þá enn heitt, og gerði bæjarbúum viðvart um afdrif skipsins.
- Guðríður Símonardóttir, Tyrkja-Gudda.
- Gunnlaugur Halldórsson arkitekt frá Konunglegu Listaakademíunni í Kaupmannahöfn og heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands.
- Heimir Hallgrímsson, fyrrum þjálfari ÍBV og aðstoðarlandsliðsþjálfari í tíð Lars Lagerbäck
- Hermann Hreiðarsson knattspyrnumaður hjá Charlton og landsliðsmaður Íslands.
- Högna Sigurðardóttir arkitekt frá École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París og heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands.
- Júlíana Sveinsdóttir myndlistarmaður
- Karl Gauti Hjaltason fyrrum sýslumaður í Eyjum frá 1998 og núverandi þingmaður Miðflokksins.
- Keikó, sem var líklega frægasti háhyrningur í heimi, var fluttur frá Bandaríkjunum til Vestmannaeyja síðsumars 1998 og dvaldist hann í sérsmíðaðri kví í Klettsvík á Heimaey í nokkur ár þar til honum var sleppt lausum í Atlantshafið, en hann dó utan stranda Noregs árið 2003, og var grafinn í jörðu þar í landi.
- Lúðvík Bergvinsson var í bæjarstjórn Vestmannaeyja, ásamt því að vera fyrrum alþingismaður Samfylkingarinnar
- Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona.
- Oddgeir Kristjánsson, þekktasti tónlistarmaður úr Eyjum, samdi mörg fræg lög með Ása í Bæ og Árna úr Eyjum.
- Óskar J. Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða hefur sinnt fuglamerkingum frá árinu 1952.
- Páll Magnússon, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrum útvarpstjóri RÚV.
- Páll Zóphóníasson var bæjartæknifræðingur Vestmannaeyja í eldfellsgosinu 1973 og er áframhaldandi byggð á Heimaey að miklu leyti honum að þakka, en margir fleiri eiga heiður skilinn fyrir afburða framlög í þeim efnum.
- Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir varð ungfrú Ísland árið 2001.
- Selma Ragnarsdóttir fatahönnuður
- Sigfús M. Johnsen var í á þriðja tug ára fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í Reykjavík. Árið 1940 varð hann bæjarfógeti í Vestmannaeyjum.
- Sigmund Johanson Baldvinsen, teiknaði skopmyndir fyrir Morgunblaðið í áratugi, er samt þekktastur meðal sjómanna fyrir uppfinningarnar sínar: Sigmundsbeltið og sjálfvirka losunarbúnaðinn.
- Sigurdís Harpa Arnarsdóttirmyndlistarkona, hefur haldið yfir 40 einkasýningar frá árinu 1994.
- Snorri Óskarsson "Snorri í Betel" er þekktur fyrir aðild sína að Hvítasunnusöfnuðinum.
- Védís Vantída Guðmundsdóttir söngkona
- Þorsteinn Jónsson var mikill fiskimaður, en hann var formaður á vélbát sínum í 48 ár.
- Þorsteinn Víglundsson var einn atorkusamasti athafnamaður eyjanna, þekktastur fyrir byggingu gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum, þar sem nú er Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum