Ingvar Eggert Sigurðsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Ingvar E. Sigurðsson)
Ingvar Eggert Sigurðsson
Ingvar Eggert Sigurðsson.jpg
Ingvar Eggert Sigurðsson í júlí 2012
Upplýsingar
FæddurIngvar Eggert Sigurðsson
22. nóvember 1963 (1963-11-22) (59 ára)
Fáni Íslands Reykjavík, Ísland
Ár virkur1990 - nú
MakiEdda Arnljótsdóttir
BörnSnæfríður Ingvarsdóttir
Áslákur Ingvarsson
Sigurður Ingvarsson
Hringur Ingvarsson
Helstu hlutverk
Grjóni
í Djöflaeyjan (1996)
Óli
í Sporlaust (1998)
Páll
í Englar alheimsins (2000)
Grímur eldri
í Kaldaljós (2004)
Erlendur
í Mýrin (2006)
Edduverðlaun
Leikari/leikkona ársins í aðalhlutverki
2006 Mýrin
2004 Kaldaljós
Leikari ársins í aðalhlutverki
2000 Englar alheimsins
Leikari ársins
1998 Slurpinn & Co.

Ingvar Eggert Sigurðsson (f. 22. nóvember 1963), oft nefndur Ingvar E. Sigurðsson, er íslenskur leikari og edduverðlaunahafi. Hann hefur leikið í leikhúsi, útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hann hefur einnig starfað sem handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi.

Ævi[breyta | breyta frumkóða]

Ingvar fæddist 22. nóvember 1963 í Reykjavík. Árið 1990 útskrifaðist hann úr Leiklistarskóla Íslands. Ári síðar var hann ráðinn til Þjóðleikhússins þar sem hann hefur farið með fjölda hlutverka.[1]

Ferill[breyta | breyta frumkóða]

Ferill í leikritum[breyta | breyta frumkóða]

Hlutverk sem Ingvar hefur leikið í Þjóðleikhúsinu eru: Pétur Gaut í Pétur Gautur, Vitju í Kæra Jelena, Tíbalt í Rómeó og Júlíu, Ingimund í Elínu Helgu Guðríði, Scullery í Stræti, Svenna í Kjaftagangi, drenginn í Stund gaupunnar, Leonardó í Blóðbrullaupi, Ormur Óðinsson í Gauragangi, Fernando Krapp í Sönnum karlmanni, Don Carlos í Don Juan, Ketil í Tröllakirkju, Prófstein í Sem yður þóknast, Sergé í Listaverkinu, Túzenbach barón í Þremur systrum og Kládíus konungur í Hamlet.

Ferill í kvikmyndum og þáttum[breyta | breyta frumkóða]

Ár Kvikmynd/Þáttur Hlutverk Athugasemdir og verðlaun
1990 Sérsveitin laugarnesvegi 25
1992 Ingaló Skúli
1994 Skýjahöllin Pabbi Alla
1995 Í draumi sérhvers manns
1996 Djöflaeyjan Grjóni
Sigla Himinfley Einar
1997 A Legend to Ride Gunnar
Perlur og svín Viktor
Stikkfrí
1998 Slurpinn & Co. Leikari ársins
Incest
Sporlaust Óli
Áramótaskaupið 1998
1999 Áramótaskaupið 1999
2000 Englar alheimsins Páll Leikari ársins
2001 Villiljós Sölvi
Skrímsli Dr. Svendsen
Áramótaskaupið 2001
2002 Fálkar Lögregla
K-19: The Widowmaker Gorelov
2003 Second Nature Franz
Stormy Weather Gunnar
2004 Njálssaga Njáll
Kaldaljós Eldri Grímur Leikari ársins
2005 Bjólfskviða Grendel
2006 Mýrin Erlendur Leikari ársins
Áramótaskaupið 2006
Börn Framleiðandi
2007 Foreldrar Óskar Sveinn, framleiðandi og handritshöfundur Leikari ársins
Stóra planið Magnús
2008 Country Wedding Prestur
2008 Reykjavík - Rotterdam Steingrímur
2009 Fangavaktin Viggó
2010 Kóngavegur
2010 Brim Anton
2011 Kurteist fólk Þorsteinn
Borgríki Gunnar
2013 Þetta reddast
Hross í oss Kolbeinn
Málmhaus Karl
2014 Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst Símon
Borgríki 2 Gunnar
2015 Everest Anatoli Boukreev
2016 Fyrir framan annað fólk Doktor
2016 Eiðurinn Halldór
2021 Katla Þór
2021 Dýrið
2022 Volaða land
2022 The Northman

Verðlaun og tilnefningar[breyta | breyta frumkóða]

Edduverðlaunin[breyta | breyta frumkóða]

Ingvar hefur hlotið Edduverðlaunin alls fimm sinnum. Fyrst sem leikari ársins árið 1998 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Slurpurinn & Co. Árið 2000 hlaut hann aftur verðlaun sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Pál í kvikmyndinni Englar alheimsins. Þá hlaut hann verðlaun árið 2004 sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Grímur eldri í Kaldaljós. Hann hlaut sömu verðlaun fyrir hlutverk sitt sem Erlendur í kvikmyndinni Mýrin árið 2006. Árið 2007 hlaut hann verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni Foreldrar.

Gríman[breyta | breyta frumkóða]

Ingvar hefur hlotið Íslensku leiklistarverðlaunin (Grímuna) tvisvar sinnum. Árið 2006 hlaut hann verðlaunin sem leikari ársins í aukahlutverki fyrir leik sinn í leikritinu Pétur Gautur. Og árið 2011 sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Íslandsklukkunni

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. Ingvar E. Sigurðsson, Leikfélag.is, skoðað 13. júlí 2007

Tengill[breyta | breyta frumkóða]


Verðlaun
Fyrirrennari:
Ný verðlaun
Edduverðlaunin fyrir leikara ársins í aðalhlutverki
1999-2000
Eftirfari:
Jón Gnarr