Brasilíski sjálfstæðisbikarinn 1972
Brasilíski sjálfstæðisbikarinn 1972, (portúgalska: Taça Independência) eða einfaldlega Minicopa var alþjóðleg keppni knattspyrnulandsliða og álfuliða sem fram fór í Brasilíu frá 11. júní til 9. júlí árið 1972 að frumkvæði João Havelange, forseta knattspyrnusambands landsins. Tilefnið var 150 ára afmæli brasilísku sjálfstæðisyfirlýsingarinnar. Mótinu lauk með sigri heimamanna. Þótt Brasilíustjórn hefði stefnt á að halda mót sem jafnast myndi á við HM í knattspyrnu að styrkleika og virðingu reyndist erfitt að lokka bestu lið Evrópu til leiks, m.a. þar sem tímasetning keppninnar féll saman við úrslitakeppni EM 1972.
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Tuttugu lið mættu til leiks frá fimm álfusamböndum: tíu landslið frá Suður-Ameríku, sjö frá Evrópu, eitt frá Asíu og úrvalslið frá Afríku annars vegar en Norður- & Mið-Ameríku (CONCACAF) hins vegar. Fimm lið sátu hjá í fyrstu umferð: heimamenn, Úrúgvæ, Skotar, Tékkóslóvakar og Sovétmenn. Hin liðin fimmtán kepptu í þremur fimm líða riðlum þar sem toppliðin komust áfram í annan tveggja átta liða milliriðla. Efstu liðin í hvorum milliriðli mættust svo í úrslitaleiknum sjálfum.
Forriðlar
[breyta | breyta frumkóða]A-riðill
[breyta | breyta frumkóða]CONCACAF-úrvalsliðið var að mestu skipað leikmönnum úr liðum Hondúras og Haítí, enda reyndist það slakast í riðlinum. Argentínska liðið sem hafði ekki á að skipa sínum stærstu stjörnum en vann nokkra stórsigra í riðlinum á meðan Frakkar unnu alla sína leiki með nokkru minni mun. Fyrir vikið dugði suður-ameríska liðinu jafntefli í innbyrðisleik liðanna í lokaumferðinni sem fór 0:0.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Argentína | 4 | 3 | 1 | 0 | 13 | 1 | +12 | 7 | |
2 | Frakkland | 4 | 3 | 1 | 0 | 10 | 2 | +9 | 7 | |
3 | Úrvalslið Afríku | 4 | 1 | 1 | 2 | 3 | 4 | -1 | 3 | |
4 | Kólumbía | 4 | 1 | 0 | 3 | 7 | 13 | -6 | 2 | |
5 | Úrvalslið CONCACAF | 4 | 0 | 1 | 3 | 3 | 16 | -13 | 1 |
11. júní - Batistão, Aracaju. Áh. 12.826
11. júní - Estádio Fonte Nova, Salvador. Áh. 21.422
14. júní - Estádio Rei Pelé, Maceió. Áh. 10.000
15. júní - Batistão, Aracaju. Áh. 7.642
18. júní - Estádio Rei Pelé, Maceió. Áh. 8.587
18. júní - Estádio Fonte Nova, Salvador. Áh. 10.000
22. júní - Estádio Fonte Nova, Salvador. Áh. 1.928
- Úrvalslið CONCACAF 0 : 0 Úrvalslið Afríku
22. júní - Estádio Fonte Nova, Salvador. Áh. 10.000
25. júní - Estádio Fonte Nova, Salvador. Áh. 10.579
25. júní - Estádio Fonte Nova, Salvador. Áh. 6.587
B-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Eusébio, sem kominn var undir lok landsliðsferils síns, skoraði fyrsta mark Portúgala á mótinu. Yfirburðir portúgalska liðsins í riðlinum voru töluverðir og það lauk keppni með fullt hús stiga. Íran mætti til leiks sem nýkrýndir Asíumeistarar, en enduðu með einungis eitt stig á botninum. Írland var líklega óvæntasta þátttökuliðið á mótinu, var lágt skrifað í Evrópuboltanum og engir blaðamenn fylgdu liðinu til Brasilíu. Lokaleikur Portúgala og Íra var í raun formsatriði, þar sem Suður-Evrópubúarnir gáfu ýmsum varamanna sinna tækifæri í byrjunarliðinu. Þar á meðal varamarkverðinum Félix Mourinho sem lék þar sinn eina landsleik, sonur hans José átti þó eftir að marka dýpri spor í knattspyrnusögunni.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Portúgal | 4 | 4 | 0 | 0 | 12 | 2 | +10 | 8 | |
2 | Síle | 4 | 3 | 0 | 1 | 7 | 7 | 0 | 6 | |
3 | Írland | 4 | 2 | 0 | 2 | 7 | 7 | 0 | 4 | |
4 | Ekvador | 4 | 0 | 1 | 3 | 4 | 9 | -5 | 1 | |
5 | Íran | 4 | 0 | 1 | 3 | 3 | 8 | -5 | 1 |
11. júní - Machadão, Natal
11. júní - Estádio do Arruda, Recife. Áh. 10.500
14. júní - Estádio do Arruda, Recife. Áh. 12.000
14. júní - Machadão, Natal
18. júní - Estádio do Arruda, Recife.
18. júní - Machadão, Natal
21. júní - Estádio do Arruda, Recife. Áh. 5.000
21. júní - Estádio do Arruda, Recife
25. júní - Estádio do Arruda, Recife. Áh. 15.000
25. júní - Estádio do Arruda, Recife
C-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Júgóslavar höfðu leikið til úrslita í EM 1968 en mistekist á komast á HM í Mexíkó tveimur árum fyrr. Lið þeirra tryggði sér bestu markatöluna með 10:0 sigri á Venesúela, þar sem Dušan Bajević skoraði fimm mörk. Þetta reyndist stærsti sigur í landsliðssögu gömlu Júgóslavíu. Sigur gegn Paragvæ í næstsíðustu umferð fór langt með að tryggja sætið í milliriðlunum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Júgóslavía | 4 | 3 | 1 | 0 | 15 | 3 | +12 | 7 | |
2 | Paragvæ | 4 | 3 | 0 | 1 | 12 | 4 | +8 | 6 | |
3 | Perú | 4 | 2 | 0 | 2 | 5 | 3 | +2 | 4 | |
4 | Bólivía | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 | 12 | -8 | 2 | |
5 | Venesúela | 4 | 0 | 1 | 3 | 3 | 17 | -14 | 1 |
11. júní - Estádio Couto Pereira, Curitiba
11. júní - Morenão, Campo Grande
14. júní - Estádio Couto Pereira, Curitiba. Áh. 5.000
14. júní - Morenão, Campo Grande
18. júní - Morenão, Campo Grande. Áh. 15.000
18. júní - Vivaldão, Manaus
21. júní - Vivaldão, Manaus
22. júní - Vivaldão, Manaus. Áh. 25.000
25. júní - Vivaldão, Manaus
25. júní - Vivaldão, Manaus. Áh. 20.000
Milliriðlar
[breyta | breyta frumkóða]Riðill 1
[breyta | breyta frumkóða]Skotar virtust ætla að tylla sér á toppinn í 1. riðli eftir fyrstu umferðina en sjálfsmark í lokin gerði það að verkum að þeir misstu leik sinn gegn Júgóslövum niður í jafntefli. Jairzinho skoraði markið sem skildi á milli heimamanna og Skota í lokaleiknum. Brasilía lék til úrslita en Júgóslavar urðu í öðru sæti í riðlinum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 0 | +4 | 5 | |
2 | Júgóslavía | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 6 | -2 | 3 | |
3 | Skotland | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 3 | -1 | 2 | |
4 | Tékkóslóvakía | 3 | 0 | 2 | 1 | 1 | 2 | -1 | 2 |
28. júní - Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro. Áh. 115.000
28. júní - Mineirão, Belo Horizonte. Áh. 4.000
2. júlí - Estádio do Morumbi, São Paulo. Áh. 100.000
2. júlí - Estádio Beira-Rio, Porto Alegre. Áh. 15.000
5. júlí - Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro. Áh. 130.000
6. júlí - Estádio do Pacaembu, São Paulo. Áh. 3.000
Riðill 2
[breyta | breyta frumkóða]Liðin tvö sem þurftu að fara í gegnum forriðlana röðuðu sér í tvö efstu sætin í milliriðli 2 á meðan Sovétríkin og Úrúgvæ ráku lestina. Portúgal lagði Argentínu 3:1 í fyrsta leik og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á meðan Argentínumenn urðu að láta sér nægja að keppa um bronsið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Portúgal | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 2 | +3 | 5 | |
2 | Argentína | 3 | 2 | 0 | 1 | 3 | 3 | 0 | 4 | |
3 | Sovétríkin | 3 | 1 | 0 | 2 | 1 | 2 | -1 | 2 | |
4 | Úrúgvæ | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 3 | -2 | 1 |
29. júní - Estádio do Morumbi, São Paulo. Áh. 10.000
29. júní - Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro
2. júlí - Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro. Áh. 50.000
2. júlí - Mineirão, Belo Horizonte. Áh. 8.000
6. júlí - Mineirão, Belo Horizonte. Áh. 12.000
6. júlí - Estádio Beira-Rio, Porto Alegre
Bronsleikur
[breyta | breyta frumkóða]Júgóslavar hrepptu bronsverðlaunin. Dušan Bajević skoraði tvisvar í leiknum og varð markakóngur mótsins með þrettán mörk.
9. júlí - Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro. Áh. 17.000
Úrslitaleikur
[breyta | breyta frumkóða]Brasilíumenn áttu í mestu vandræðum með að brjóta niður öfluga vörn Portúgala í úrslitaleiknum. Jairzinho skoraði eina mark leiksins með skalla eftir aukaspyrnu á lokamínútu venjulegs leiktíma.
9. júlí - Estádio do Maracanã, Rio de Janeiro. Áh. 99.138