Verkmenntaskólinn á Akureyri
Stofnaður | 1984 |
---|---|
Tegund | Verkmenntaskóli |
Skólameistari | Sigríður Huld Jónsdóttir |
Nemendafélag | Þórduna |
Staðsetning | Hringteigur 2 600 Akureyri Ísland |
Heimasíða | www.vma.is Þórduna Nemendafélag |
Verkmenntaskólinn á Akureyri (skammstafað VMA) er framhaldsskóli staðsettur á Eyrarlandsholti á Akureyri. Skólinn tók til starfa árið 1984.
Skólinn býður upp á bæði iðn- og tækninám ásamt hefðbundnu bóknámi. Skólinn er áfangaskóli og geta nemendur lokið stúdentsprófi á þremur árum eða lengri tíma. Nemendur geta útskrifast af fleiri en einni braut.
Skólinn hefur eftifarandi námsbrautir: almennt nám, matvælanám, sjúkraliðabraut, vélstjórnarnám, starfsbraut, hársnyrtinám, byggingagreinar, rafiðngreinar, bifvélavirkjun og málmiðngreinar. Jafnframt geta nemendur lokið stúdentsprófi af félagsfræðabraut, náttúrufræðabraut, listnámsbraut, íþrótta- og lýðheilsubraut og viðskipta- og hagfræðibraut en einnig geta nemendur lokið stúdentsprófi með eða að loknu öllu starfs-, iðn- og tækninámi við skólann.
Skólinn hefur um árabil tekið þátt í ýmsum erlendum samstarfsverkefnum þar sem nemendur fá tækifæri til að taka hluta af starfsnámi sínu erlendis. Þá hefur skólinn tekið á móti nemendum og kennurum frá öðrum löndum.
Nemendur VMA koma alls staðar af landinu og geta nemendur utan Akureyrar sótt um á sameiginlegri heimavist VMA og MA sem er í stuttu göngufæri við VMA.
Auk dagskóla er boðið upp á fjarnám við skólann.