Listi yfir íslenska framhaldsskóla
Listi yfir íslenska framhaldsskóla er listi yfir framhaldsskóla á Íslandi, það er skóla sem bjóða menntun að loknu grunnskólaprófi á námsbrautum sem eru styttri starfsnámsbrautir eða nám til stúdentsprófs. Framhaldsskólar á Íslandi eru rúmlega 35 talsins.[1] Langflestir þeirra eru opinberir skólar í eigu íslenska ríkisins, en sumir eru einkareknir eða sjálfseignarstofnanir.
Samkvæmt lögum um framhaldsskóla 92/2008 eiga nemendur sem lokið hafa grunnskólaprófi rétt á sækja nám á framhaldsskólastigi. Nemendur sem hafa útskrifast með stúdentspróf úr framhaldsskóla geta sótt um nám í háskóla á Íslandi og erlendis. Flestir nemendur í hefðbundnu námi í framhaldsskólum í Reykjavík eru á aldrinum 16 til 19 ára en við suma skóla eru einnig öldungadeildir, kvöldskólar eða fjarnámsbrautir.
Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út aðalnámskrá fyrir framhaldsskóla landsins sem þeim ber að fara eftir. Í aðalnámskránni kemur fram hvaða námskröfur eru gerðar til nemenda og einnig eru settar kröfur um framvindu í námi. Aðalnámskrá er í stöðugri endurskoðun og eru breytingar á henni tilkynntar í Stjórnartíðindum. Alþingi hefur sett lög um þá menntastefnu sem krafist er af skólastigum landsins.
Listinn nær aðeins yfir skóla sem falla undir lög um framhaldsskóla, en ekki ýmsa aðra skóla á unglingastigi og fullorðinsstigi eins og til dæmis tónlistarskóla, Lýðskólann á Flateyri, LungA-skólann á Seyðisfirði eða Hallormsstaðaskóla.
A-F
[breyta | breyta frumkóða]- Borgarholtsskóli
- Fisktækniskólinn
- Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
- Fjölbrautaskóli Snæfellinga
- Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi
- Fjölbrautaskóli Suðurnesja
- Fjölbrautaskóli Vesturlands
- Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
- Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Fjölbrautaskólinn við Ármúla
- Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
- Framhaldsskólinn á Húsavík
- Framhaldsskólinn á Laugum
- Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
- Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
- Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
G-L
[breyta | breyta frumkóða]M
[breyta | breyta frumkóða]- Menntaskóli í tónlist
- Menntaskóli Borgarfjarðar
- Menntaskólinn að Laugarvatni
- Menntaskólinn á Akureyri
- Menntaskólinn á Ásbrú
- Menntaskólinn á Egilsstöðum
- Menntaskólinn á Ísafirði
- Menntaskólinn á Tröllaskaga
- Menntaskólinn í Kópavogi
- Menntaskólinn í Reykjavík
- Menntaskólinn við Hamrahlíð
- Menntaskólinn við Sund
- Myndlistaskólinn á Akureyri
- Myndlistaskólinn í Reykjavík
O-Ö
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Listi yfir skóla“. Menntamálastofnun.