Hákon 7.
| ||||
Hákon 7. | ||||
| Ríkisár | 18. nóvember 1905 − 21. september 1957 | |||
| Skírnarnafn | Christian Frederik Carl Georg Valdemar Axel | |||
| Kjörorð | Alt for Norge | |||
| Fæddur | 3. ágúst 1872 | |||
| Charlottenlundhöll nærri Kaupmannahöfn | ||||
| Dáinn | 21. september 1957 (85 ára) | |||
| Konungshöllinni í Osló | ||||
| Gröf | Akershúsvirki, Osló | |||
| Undirskrift | ||||
| Konungsfjölskyldan | ||||
| Faðir | Friðrik 8. Danakonungur | |||
| Móðir | Lovisa af Svíþjóð | |||
| Drottning | Maud af Wales | |||
| Börn | Ólafur 5. Noregskonungur | |||
Hákon 7. (Carl Danmerkurprins; fæddur Christian Frederik Carl Georg Valdemar Axel) (f. 3. ágúst 1872 – 21. september 1957) var fyrsti konungur Noregs eftir sambandsslitin við Svíþjóð árið 1905. Hákon var sonur Friðriks 8. Danakonungs og Lovísu drottningar.
Hákon fæddist í Kaupmannahöfn í valdatíð afa síns, Kristjáns 9. Danakonungs. Hann var skírður Karl og var annar sonur krónprins og krónprinsessu Danmerkur (sem síðar voru nefnd Friðrik 8. og Lovísa drottning). Móðurafi hans var Karl 15. Svíakonungur og hann var því afkomandi bæði dönsku og sænsku konungsættanna.
Karl hlaut menntun við konunglega danska flotaskólann og gegndi þjónustu í danska sjóhernum. Eftir að sambandi sænsku og norsku krúnanna var slitið árið 1905 var honum boðið að gerast konungur Noregs. Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð konungdæmisins þáði hann boðið og var formlega kjörinn konungur af norska stórþinginu. Hann tók sér fornnorræna nafnið Hákon og tók við krúnunni sem Hákon 7. Noregskonungur, fyrsti sjálfstæði konungur Noregs frá Ólafi 4. árið 1387.
Sem konungur varð Hákon vinsæll meðal norsks almennings. Þótt konungur Noregs njóti töluverðra valda samkvæmt stjórnarskrá landsins hélt Hákon sig í framkvæmd við táknrænt hlutverk og skipti sér sjaldan af stjórnmálum ríkisins. Í apríl 1940 gerðu Þjóðverjar innrás í Noreg. Hákon hafnaði kröfum Þjóðverja um að veita leppstjórn Vidkuns Quisling viðurkenningu sína og sór að segja frekar af sér en að ljá henni lögmæti. Hann hélt í útlegð til Bretlands frekar en að segja af sér og lék þannig lykilhlutverk við að sameina norsku þjóðina í andspyrnu gegn innrásinni og hernáminu á tíma seinni heimsstyrjaldarinnar. Hann sneri aftur til Noregs í júní 1945 eftir að Þýskaland var sigrað.
Þegar Hákon varð Noregskonungur var afi hans, Kristján 9., enn við völd í Danmörku. Á meðan Hákon var konungur tóku faðir hans, Friðrik 8., eldri bróðir hans, Kristján 10. og bróðursonur hans, Friðrik 9., við dönsku krúnunni árin 1906, 1912 og 1947. Hákon lést í september 1957, 85 ára að aldri. Sonur hans tók við krúnunni undir nafninu Ólafur 5. Noregskonungur.
Fjölskylda
[breyta | breyta frumkóða]Hákon giftist þann 22. júlí 1896 Maud Bretaprinsessu, yngstu dóttur Alberts Játvarðs sem seinna varð Játvarður 7., og konu hans Alexöndru drottningar. Þau eignuðust einn son þann 2. júlí 1903 sem var skírður Alexander Edward Christian Frederik og varð Ólafur 5. Noregskonungur.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- J. S. Worm-Müller (2. ágúst 1942). „Hákon VII“. Lesbók Morgunblaðsins. bls. 241–248.
| Fyrirrennari: Óskar 2. |
|
Eftirmaður: Ólafur 5. | |||