Suður-ameríski draumurinn
Suður-ameríski dramurinn voru Íslenskir sjónvarpsþættir, sýndir á Stöð 2 árið 2018 þar sem að Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson, Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon kepptust í því að ferðast um Suður-Ameríku. Í þættinum voru tvö lið, Auddi og Steindi og Sveppi og Pétur.
Þættirnir voru framhaldsþættir Ameríska draumsins árið 2010, Evrópska draumsins árið 2012 og Asíska draumsins árið 2017.
Staða
[breyta | breyta frumkóða]Þáttur | Áskorun | Stig | Land |
---|---|---|---|
1 | Ganga í maroon ættbálkinn | 54 | Kingston, Jamakía |
2 | Setja höfuðið í glerkassa með tíu sporðdrekum í | 128 | Bógóta, Kólumbía |
3 | Fara í Kólumbíska yfirheyrslu | 178 | |
4 | Hjóla niður hættulegasta veg í heimi | 237 | La Paz, Bólivía |
5 | Takast á við hörðustu konur heims í glímu | 298 | |
6 | Fara í svifsstökk yfir Ríó | 342 | Rio de Janeiro, Brasílía |
7 | Fara í býflugnabúr | 363 | |
8 | Leysa þrautir víðs vegar um Búenos Aíres | 415 | Búenos Aíres, Argentína |
Þáttur | Áskorun | Stig | Land |
---|---|---|---|
1 | Fara í glímu við dverg | 43 | Mexíkóborg, Mexíkó |
2 | Fara í drykkjukeppni með tekíla | 122 | |
3 | Fara í nautahlaup | 185 | San José, Kosta Ríka |
4 | Sveifla sér í trjánum í aparólugarði | 248 | |
5 | Láta úr sér illa anda | 316 | Líma, Pérú |
6 | Borða naggrís sem að er þjóðarréttur Perú | 265 | |
7 | Fara í drekaflug yfir fjöllum Síle | 367 | Santíagó, Síle |
8 | Leysa þrautir víðs vegar um Búenos Aíres | 402 | Búenos Aíres, Argentína |
Pilla
[breyta | breyta frumkóða]Pilla er hindrun sem liðin geta sett á hvort annað. Pillan á að hægja liðið í stigasöfnun. Listi yfir pillur:
- Fara í búninga
- Haltur leiðir blindan - Annar með heyrnatól og hinn með bundið fyrir augun
- Safna stigi á nóttunni
Þáttur | Pilla | Lið |
---|---|---|
3 | Fara í búninga | Sveppi og Pétur |
Haltur leiðir blindan | Auddi og Steindi | |
6 | Safna stigi á nóttunni | Auddi og Steindi |
Haltur leiðir blindan | Sveppi og Pétur |
Úrslit
[breyta | breyta frumkóða]Liðin þurftu að leysa þrautir víðs vegar um höfuðborg Argentínu, Búenos Aíres. Liðin þurfti að kaupa nokkra hluti víðs vegar um borgina, bannað var að hlaupa, en vandinn var sá að hlutirnir í leiðbeiningunum sem liðin fá var á spænsku.
Liðin þurfa að kaupa eftirfarandi hluti:
[breyta | breyta frumkóða]- Nautakjöt
- Rauðvín
- Kaupa eitthvað tengt Che Guevara
- Kaupa eitthvað fótboltatengt
- Safna stigi í reglubókinni í almenningsgarði
- Taka mynd af sér með minnismerki í Argentínu
- Finna torg sem er með íslenska fánanum á
Liðið sem er á undan að gera allt þetta fær 30 stig. Auddi og Steindi voru á undan og fengu 30 stig.
Auddi og Steindi unnu keppnina.