Ragnheiður Elín Árnadóttir
Ragnheiður E. Árnadóttir (REÁ) | |
Fæðingardagur: | 30. september 1967 |
---|---|
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
2007-2009 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2009 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. |
2009-2013 | í Suðurk. fyrir Sjálfstfl. |
2013-2016 | í Suðurk. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2007-2009 | Formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins |
2010-2012 | þingflokksformaður |
2013-2017 | Iðnaðar- og viðskiptaráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Ragnheiður Elín Árnadóttir (f. 30. september 1967) er fyrrum iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og var oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi á árunum 2009-2016.
Ragnheiður Elín er fædd og uppalin í Keflavík. Hún lauk stúdenstprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1987. Hún fékk bestu einkunnina af þeim sem útskrifuðust.[1] Hún lauk BA-prófi í stjórnmálafræði Háskóla Íslands 1991 og MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum. Á árunum 1995-1998 starfaði hún fyrir Útflutningsráð Íslands, þar af 1996-1997 í New York. Hún var aðstoðarmaður Geirs H. Haarde á árunum 1998-2007 sem fjármála-, utanríkis- og forsætisráðherra. Ragnheiður sat í nefnd þeirri sem samdi um brottflutning varnarliðsins frá Keflavíkurstöðinni. [2]
Ragnheiður Elín átti sæti á Alþingi á árunum 2007-2016, 2007-2009 fyrir Suðvesturkjördæmi en síðan fyrir Suðurkjördæmi. Ragnheiður Elín var þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins 2010-2012 og var iðnaðar- og viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 2013-2017.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Þingmenn Sjálfstæðisflokksins - Ragnheiður E. Árnadóttir Geymt 6 nóvember 2011 í Wayback Machine
- Var aðstoðarmaður í átta ár Geymt 13 júní 2013 í Wayback Machine, Viðskiptablaðið 9. júní 2013