Norðurlandaráð æskunnar
Norðurlandaráð æskunnar (skandinavíska: Ungdommens Nordiske Råd eða UNR) er vettvangur ungliðahreyfinga stjórnmálaflokka og annarra pólitískra æskulýðshreyfinga á Norðurlöndunum. Norðurlandaráð æskunnar tengist starfi Norðurlandaráðs að miklu leyti og þing þess fer fram á sama tíma og árlegt Norðurlandaráðsþing.
Norðurlandaráð æskunnar rekur upphaf sitt allt aftur til upphafsára Norðurlandaráðs og hélt í upphafi eina námstefnu á ári. Norðurlandaráðsþing æskunnar hafa hins vegar verið haldin á hverju ári frá 1971. UNR hefur verið sjálfstæð stofnun frá 2002.
Norðurlandaráð æskunnar endurspeglar jafnbreitt pólitískt litróf og Norðurlandaráð og þar er tekist á um hugmyndir og lausnir í norrænu samstarfi, ekki síst þær sem varða ungt fólk.
Fulltrúar af Norðurlandaráðsþingi æskunnar taka þátt í ýmsum störfum Norðurlandaráðsþings.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Um Norðurlandaráð æskunnar á Norden.org Geymt 10 maí 2010 í Wayback Machine