Norræna nýsköpunarmiðstöðin
Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordisk InnovationsCenter - NICe) er samstarfsstofnun Norðurlandanna sem starfar undir hatti Norrænu ráðherranefndarinnar. Hún rekur upphaf sitt til Norræna iðnaðarsjóðsins og NordTest sem settar voru á fót 1973. Skrifstofa Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar er í Osló.
Hlutverk miðstöðvarinnar er að vinna að innri markaði á Norðurlöndunum á sviði nýsköpunar þannig að sem fæstar hindranir séu í vegi flutnings á hæfni, hugmyndum, fjármagni, fólki eða afurðum milli Norðurlandanna.
Markmiðið er að stuðla að sameiginlegum þekkingarmarkaði á svæðinu. Miðstöðin vinnur að þessu með því að koma á tengslum milli þeirra sem vinna að nýsköpun á Norðurlöndum. Skilyrt er að minnst þrjú norræn ríki vinni saman að verkefni til að hægt sé að sækja um fjármögnun hjá miðstöðinni. Auk þess skal stuðla að samstarfi við aðila í Eystrasaltslöndunum og Norðvestur-Rússlandi.
Tengt efni:
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Um Norrænu nýsköpunarmiðstöðina á vefsíðu hennar Geymt 6 júní 2010 í Wayback Machine (á íslensku)
- Um Norrænu nýsköpunarmiðstöðina á Norden.org[óvirkur tengill] (á íslensku)