1701
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1701 (MDCCI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Sjöunda hallærisárið í röð. Eftir það fór tíðin að batna.
- Lárus Gottrup lögmaður fór á konungsfund með bænaskrár Íslendinga og tillögur um úrbætur í ýmsum málefnum. Það varð meðal annars kveikjan að jarðabókargerð Árna Magnússonar og Páls Vídalín og manntalinu 1703.
- Fyrirskipað að Alþingi skuli hefjast 8. júlí og standa í tvær vikur.
Fædd
Dáin
Opinberar aftökur
- Jón Eyjólfsson úr Vöðlasýslu hengdur í Gálgagili, Vestur-Húnavatnssýslu, fyrir þjófnað.
- Ásmundur Jónsson úr Dalasýslu hengdur á Alþingi fyrir þjófnað og flótta.
- Jón Jónsson (Bitru- Jón) hengdur á Alþingi fyrir þjófnað.
- Lafrans Helgason úr Árnessýslu hálshogginn fyrir morð eiginkonu sinnar á Bakkarholtsþingi, Ölfusi.[1]
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 18. janúar - Kjörfurstadæmið Brandenborg og Prússland varð konungsríkið Prússland og Friðrik 3. kjörfursti varð Friðrik 1. Prússakonungur.
- Mars - Spænska erfðastríðið hófst og stóð til 1714.
- 24. júní - Breska þingið festir í lög að þjóðhöfðinginn verði að vera mótmælendatrúar.
- Ulrik Christian Gyldenløve, stiftamtmaður Íslands frá fimm ára aldri, varð yfirmaður alls danska flotans.
- Karl 12. Svíakonungur réðist inn í Pólland.
Fædd
- 4. júní eða 22. júní - Nicolai Eigtved (Niels Eigtved), danskur arkitekt, teiknaði meðal annars Viðeyjarstofu (d. 1754).
- 27. nóvember - Andreas Celsius, sænskur vísindamaður (d. 1742).
Dáin
- 14. janúar - Tokugawa Mitsukuni, japanskur sjógun (f. 1628).
- 23. maí - William Kidd, skoskur sjóræningi, hengdur í London (f.1645).
- 2. júní - Madeleine de Scudéry, franskur rithöfundur (f. 1607).
- 6. september - Jakob 2. Englandskonungur (f. 1633).
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Öll gögn um framangreindar aftökur sóttar á vef rannsóknarverkefnisins Dysjar hinna dauðu, ekki síst skrá á slóðinni https://dhd.hi.is/gogn/Info.pdf, sótt 15.2.20202.