1696
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1696 (MDCXCVI í rómverskum tölum) var 96. ár 17. aldar. Það var hlaupár sem hófst á laugardegi samkvæmt gregoríska tímatalinu eða miðvikudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- 8. febrúar - Óveður gerði á Norður- og Vesturlandi og urðu fimmtán manns úti. Frá þessu segir í Hestsannál.
- 8. febrúar - Pétur mikli varð einn keisari Rússlands við lát hálfbróður síns, Ívans 5..
- 28. mars - Konungur lagði þá kvöð á Íslendinga að senda skyldi þrjá menn úr hverri sýslu, þrjátíu alls, til að þjóna í flota eða landher Danaveldis.
- 9. október - Alþingisbókin, fyrsta íslenska tímaritið, var prentuð í Skálholti af Jóni Snorrasyni.
- Desember - Thomas Aikenhead, skoskur háskólanemi, var ákærður fyrir guðlast.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrsta bókin um diffurreikning, Analyse des infiniment petits pour l'intelligence des lignes courbes, eftir Guillaume de l'Hôpital kom út.
- Botníska verslunarbannið gekk aftur í gildi í Svíþjóð.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 5. janúar - Giuseppe Galli-Bibiena, ítalskur arkitekt (d. 1757).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 8. febrúar - Ívan 5. Rússakeisari (f. 1666).
- 4. júní - Gísli Magnússon (Vísi-Gísli), sýslumaður í Rangárvallasýslu (f. 1621).
- 17. júní - Jóhann 3. Sobieski, konungur Póllands og stórfursti í Litháen (f. 1629).
- 9. október - Einar Þorsteinsson biskup á Hólum (f. 1633).
- 21. nóvember - Otto von Guericke, þýskur uppfinningamaður (f. 1602).
- Jón Magnússon þumlungur, prestur á Eyri í Skutulsfirði (f. 1610).