Jón Snorrason
Útlit
Jón Snorrason (20. september 1787 – 14. maí 1856) var tómthúsmaður og bæjarfulltrúi í Reykjavík.
Ævi og störf
[breyta | breyta frumkóða]Jón fæddist að öllum líkindum í Engey, sonur bændafólks þar. Árið 1834 reisti hann sér bæinn Sölvhól í landi Arnarhóls, sem þá tilheyrði Seltjarnarneshreppi. Jón var í miklum metum og gegndi embætti hreppstjóra.
Rétt um ári eftir að Jón kom upp bæ sínum, var Arnarhóll færður undir lögsögu Reykjavíkur. Árið 1836 var svo í fyrsta sinn kosið til bæjarstjórnar í Reykjavík. Var Jón kjörinn í þessa fyrstu bæjarstjórn sem fulltrúi tómthúsmanna og sat hann í tíu ár í embætti.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Páll Líndal & Torfi Jónsson (1986). Reykjavík: Bæjar- og borgarfulltrúatal 1836-1986. Reykjavíkurborg.