1688
Útlit
(Endurbeint frá MDCLXXXVIII)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1688 (MDCLXXXVIII í rómverskum tölum) var 88. ár 17. aldar og hlaupár sem hófst á fimmtudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en sunnudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Mars - William Dampier heimsótti Páskaeyju fyrstur Evrópumanna svo vitað sé.
- 29. apríl - Friðrik 1. af Prússlandi varð kjörfursti í Brandenborg.
- 30. júní - Nokkrir háttsettir Englendingar buðu Vilhjálmi af Óraníu og Maríu konu hans aðstoð við að setja föður hennar Jakob 2. frá völdum.
- Júlí - Phetracha náði völdum í taílenska konungsríkinu Ayutthaya með stjórnarbyltingu.
- 5. nóvember - Dýrlega byltingin hófst á því að Vilhjálmur af Óraníu lenti við Brixham.
- 23. nóvember - 1500 fylgjendur Gamla siðar brenndu sig lifandi til að komast hjá handtöku þegar her Rússakeisara settist um klaustur þeirra við Onegavatn.
- 26. nóvember - Loðvík 14. sagði Hollandi stríð á hendur en í stað þess að ráðast þar inn hélt hann með 100.000 manna herlið inn í Heilaga rómverska ríkið og hóf þar með Níu ára stríðið.
- 11. desember - Eftir röð ósigra flúði Jakob 2. Englandskonungur til Frakklands.
Ódagsettir atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Galdramál: Kolbeinn Jónsson á Hrófbergi við Steingrímsfjörð kærði Klemus Bjarnason fyrir galdra.
- Landnáma var prentuð í fyrsta sinn í Skálholti á vegum Þórðar Þorlákssonar biskups.
- Christian Müller var skipaður fyrsti amtmaður á Íslandi.
- Austurríkismenn hernámu Belgrad
- Tyrkir settust um Vínarborg.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 2. febrúar - Úlrika Leonóra, Svíadrottning (d. 1741).
- 4. febrúar - Pierre de Marivaux, franskt leikskáld (d. 1763).
- 8. febrúar - Emanuel Swedenborg, sænskur vísindamaður og heimspekingur (d. 1772).
- 22. maí - Alexander Pope, enskt skáld (d. 1744).
- 10. júní - Jakob Frans Stúart, sem gerði tilkall til bresku krúnunnar (d. 1766).
- 12. júlí - Benedikt Þorsteinsson lögmaður (d. 1733).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 1. júní - Peder Hansen Resen, danskur lögfræðingur (f. 1625).
- 25. ágúst - Henry Morgan, velskur fríbýttari (f. 1635).
- 29. ágúst - Stefán Ólafsson í Vallanesi, íslenskt skáld (f. 1619).
- 9. október - Claude Perrault, franskur arkitekt (f. 1613).
- 26. nóvember - Philippe Quinault, franskt leikskáld (f. 1635).
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Gísli Einarsson, skólameistari í Skálholti (f. 1621).