Keflavíkurganga
Keflavíkurgöngur voru mótmælaaðgerðir sem Samtök hernámsandstæðinga og síðar Samtök herstöðvaandstæðinga stóðu fyrir í baráttu sinni gegn veru bandaríska setuliðsins á Íslandi á árabilinu 1951 til 2006. Margar þeirra voru með mestu fjöldaaðgerðum 20. aldar á Íslandi. Fyrsta Keflavíkurgangan var gengin 19. júní 1960.
Keflavíkurgöngur fóru þannig fram að þátttakendur héldu snemma að morgni að hliðum herstöðvarinnar á Miðnesheiði. Þar var haldinn stuttur upphafsfundur en síðan var gengið undir fánum og kröfuspjöldum til Reykjavíkur, hátt í 50 km leið. Jafnt og þétt fjölgaði í göngunni eftir því sem nær dró Reykjavík. Stuttir fundir voru haldnir á hvíldarstöðum á leiðinni, oft í Kúagerði og Straumsvík. Aðgerðirnar enduðu svo með fjöldafundi í miðborginni, oftast á Lækjartorgi. Ýmis félagasamtök hernáms- og herstöðvaandstæðinga (þar á meðal Samtök herstöðvaandstæðinga) stóðu fyrir samanlagt ellefu Keflavíkurgöngum.
Sögusýning sem tengist Keflavíkurgöngum var opnuð í Þjóðarbókhlöðunni 30. mars 2010 á fimmtugasta afmælisári fyrstu göngunnar. Þar var greint frá hverri göngu fyrir sig í máli og myndum og sýnd kröfuspjöld, borðar og merki sem tengjast aðgerðunum hverju sinni. Einnig var þar sýnt mikið af útgefnu efni, blöðum, bókum, hljómplötum og diskum.
Keflavíkurgöngur
[breyta | breyta frumkóða]- 1. Keflavíkurgangan 19. júní 1960
- 2. Keflavíkurgangan 7. maí 1961
- 3. Keflavíkurgangan 21. júní 1964
- 4. Keflavíkurgangan 9. maí 1965
- 5. Keflavíkurgangan 23. júní 1968
- 6. Keflavíkurgangan “Keflavíkurgangan mikla” 15. maí 1976
- 7. Keflavíkurgangan 10. júní 1978
- 8. Keflavíkurgangan, Friðargangan 20. júní 1981
- 9. Keflavíkurgangan, Friðarganga 6. ágúst 1983
- 10. Keflavíkurgangan 6. júní 1987
- 11. Keflavíkurgangan 10. ágúst 1991