Arunachal Pradesh
Útlit
Arunachal Pradesh er austasta fylki Indlands. Það á landamæri í suðri að Assam og Nagalandi, Bútan í vestri, Mjanmar í austri og Tíbet í norðri. Alþýðulýðveldið Kína gerir tilkall til stærsta hluta fylkisins sem Suður-Tíbet. Höfuðstaður fylkisins er Itanagar.
Íbúar Arunachal Pradesh eru um 1,3 milljónir. Héraðið er eitt það fjölbreyttasta á Indlandi hvað varðar menningu, tungumál og trúarbrögð íbúa. Langflest tungumálin eru af tíbesk-búrmísku málaættinni. Enska er eina opinbera mál fylkisins.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Arunachal Pradesh.