Tá
Útlit
Tær eru útlimir á fæti manna og sumra dýra. Margar dýrategundir, svo sem kötturinn, ganga á tánum og flokkast því sem táfetar. Menn og önnur dýr sem ganga á iljum eru ilfetar, og dýr sem ganga á hófum eru naglfetar.
Sá staður á fætinum sem tærnar eru á er nefndur tárót eða tástaður.
Tærnar fimm
[breyta | breyta frumkóða]Tærnar hafa ekki eins föst heiti og fingurnir en stóratá er sú tá sem hefur flest heiti. Stundum eru tánum gefin sérstök nöfn eftir staðsetningu á landinu og er það sett í sviga með útskýringum um stað.
- Stóratá, langatá[1], þumaltá eða hin mesta táin (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Vigga; Eyjafirði: Dyrgja og Stóra-Jóa)[1]
- Önnur tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Háa-Þóra; Eyjafirði: Bauga og Nagla-Þóra)[1]
- Þriðja tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Stutta-Píka; Eyjafirði: Geira og Langa-Dóra)[1]
- Fjórða tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Litla-Gerður; Eyjafirði: Búdda og Stutta-Jóra)[1]
- Lítla tá (Skagafjarðar- og Dalasýslu: Lilla; Eyjafirði: Grýta og Litla-Lóa)[1]
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 1,4 1,5 http://www.lexis.hi.is/ordvikunnar/tiu_eru_a_ther.html Geymt 16 desember 2004 í Wayback Machine Tíu eru á þér tær og fingur ...
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Tá.