Menntaskólinn við Hamrahlíð
Einkunnarorð | Lengi lifi góða kaffið |
---|---|
Stofnaður | Árið 1966 |
Skólastjóri | Steinn Jóhannsson |
Nemendafélag | NFMH |
Staðsetning | Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík |
Gælunöfn | MH |
Gælunöfn nemenda | MH-ingar |
Heimasíða | www.mh.is |
Menntaskólinn við Hamrahlíð (MH) er ríkisskóli sem starfar samkvæmt íslenskum framhaldsskólalögum. Hlutverk skólans er að mennta nemendur til stúdentsprófs með áherslu á undirbúning fyrir nám í háskólum. Skólinn var stofnaður árið 1966 og voru fyrstu stúdentar brautskráðir þaðan árið 1970. Fyrstu árin var bekkjarkerfi starfrækt í skólanum en árið 1972 skipti skólinn um stefnu og var fyrsti skólinn sem tók upp svokallað áfangakerfi. Í MH var boðið upp á kvöldkennslu, svokallaða öldungadeild, en skólinn var sá fyrsti á landinu sem bauð upp á slíkt. Fyrsti rektor skólans var Guðmundur Arnlaugsson.
Í dagskólanum er boðið upp á náttúrufræðibraut, félagsfræðibraut, málabraut, opna braut og listdansbraut auk sérnámsbrautar.
Almennar upplýsingar um MH
[breyta | breyta frumkóða]MH var lengi vel skilgreindur sem tilraunaskóli og fékk leyfi til að fara ótroðnar slóðir á ýmsum sviðum. Má þar nefna stofnun félagsfræðibrautar og síðar tónlistarbrautar til stúdentsprófs, mikla fjölbreytni valáfanga og kennslu ýmissa námsgreina sem ekki voru fyrir í námsskrá. Árið 1997 hóf skólinn undirbúning að kennslu til alþjóðlegs stúdentsprófs, International Baccalureate Diploma, IB, og voru hinir fyrstu úr því námi brautskráðir sumarið 2000. Skólinn hefur byggt upp ýmsa þjónustu við fatlaða nemendur og þróað námsefni og sérkennslu fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta nemendur sem stefna á stúdentspróf.
Húsakynni skólans eru við Hamrahlíð í Hlíðahverfinu í Reykjavík. Arkitekt byggingarinnar var Skarphéðinn Jóhannsson. Skólabyggingin er á tveimur hæðum og einkennist af stóru opnu rými á hvorri hæð. Rýmið á neðri hæðinni kallast Matgarður en á efri hæðinni er Miðgarður. Öðru megin Miðgarðs er salurinn, sem kallast Mikligarður, en hinu megin er svæði sem kallast Útgarður og er undir beru lofti. Í skeifu umhverfis Miklagarð, Miðgarð og Útgarð liggur gangur. Frá honum er gengið inn í flestar kennslustofur skólans og þær liggja ýmist að útveggjum eða að Útgarði. Við austurhlið skólabyggingarinnar var reist viðbót við skólann. Í nýbyggingunni eru kennslustofur, viðbót við bókasafn og íþróttahús. Hluti af neðri hæðinni er kallaður Norðurkjallari. Þar hefur Nemendafélag MH starfsaðstöðu. Þar eru haldnir fundir og samkomur, en einnig tónleikar, kvikmyndasýningar og aðrir viðburðir á vegum nemendafélagsins.
Námsbrautir
[breyta | breyta frumkóða]Náttúrufræðibraut
[breyta | breyta frumkóða]Náttúrufræðibraut býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í raunvísindum (s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði), stærðfræði og verkfræði. Brautin veitir m.a. undirstöðuþekkingu í náttúruvísindum og er góður undirbúningur undir nám í heilbrigðisgreinum og landbúnaðarfræðum.
Félagsfræðibraut
[breyta | breyta frumkóða]Félagsfræðibraut býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla, einkum á sviði félagsvísinda. Brautin er heppilegur undirbúningur undir margs konar nám í háskóla að undanskildum raunvísindum og verkfræði.
Málabraut
[breyta | breyta frumkóða]Málabraut veitir m.a. staðgóða þekkingu á ensku og tveimur öðrum nútímamálum samkvæmt vali skólans og nemandans. Brautin er góður undirbúningur hvers konar málanáms á háskólastigi. Námið hentar sem undirbúningur háskólanáms þar sem reynir á kunnáttu í ensku eða öðrum nútímamálum, svo sem náms í ýmsum greinum félagsvísinda, heimspeki, bókmenntafræði og málfræði.
Listdansbraut
[breyta | breyta frumkóða]Nám á listdansbraut er góður grunnur að framhaldsnámi í listdansi. Einnig nýst námið sem undirbúningur fyrir fjölmargt annað nám á háskólastigi. Danshluti námsins fer fram utan við MH. Nemandi því bæði bóklegt og verklegt nám samtímis. Nemandi velur annaðhvort klassískan listdans eða nútímalistdans.
IB
[breyta | breyta frumkóða]International Baccalaureate braut er krefjandi bóklegt nám sem lýkur með samræmdu prófi. Námið veitir svipuð réttindi til framhaldsnáms og íslenskt stúdentspróf. Námið tekur tvö ár að loknu undirbúningsári í framhaldsskóla og kennt er á ensku.
Fjölnámsbraut
[breyta | breyta frumkóða]Fjölnámsbraut skólans er fyrir þá nemendur sem notið hafa sérkennslu í grunnskóla og þurfa einstaklingsmiðað nám. Nemendum er að miklu leyti kennt í sérdeild en mikið er lagt upp úr að brautin sé hluti af skólaheildinni. Kennslan er byggð á námsáætlun fyrir nemendahóp eða einstakling og er hún unnin út frá markmiðum aðalnámskrár framhaldsskóla, ásamt upplýsingum um þarfir nemenda og mati á stöðu þeirra í námi og þroska. Kenndar eru 20 klukkustundir á viku þ.e. 30 kennslustundir. Nemendum býðst að stunda nám í fjögur ár og útskrifast þau með lokaskírteini um námsferil sinn frá fjölnámsbraut.
Áfangakerfi
[breyta | breyta frumkóða]Áfangakerfi var tekið upp í MH árið 1972. Með áfangakerfi fær nemandi aukið frelsi, þar sem hann getur stjórnað sínu námi og námshraða nokkurnvegin sjálfur.
Áfangi kallast skilgreint námsefni í tiltekinni grein í eina önn. Við lok annar eru þreytt próf í námsefninu eða einkunn byggð á símati yfir önnina og hlýtur þá nemandi, sem staðist hefur áfangann með tilskildum árangri, ákveðinn einingafjölda fyrir (venjulega 3 einingar).
Til að öðlast stúdentspróf frá MH þarf nemandi að ljúka 140 námseiningum af einhverri bóknámsbrautanna. Námið á hverri braut skiptist í kjarna, kjörsvið og frjálst val. Námið í kjarna er að miklu leyti sameiginlegt fyrir allar brautirnar. Nám á kjörsviði nemur samtals 30 einingum og felur í sér sérhæfingu á viðkomandi námssviði í samræmi við lokamarkmið brautarinnar. Frjálsa valið er 12 einingar og gefur það nemanda möguleika á að kynna sér nýjar námsgreinar eða dýpka kjörsvið sitt.
Kórinn
[breyta | breyta frumkóða]Við skólann er starfræktur skólakór sem telur hátt í 90 nemendur af öllum brautum. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, sem og kór fyrir eldri og útskrifaða nemendur skólans, Hamrahlíðarkórinn. Kórstjóri skólakórsins er Hreiðar Ingi Þorsteinsson en Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar Hamrahlíðarkórnum.
Nemendafélag Menntaskólans við Hamrahlíð
[breyta | breyta frumkóða]Rektorar skólans
[breyta | breyta frumkóða]Rektorar MH | Tímabil |
Guðmundur Arnlaugsson | 1966-1980 |
Hjálmar Ólafsson (vegna leyfis Guðmundar) | 1975 haustönn |
Örnólfur Thorlacius | 1980-1995 |
Sverrir Einarsson (vegna leyfis Örnólfs) | 1990-1991 |
Sverrir Einarsson | 1996-1998 |
Wincie Jóhannsdóttir (vegna leyfis Sverris) | 1996-1998 |
Lárus Hagalín Bjarnason | 1998-2018 |
Sigurborg Matthíasdóttir (vegna leyfis Lárusar) | 2007-2008 |
Sigurborg Matthíasdóttir (vegna leyfis Lárusar) | 2012 vorönn |
Steinn Jóhannsson (vegna leyfis Lárusar) | febrúar-apríl 2018 |
Steinn Jóhannsson | 2018- |
Þekktir MH-ingar
[breyta | breyta frumkóða]- Björk Guðmundsdóttir, tónlistarmaður
- Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður
- Hildur Guðnadóttir, tónskáld og sellóleikari
- Bríet, tónlistarmaður
- Benedikt Erlingsson, leikari & leikstjóri
- Víkingur Heiðar Ólafsson, tónskáld & píanóleikari
- Sturla Atlas, rappari
- Jóhann Kristófer Stefánsson (Joey Christ) tónlistarmaður
- Kristinn Sigmundsson, söngvari
- Unnsteinn Manúel Stefánsson, tónlistarmaður
- Logi Pedro Stefánsson, tónlistarmaður
- Sigríður Thorlacius, tónlistarmaður
- Villi Neto, leikari
- Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður og spekúlant um íslensku
- Ilmur Kristjánsdóttir, leikari
- Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), tónlistarmaður
- Jófríður Ákadóttir(en), tónlistarmaður og tónskáld
- Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og leikari
- Halldór Laxness Halldórsson (Dóri DNA), rithöfundur og grínisti
- Arnaldur Indriðason spennusagnarithöfundur
Meðal hljómsveita sem hafa tekið sín fyrstu skref í MH eru:
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]