Himachal Pradesh
Útlit
Himachal Pradesh er fylki í norðurhluta Indlands. Fylkið á landamæri að Tíbet í vestri, Jammú og Kasmír í norðri, Púnjab í vestri og Haryana og Uttarakhand í suðaustri. Höfuðstaður fylkisins er borgin Shimla.
Íbúar Himachal Pradesh eru tæpar sjö milljónir. Opinber tungumál fylkisins eru hindí og púndjabí. Um 95% íbúa eru hindúatrúar.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Himachal Pradesh.