1614
Útlit
(Endurbeint frá MDCXIV)
Árþúsund: | 2. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Árið 1614 (MDCXIV í rómverskum tölum) var fjórtánda ár 17. aldar sem hófst á miðvikudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en laugardegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Febrúar - Danska ríkisráðið, dönsku biskuparnir og konungur hittust á þinginu í Kolding þar sem biskupinn og kalvínistinn Oluf Kock var gerður útlægur.
- 5. apríl - Pocahontas og John Rolfe gengu í hjónaband í Jamestown.
- Júní - Enskir sjóræningjar undir forystu Williams Clark og James Gentleman rændu tveimur dönskum skipum og fóru ránshendi um Vestmannaeyjar í tvær vikur.
- 14. júlí - Svíar sigruðu Rússa í orrustunni við Bronnicy.
- 23. ágúst - Groningenháskóli stofnaður.
- 11. október - Adriaen Block og hópur kaupmanna í Amsterdam óskuðu eftir því við hollenska þingið að fá einkaleyfi á verslun í Nýja Hollandi.
- 19. nóvember - Umsátrið um Ósaka hófst.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Mikill jarðskjálfti reið yfir Suðurland og hrundu bæir, þar á meðal Fjall á Skeiðum.
- Síðustu fundir franska stéttaþingsins fram að frönsku byltingunni.
- Svíar gerðu varnarbandalag við Holland og Lýbiku.
- John Napier gaf út ritið Mirifici Logarithmorum Canonis Descriptio þar sem hann setur fram hugmyndina um lógaritma.
- Fyrsta stefnuyfirlýsing Rósakrossreglunnar, Fama Fraternitatis Rosae Crucis, var gefin út í Þýskalandi.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 1. janúar - John Wilkins, enskur dulmálsfræðingur (d. 1672).
- 5. janúar - Leópold Vilhelm erkihertogi af Austurríki (d. 1662).
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Hallgrímur Pétursson sálmaskáld (d. 1674).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 7. apríl - El Greco, krítverskur listmálari (f. 1541).
- 11. ágúst - Lavinia Fontana, ítalskur listmálari (f. 1552).
- 21. ágúst - Erzsébet Báthory, ungversk greifynja og fjöldamorðingi (f. 1560).