Fara í innihald

Skeiðahreppur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skeiðahreppur

Skeiðahreppur var sveitarfélag í Árnessýslu sem sameinaðist Gnúpverjahreppi 9. júní 2002 og mynduðu þau Skeiða- og Gnúpverjahrepp.

Skeiðahreppur er marflatur enda mótaður af bæði Þjórsá og Hvítá sem renna hvor sínum megin við sveitina. Minnsta bil milli ánna er 8 kílómetrar nokkuð sunnarlega í sveitinni. Allra syðst nær Þjórsárhraunið yfir landið. Nyrst setur Vörðufell mikinn svip á landið þar sem það rís um 300 metra yfir landið. Vörðufellið sjálft er 391 m hátt og í dalverpi nokkru er Úlfsvatn; stærsta vatn sveitarinnar. Milli Hvítár og Vörðufells eru Höfðaveitur, en þær eru á náttúruminjaskrá Umhverfisstofnunar. Eru veiturnar nú stærsta votlendi sveitarinnar, eftir að stórt landssvæði var ræst fram á 20. öld.

Sveitin er mikið landbúnaðarsvæði og er þar allmikil mjólkurframleiðsla, sem og hrossarækt. Ekki er hreppurinn mikill sauðfjárræktarhreppur en þó eru Reykjaréttir með elstu varðveittu hlöðnu réttum á Íslandi.

Á Brautarholti var Þjórsárskóli um tíma og áður hét hann Brautarholtsskóli.

Risið hefur upp íbúðahverfi á Brautarholti.

Býli í Skeiðahreppi

[breyta | breyta frumkóða]

Núverandi býli

[breyta | breyta frumkóða]
  • Andrésfjós
  • Arakot
  • Álfsstaðir
  • Birnustaðir 1 og 2
  • Björnskot
  • Blesastaðir 1, 1A, 2, IIA og 3
  • Borgarkot
  • Brautarholt 1-24
  • Brjánsstaðir
  • Efri-Brúnavellir 1 og 2
  • Fjall 1 og 2
  • Framnes 1 og 2
  • Hlemmiskeið 1, 1A, 2, 3, 5 og 6
  • Húsatóftir 1, 2 og 3
  • Kálfhóll 1 og 2
  • Kílhraun
  • Langamýri 1 og 2
  • Miðbýli
  • Minni-Ólafsvellir
  • Norðurgarður
  • Ólafsvellir
  • Ósabakki 1, 2 og 3
  • Reykhóll
  • Reykir
  • Reykjahlíð
  • Skeiðháholt 1, 2 og 3
  • Sléttaból
  • Syðri-Brúnavellir
  • Útverk
  • Vesturkot
  • Vorsabær 1 og 2
  • Votamýri 1, 2 og III
  • Mörk
  • Oddgeir Guðmundsson, Jón Guðmundsson og Júlíus Jónsson (ritstj.). Sunnlenskar byggðir, 1. bindi; Tungur, Hreppar, Skeið.
  • „Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps, greinagerð“ (pdf). Sótt 23. febrúar 2006.
  • „Bæjartal“. Sótt 4. maí 2006.