Los Angeles
Los Angeles (á spænsku: Los Ángeles (borið fram los 'aŋxeles)) er stærsta borg Kaliforníu og næststærsta borg Bandaríkjanna. Borgin er oft kölluð Borg Englanna. Íbúafjöldi borgarinnar er um fjórar milljónir, hún er 1.290,6 ferkílómetrar að stærð og er staðsett í suðurhluta Kaliforníu. Til viðbótar eru um 12,9 milljón íbúar á svæðinu umhverfis Los Angeles. Los Angeles-sýslan er fjölmennasta og útbreiddasta sýsla Bandaríkjanna. Íbúar borgarinnar eru þekktir sem „Angelenos“.
Los Angeles var stofnuð 4. september 1781 af spænska ríkisstjóranum Felipe de Neve sem El Pueblo de Nuestra Señora la Reina de los Angeles del Río de Porciúncula (Þorp konunnar okkar, drottning englanna og árinnar Porziuncola). Hún varð hluti af Mexíkó árið 1821, eftir að það fékk sjálfstæði frá Spáni. Árið 1848, þegar stríðinu á milli Mexíkóa og Bandaríkjamanna lauk, varð Los Angeles ásamt Kaliforníu hluti af Bandaríkjunum.
Los Angeles er miðstöð viðskipta, alþjóðlegra skipta, afþreyingar, menningar, tísku, vísinda, tækni og menntunar. Þar eru stofnanir sem hafa mikla þekkingu á hinum ýmsu sviðum. Hollywood er staðsett í Los Angeles en Hollywood er þekkt sem Höfuðborg skemmtanaiðnaðarins en þar eru framleiddar kvikmyndir, sjónvarpsþættir og tekin upp tónlist. Þar sem borgin er mikilvæg í þessum iðnaði hefur hún dregið að sér margar stjörnur.
Íþróttir
[breyta | breyta frumkóða]- Los Angeles Lakers og Los Angeles Clippers eru körfuboltaliðin sm spila í NBA-deildinni.
- Los Angeles Dodgers og Los Angeles Angels eru hafnaboltaliðin í MLB.
- Los Angeles Kings og Anaheim Ducks eru NFL, eða amerísku fótboltaliðin.
- LA Galaxy og Los Angeles FC eru knattspyrnuliðin í MLS-deildinni.