Handknattleiksárið 1976-77
Handknattleiksárið 1976-77 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1976 og lauk vorið 1977. Valsmenn urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Framstúlkur í kvennaflokki. Karlalandsliðið tók þátt í b-keppni í Austurríki.
Karlaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Valsmenn urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla. Þjálfari Vals var Hilmar Björnsson. Keppt var í átta liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 24 |
Víkingur | 22 |
FH | 18 |
Haukar | 17 |
ÍR | 12 |
Fram | 10 |
Þróttur | 8 |
Grótta | 1 |
Grótta féll niður um deild. Þróttur fór í umspil við næstefsta lið 2. deildar.
Markakóngur var Hörður Sigmarsson, Haukum, með 111 mörk. Björgvin Björgvinsson, Víkingi, var valinn leikmaður ársins af íþróttafréttamönnum.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]Ármenningar sigruðu í 2. deild og færðust upp í þá fyrstu. KR hafnaði í öðru sæti og komst í umspil. Á hinum endanum féll Keflavík niður um deild en Leiknir fór í umspil. Keppt var í 8 liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Ármann | 25 |
KR | 22 |
KA | 20 |
Þór Ak. | 14 |
Fylkir | 13 |
Stjarnan | 12 |
Leiknir R. | 6 |
Keflavík | 0 |
KR og Þróttur léku tvo umspilsleiki um sæti í 1. deild og sigraði KR í þeim báðum, 15:14.
3. deild
[breyta | breyta frumkóða]HK sigraði í 3. deild og tók sæti Keflvíkinga í 2. deild. Axel Axelsson var þjálfari HK. Keppt var í tveimur riðlum með tvöfaldri umferð. HK sigraði í suðurriðli en Dalvíkingar í Norðurriðli.
Suðurriðill:
Félag | Stig |
---|---|
HK | 19 |
Afturelding | 18 |
Þór Ve. | 12 |
ÍA | 12 |
Breiðablik | 9 |
Týr Ve. | 8 |
Njarðvík | 6 |
Norðurriðill:
Fjögur lið kepptu í norðurriðli. Dalvík fór með sigur af hólmi.
Úrslitaleikur: HK – Dalvík 24:21
Dalvík og Leiknir mættust í umspilsleik um sæti í 2. deild og sigruðu Leiknismenn 26:21.
Bikarkeppni HSÍ
[breyta | breyta frumkóða]FH-ingar sigruðu í bikarkeppninni þriðja árið í röð eftir úrslitaleik gegn Þrótti.
1. umferð
- Leiknir - Afturelding 23:18
- Stjarnan – KA 21:25
- Þór Ak. - ÍBK (ÍBK gaf)
- Fylkir - ÍA 22:21
16-liða úrslit
- KA - Fylkir 19:14
- Haukar - Leiknir 27:17
- Ármann - Fram 18:21
- KR - Breiðablik 27:18
- Þróttur - Þór Ak. 28:22
- Grótta - ÍR 24:26
- Týr Ve. - FH 17:36
- Valur - Víkingur 31:24
8-liða úrslit
Undanúrslit
Úrslit
- FH - Þróttur 24:17
Evrópukeppni
[breyta | breyta frumkóða]Evrópukeppni meistaraliða
[breyta | breyta frumkóða]FH-ingar kepptu í Evrópukeppni meistaraliða og komust í 16-liða úrslit.
32-liða úrslit
- FH - Vestmanna ÍF (Færeyjum) 28:13 og 25:20
16-liða úrslit
- FH - MAI Moskvu (Sovétríkjunum) 19:20 og 15-24
Evrópukeppni bikarhafa
[breyta | breyta frumkóða]Valsmenn kepptu í Evrópukeppni bikarhafa og komust í 16-liða úrslit.
32-liða úrslit
- Valur - HC Red Boys Differdange (Lúxemborg) 25:11 og 29:12
16-liða úrslit
- Valur - WKS Slask Wroclaw (Póllandi) 20:22 og 18-22
Kvennaflokkur
[breyta | breyta frumkóða]1. deild
[breyta | breyta frumkóða]Framarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna. Þjálfari Fram var Guðjón Jónsson. Keppt var í átta liða deild með tvöfaldri umferð. Fram og Valur mættust í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni, en honum lauk með stórsigri Fram, 13:5.
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 26 |
Valur | 25 |
Þór Ak. | 14 |
FH | 17 |
Ármann | 9 |
KR | 8 |
Víkingur | 6 |
Breiðablik | 3 |
Breiðablik féll niður um deild. Víkingur fór í umspil við næstefsta lið 2. deildar.
Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram, var valin handknatleiksstúlka ársins.
2. deild
[breyta | breyta frumkóða]Haukar sigruðu í 2. deild. Grindvík hafnaði í öðru sæti og fór í umspil um sæti í 1. deild. Átta lið tóku þátt, fimm í A-riðli og þrjú í B-riðli. Leikin var tvöföld umferð.
A-riðill:
- Haukar sigruðu í a-riðli, unnu alla átta leiki sína. Önnur lið í riðlinum voru KA, ÍR, Þróttur og ÍBK.
B-riðill:
Félag | Stig |
---|---|
Grindavík | 8 |
Fylkir | 3 |
Dalvík | 1 |
Úrslitaleikur:
- Haukar - Grindavík 20:9
Umspilsleikur um sæti í 1. deild:
- Víkingur - Grindvík 19:9
Bikarkeppni HSÍ
[breyta | breyta frumkóða]KR-stúlkur sigruðu í bikarkeppninni í fyrsta og eina sinn eftir tvo úrslitaleiki gegn Ármanni.
1. umferð
- Fram - Þór Ak. 20:8
- Stjarnan — KR (Stjarnan gaf)
- Ármann - ÍBK 15:5
- Breiðablik - Haukar 12:17
- FH - ÍR 25:15
- Þróttur - Vikingur 9:20
- Fylkir - Valur (Fylkir gaf)
- Dalvík - Grindavík 9:21
8-liða úrslit
Undanúrslit
Úrslit
- KR - Ármann 9:9
Annar úrslitaleikur
- KR - Ármann 14:6
Evrópukeppni
[breyta | breyta frumkóða]Evrópukeppni meistaraliða
[breyta | breyta frumkóða]Framstúlkur kepptu í Evrópukeppni meistaraliða. Þær sátu hjá í fyrstu umferð en féllu úr keppni í 16-liða úrslitum.
16-liða úrslit
- Fram - Radnici Belgrað, Júgóslavíu 10:22
- Radnici Belgrað - Fram 26:6
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]Stærsta verkefni karlalandsliðsins á keppnistímabilinu var B-keppni í Austurríki. Íslenska liðið komst upp úr forriðli, hafnaði í öðru sæti í milliriðli og lék að lokum um bronsverðlaunin. Sex efstu liðin tryggðu sér sæti á HM í Danmörku sem haldin var 1978.
Forriðill
- Ísland – Portúgal 29:14
- Ísland – Austur-Þýskaland 20:27
Milliriðill
Leikur um 3. sæti
- Ísland – Tékkóslóvakía 19:21