Fara í innihald

HAM (hljómsveit)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 17. júlí 2023 kl. 13:46 eftir Snaevar-bot (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2023 kl. 13:46 eftir Snaevar-bot (spjall | framlög) (top: uppfæri gildi tónlistarsniðs using AWB)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
HAM
UppruniKópavogur / Hafnarfjörður
Ár1988 -
MeðlimirÓttarr Proppé (Söngur)
Sigurjón Kjartansson (Gítar og söngur)
Flosi Þorgeirsson (Gítar)
Arnar Geir Ómarsson (Trommur)
S. Björn Blöndal (Bassi)
Fyrri meðlimirDr. Gunni (gítar)
Björk Guðmundsdóttir (Pípuorgel)
Jóhann Jóhannsson

HAM er íslensk rokkhljómsveit sem starfaði á árunum 1988 – 1994. Kom aftur saman á tvennum tónleikum árið 2001 og 15. nóvember 2008 á tónleikunum "Áfram með lífið" í Laugardalshöll en hefur starfað síðan breiðskífan Svik, Harmur og Dauði kom út árið 2011.

Hljómsveitin var í tengslum við Smekkleysuhópinn, og var vel þekkt í íslensku neðanjarðartónlistarsenuni en náði meiri meginstraumsathygli með síðustu breiðskífu sinni. Hljómsveitin var brautryðjandi þyngra rokks á Íslandi og meðal fólks sem að spilaði með henni má nefna Dr. Gunna, en hann spilaði á gítar með þeim í nokkra mánuði snemma á ferlinum og Björk Guðmundsdóttur, en hún spilaði með þeim á pípuorgel í kringum tökurnar á Sódómu Reykjavík. Hún tók líka upp nokkur lög með þeim í tengslum við þá mynd. Hljómsveitin náði samt aldrei neinum víðtækum vinsældum á Íslandi á meðan hún starfaði en hefur síðar hlotið almenna viðurkenningu sem mikilvæg hljómsveit í rokksögu Íslands.

HAM hóf æfingar laust fyrir áramót 1987. Hljómsveitin spilaði sína fyrstu tónleika á skemmtistaðnum Tunglinu 10. mars 1988. Fyrsta hljómplata sveitarinnar var stuttskífan Hold. Þá samanstóð hljómsveitin af Sigurjóni Kjartanssyni, Óttarri Proppé, Birni S. Blöndal og fyrsta trommaranum, Ævari Ísberg. [1]Platan fékk nær enga spilun í útvarpi og var mjög umdeild. Gert var myndband við lagið „Trúboðssleikjari“ en Sjónvarpið brenndi eina eintakið sem til var af því þar sem myndefnið þótti ekki við hæfi.

Útrás sveitarinnar, eða tilraun til útrásar, hófst með því að hún hitaði upp fyrir Sykurmolana á fimm tónleikum í Þýskalandi árið 1988. Árið eftir sendi sveitin frá sér plötuna Buffalo Virgin sem fyrirtækið One Little Indian gaf út. Þá hafði Hallur Ingólfsson tekið við sem trommari hljómsveitarinnar og spilaði með þeim næsta árið en á þeim tíma gáfu þeir meðal annars út lagið Animalia. Á eftir fylgdi að spila á tónleikum í New York. Hljómplatan Pleasing The Pirahna var tekin upp árið 1990 en hún kom reyndar aldrei út. Önnur óútgefin plata Ham er platan Pimpmobile að sögn Óttars Proppé í tónlistarspurningarþættinum Popppunkti árið 2004.

Árin 19911992 tók hljómsveitin þátt í gerð kvikmyndarinnar Sódóma Reykjavík þar sem Sigurjón samdi að auki mestalla tónlistina í myndinni. Það er ekki síst sú mynd sem hefur haldið orðstír sveitarinnar á lofti síðan hún hætti. Saga rokksins kom út 1993 og þann 4. júní 1994 hélt hljómsveitin síðustu tónleika sína á skemmtistaðnum Tunglinu í Reykjavík, þeir tónleikar voru hljóðritaðir og komu svo út á plötunni HAM lengi lifi. Árið 1995 voru áður óútgefnar stúdíóupptökur sveitarinnar gefnar út á plötunni Dauður hestur.

HAM lá svo í dvala allt til ársins 2001 þegar það spurðist út að þýska hljómsveitin Rammstein myndi spila á Íslandi um sumarið, þá komst af stað þrálátur orðrómur um það að Sigurjón hefði einhvern tíma sagt að eini möguleikinn á því að HAM kæmi saman aftur væri til þess að hita upp fyrir Rammstein. Sigurjón neitaði því reyndar að hafa sagt það en engu að síður var ákveðið að kalla hljómsveitina saman á ný. Hún spilaði á skemmtistaðnum Gauki á Stöng þann 14. júní og svo í allra síðasta skiptið (að eigin sögn) þann 15. júní fyrir 5.500 manns í Laugardalshöll einmitt til að hita upp fyrir Rammstein. Tónleikarnir á Gauknum voru svo gefnir út á tónleikaplötunni Skert flog.

Ham átti að spila á tónlistarhátíðinni Reykjavík Rokkar sumarið 2006 ásamt The Darkness og Motörhead, en sú tónlistarhátíð féll niður vegna ónógrar miðasölu. Þess í stað boðuðu þeir stuttu seinna til tónleika á skemmtistaðnum NASA í Reykjavík, þann 29. júní. Þar var húsfyllir og Ham liðar tóku gamalt efni í bland við nýtt. Þeir léku einnig á tónlistarhátíð alþýðunar, Aldrei fór ég suður, á Ísafirði árið 2007.

HAM kom aftur saman til þess að spila á Iceland Airwaves árið 2010 og 2011. Einnig spiluðu þeir á rokkhátíð í Hörpunni, á opnunarhelgi tónlistarhússins og síðar á tónlistarhátíðinni Secret Solstice og á Eistnaflugi margsinnis.

Árið 2011 gaf HAM út Svik, harmur og dauði þá 22 árum eftir stofnun hljómsveitarinnar. Sigurjón sagði plötuna vera þunga og dramatíska. Það hafði ávallt heillað hljómsveitina að skapa dramatíska og angurværa tónlist. Sigurjón sagðist hafa upplifað margt og þroskast frá því að síðasta platan kom út og því hafði hljómsveitin tækifæri til að semja tónlist sem var ólík fyrri tónlist þeirra. Sigurjón tók fram að textarnir væru ekki byggð á hans persónulegu upplifun, þeir eru endurspeglun Óttarrs á tónlistinni. Tónlistin kemur fyrst, síðan textinn. Sigurjón sagðist vera ánægður með plötuna, hún var fimm ár í bígerð en tók aðeins þrjá daga að taka upp.

Árið 2017 kom svo út platan Söngvar um helvíti mannanna. Lögin Vestur-Berlín og Þú lýgur voru fyrst gefin út og hljómuðu í útvarpi. Árið 2020 kom út stuttskífan Chromo Sapiens sem fylgdi samnefndri listasýningu eftir listakonuna Hrafnhildi Arnardóttir.

Útgefin verk

[breyta | breyta frumkóða]
  1. [1]Dr. Gunni, “It’s No Coincidence We’ve Been Called The Ironic Generation”, The Reykjavík Grapevine, 20. september 2011.