Þórarinn Kr. Eldjárn
Þórarinn Kristjánsson Eldjárn (f. 26. maí 1886, d. 4. ágúst 1968) bóndi og hreppstjóri á Tjörn í Svarfaðardal. Hann var sonur séra Kristjáns Eldjárns Þórarinssonar prests á Tjörn og Petrínu Soffíu Hjörleifsdóttur. Þórarinn ólst upp á Tjörn en varð gagnfræðingur frá Akureyri 1905 og nam síðan við lýðháskólann á Voss í Noregi veturinn 1907-1908. Hann sótti kennaranámskeið við Kennaraskóla Íslands 1909. Var síðan kennari og skólastjóri í Svarfaðardal 1909-1955. Hann tók við búi af föður sínum á Tjörn 1913 og bjó þar til 1959, síðustu árin í sambýli við Hjört son sinn, sem síðan tók við allri jörðinni.
Kona Þórarins var Sigrún Sigurhjartardóttir (f. 2. ágúst 1888, d. 5. febrúar 1959). Hún var dóttir Sigurhjartar Jóhannessonar bónda á Urðum í Svarfaðardal og fyrri konu hans Soffíu Jónsdóttur en hún var ættuð frá Litlulaugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu.
Þórarinn og Sigrún áttu fjögur börn sem upp komust:
- Þorbjörg (f. 6. mars 1914), húsfreyja í Reykjavík
- Kristján Eldjárn (f. 6. desember 1916, d. 14. september 1982), þjóðminjavörður og forseti Íslands
- Hjörtur Friðrik (f. 24. febrúar 1920, d. 1. apríl 1996), bóndi á Tjörn
- Petrína Soffía (f. 17. febrúar 1922 d. 9. júlí 2003), húsfreyja á Akureyri
Þórarinn sinnti félagsmálum allmikið.
- Var í stjórn Ungmennafélags Svarfdæla 1909-1927
- Í hreppsnefnd Svarfaðardalshrepps 1919-1925 og 1934-1938
- Hreppsstjóri 1929-1968
- Sýslunefndarmaður 1924-1966
- Í Stjórn og fulltrúaráði Sparísjóðs Svarfdæla frá 1921
- Í stjórn KEA 1938-1958
- Stjórnarformaður KEA 1947-1958
Í fulltrúaráði Samvinnutrygginga og Andvöku 1947-1960
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Gestur Vilhjálmsson (maí 1965). Þórarinn Kr. Eldjárn, hreppstjóri. Heima er bezt, Akureyri.
- Stefán Aðalsteinsson (1978). Svarfdælingar. Iðunn, Reykjavík.