Sléttuhreppur
Útlit
Sléttuhreppur var hreppur á Hornströndum í Norður-Ísafjarðarsýslu. Hann fór í eyði 1953 og var sameinaður Ísafjarðarkaupstað 19. desember 1995.
Sléttuhreppur afmarkaðist af úthafinu að norðan og vestan. Að sunnan eru Ísafjarðardjúp og Jökulfirðir. Á landi liggja hreppsmörkin frá Lás, eftir nesinu milli Hesteyrarfjarðar og Veiðileysufjarðar að fjallgarði sem skilur að Jökulfirði og Hornstrandir og eftir þeim fjallgarði austur í Breiðaskarðahnúk. Þaðan liggja mörkin norður fyrir Látravík. Áður fyrr mun Látravík hafa verið hluti af Sléttuhreppi, en eftir að hún byggðist var hún talin innan Grunnavíkurhrepps[1]
Jarðir í Sléttuhreppi árið 1858:[2]
- Hesteyri
- Lángivöllur
- Slétta
- Skáladalur í Aðalvík
- Sæból í Aðalvík
- Garðar í Aðalvík
- Lækur í Aðalvík
- Staður í Aðalvík
- Þverdalur í Aðalvík
- Miðvík efri
- Miðvík neðri
- Stakkadalur í Aðalvík
- Látur í Aðalvík
- Rekavík bak Látur
- Túnga í Fljótavík
- Glúmstaðir í Fljótavík
- Átlastaðir í Fljótavík
- Kjaransvík
- Hlöðuvík
- Hælarvík
- Rekavík bak Höfn
- Höfn í Hornvík
- Horn í Hornvík
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Sléttuhreppur. Fyrrum Aðalvíkursveit. Byggð og búendur; Kristinn Kristmundsson og Þórleifur Bjarnason, 1971, Átthagafélag Sléttuhrepps. Bls. 3
- ↑ Skýrslur um landshagi á Íslandi, 1. Bindi (01.01.1858), Blaðsíða 714
Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.