Paul Gascoigne
Paul John Gascoigne (fæddur 27. maí 1967) í Gateshead er enskur fyrrum leikmaður sem lék sem miðjumaður. Hann var mest áberandi sem leikmaður á ferlinum þegar hann spilaði með Newcastle United , Tottenham Hotspur F.C., Glasgow Rangers og Lazio árin 1985-1998, hann vann FA-bikarinn með Tottenham árið 1991. Gascoigne ólst upp í Gateshead sem er nálægt Newcastle upon Tyne og hélt með Newcastle sem ungur drengur. Hann lék 57 leiki fyrir enska landsliðið og skoraði í þeim 10 mörk.
Utanvallar
[breyta | breyta frumkóða]Gascoigne hefur oftar en ekki ratað í fréttir fyrir vandræði utan vallar. Fyrsta eiginkona hans hét Sheryl, sem giftist honum við hátíðlega athöfn í Ware, Hertfordshire, í júlí árið 1996. Þau höfðu þá verið saman í 6 ár þegar hann játaði síðar að hafa beitt hana ofbeldi. Sheryl gaf út bók sem hét Stronger: My Life Surviving Gazza. Saman áttu þau soninn Regan, svo ættleiddi Gascoigne börn sem hún átti út fyrra hjónabandi, þau Mason og Biöncu. Bianca þessi átti síðar á ævinni eftir að gera garðinn frægan í raunveruleikaþættinum Love Island. Í nóvember árið 2008 varð hann gjaldþrota. Gascoigne á við áfengisvandamál að stríða og hefur einnig verið greindur með geðræn vandamál.
Félög
[breyta | breyta frumkóða]- Newcastle United (1985-1988)
- Tottenham Hotspur (1988-1992)
- Lazio (1992–1995)
- Glasgow Rangers (1995-1998)
- Middlesbrough (1998-2000)
- Everton (2000–2002)
- Burnley (2002)
- Gansu Tianma (2003)
- Boston United (2004)
Mörk með landsliði
[breyta | breyta frumkóða]- Mörk og úrslit með Englandi koma fyrst[1]
# | Dagsetning | Völlur | Andstæðingur | Úrslit | Keppi | Mörk |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 26. apríl 1989 | Wembley-leikvangurinn, London, Englandi | Albanía | 5–0 | HM 1990 | 1 |
2 | 25. apríl 1990 | Wembley-leikvangurinn, London, Englandi | Tékkóslóvakía | 4–2 | Vináttuleikur | 1 |
3, 4 | 18. nóvember 1992 | Wembley-leikvangurinn, London, Englandi | Tyrkland | 4–0 | Undakeppni HM 1994 | 2 |
5 | 31. mars 1993 | İzmir Atatürk-leikvangurinn, İzmir, Tyrklandi | Tyrkland | 2–0 | Undankeppni HM 1994 | 1 |
6 | 8. september 1993 | Wembley-leikvangurinn, London, Englandi | Pólland | 3–0 | Undankeppni HM 1994 | 1 |
7 | 23. maí 1996 | Workers Stadium, Beijing, Kína | Kína | 3–0 | Vináttuleikur | 1 |
8 | 15. júni 1996 | Wembley-leikvangurinn, London, Englandi | Skotland | 2–0 | EM 1996 | 1 |
9 | 1. september 1996 | Stadionul Republican, Chișinău, Moldavíu | Moldóva | 3–0 | Undankeppni HM 1998 | 1 |
10 | 10. september 1997 | Wembley-leikvangurinn, London, Englandi | Moldóva | 4–0 | Undankeppni HM 1998 | 1 |
Einstaklingsverðlaun
[breyta | breyta frumkóða]- Ballon d'Or: Fjórði 1990
- Valinn í Hall of fame enskrar knattspyrnu 2002
- Valinn í Hall of fame Glasgow Rangers 2006
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Paul John Gascoigne – International Appearances“. Rec.Sport.Soccer Statistics Foundation. 15. janúar 2006. Sótt 20. nóvember 2014.