Fara í innihald

Jarðarbókin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hluti Jarðarbókarinnar á vegg grafhýsis Ramsess 5. og 6.

Jarðarbókin (líka kölluð Sköpun sólskífunnar og Bók Aker) er fornegypskur graftexti sem kemur fyrir í grafhýsum frá Nýja ríkinuSíðtímabilinu en aðallega frá tímum tuttugustu konungsættarinnar. Í bókinni er ekkert stundatal líkt og í Hliðabókinni og Amdúat. Bókin segir aðallega frá sköpun sólskífunnar, Aten, og ferð Ra um undirheima gegnum jarðarguðinn Aker.