Hugo Hørring
Hugo Hørring | |
---|---|
Forsætisráðherra Danmerkur | |
Í embætti 23. maí 1897 – 27. apríl 1900 | |
Þjóðhöfðingi | Kristján 9. |
Forveri | Tage Reedtz-Thott |
Eftirmaður | Hannibal Sehested |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. ágúst 1842 Kaupmannahöfn, Danmörku |
Látinn | 13. febrúar 1909 (66 ára) Kaupmannahöfn, Danmörku[1] |
Stjórnmálaflokkur | Hægriflokkurinn |
Háskóli | Kaupmannahafnarháskóli |
Hugo Egmont Hørring (17. ágúst 1842 – 13. febrúar 1909) var danskur lögfræðingur og forsætisráðherra frá 1897 til 1900.[2]
Ævi og störf
[breyta | breyta frumkóða]Hugo Hørring var sonur verslunarmanns í Kaupmannahöfn og lauk lagaprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1868. Að útskrift lokinni tók við embættisferill, fyrst í innanríkisráðuneytinu og árið 1882 tók hann við stöðu forstjóra Hinnar konunglegu Grænlandsverslunar.
Árið 1894 var hann gerður að innanríkisráðherra, þrátt fyrir að hafa einungis starfað sem embættismaður en ekki tekið virkan þátt í stjórnmálum. Hann tók við forsætisráðherrastöðunni af Tage Reedtz-Thott og lenti þegar í sama þráteflinu þar sem meirihluti þingmanna í neðri deild þingsins var ansnúinn stjórninni. Þessar sífelldu deilur leiddu að lokum til afsagnar hans árið 1900 og lauk þar með stuttum pólitískum ferli hans.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ H. Hørring í Dansk biografisk leksikon, 3. útgáfa 1979-1984 (sótt 6. júní 2021)
- ↑ Danske regeringer 1848-1901 úr Danmarkshistorien / Aarhus Universitet (sótt 6. júní 2021)
Fyrirrennari: Tage Reedtz-Thott |
|
Eftirmaður: Hannibal Sehested |